
Jólalög

Boðskapur Lúkasar
Forðum í bænum Betlehem / var borinn sá sem er / sonur guðs sem sorg og þraut / og syndir manna ber

Rokkurinn suðar
Rokkurinn suðar raular og kveður / rímlítil kvæðin sín / hlær mér í brjósti hugurinn glaður / hálfnuð er snældan mín

Bráðum koma blessuð jólin
Bráðum koma blessuð jólin / börnin fara að hlakka til / Allir fá þá eitthvað fallegt / í það minnsta kerti og spil / Kerti og spil, kerti og spil / í það minnsta kerti og spil

Magga litla og jólin hennar
Babbi segir, babbi segir / "Bráðum koma dýrðleg jól" / Mamma segir, mamma segir / "Magga fær þá nýjan kjól"

Bjart er yfir Betlehem
Bjart er yfir Betlehem / blikar jólastjarna / Stjarnan mín og stjarnan þín / stjarna allra barna / Var hún áður vitringum / vegaljósið skæra / Barn í jötu borið var / barnið ljúfa kæra

Ó, Jesúbarn blítt
Ó, Jesúbarn blítt / svo bjart og svo frítt / þitt ból er hvorki, mjúkt né hlýtt / þú komst frá háum himna stól / með helgan frið og dýrðleg jól

Ó, Jesúbarn
Ó Jesú barn, þú kemur nú í nótt / og nálægð þína ég í hjarta finn / þú kemur enn, þú kemur undra hljótt /í kotin jafnt og hallir fer þú inn

Babbi segir
Babbi segir, babbi segir / Bráðum koma dýrðleg jól / Mamma segir, mamma segir / Magga fær þá nýjan kjól

Nú skal segja
Nú skal segja, nú skal segja / hvernig litlar telpur gera / Vagga brúðu, vagga brúðu / og svo snúa þær sér í hring.

Heims um ból
Heims um ból, helg eru jól / signuð mær son Guðs ól / frelsun mannanna, frelsisins lind / frumglæði ljóssins, en gjörvöll mannkind / meinvill í myrkrunum lá

Syng barnahjörð
Syng barnahjörð syng Guði dýrð / hann gaf sinn eigin son / bjóð honum heim, bú honum stað / með bæn og þakkargjörð / með bæn og hjartans þakkargjörð

Ó, hve dýrðleg er að sjá
Ó hve dýrðleg er að sjá / alstirnd himins festing blá / þar sem ljósin gullnu glitra / glöðu leika brosa´ og titra / og oss benda upp til sín

Með gleðiraust og helgum hljóm
Með gleðiraust og helgum hljóm / þig herra Jesú Kristi / heiðri fagnandi og hvellum róm / hópur þinn endurleysti.

Aðventukertin
Við kveikjum einu kerti á / Hans koma nálgast fer / sem fyrstu jól í jötu lá / og jesúbarnið er

Adam átti syni sjö
Adam átti syni sjö / sjö syni átti Adam / Adam elskaði alla þá / og allir elskuðu Adam.

Ó Grýla, Ómar Ragnarsson
Grýla heitir grettin mær, í gömlum helli býr, hún unir sér í sveitinni við sínar ær og kýr. Hún þekkir ekki glaum og glys né götulífsins spé, og næstum eins og nunna er, þótt níuhundruð ára sé. Ó Grýla, ó Grýla, ó Grýla

Á Betlehemsvöllum
Á Betlehemsvöllum þar birtist um nótt / hinn blessaði engill, sem boðar oss skjótt / Nú fagnið og gleðjist því frelsarinn er / oss fæddur í heiminn á völlunum hér.

Á jólunum er gleði og gaman
Á jólunum er gleði og gaman / fúmm, fúmm, fúmm / Á jólunum er gleði og gaman / fúmm, fúmm, fúmm / þá koma allir krakkar / með í kringum jólatré / þá mun ríkja gleði og gaman / allir hlæja og syngja saman / fúmm, fúmm, fúmm

Nótur fyrir píanó
Jónína H. Gísladóttir tónlistarkennari gaf út bókina Bráðum koma blessuð jólin árið 1977. Þar er að finna nótur að íslenskum jólalögum fyrir píanó. Bókin hefur notið mikilla vinsælda allar götur síðan og er meðal annars fáanleg í Tónastöðinni í Skipholti í Reykjavík.

Flytur frumsamið jólalag fyrir nútímafjölskylduna
„Jú, ég verð með í dagskránni,“ segir Halldór Gylfason leikari, sem mun frumflytja glænýtt frumsamið jólalag í kvöld í tilefni Dags rauða nefsins. Margir kannast eflaust við spurninguna sem Halldór veltir upp í laginu, sem er í óhefðbundnari kantinu og ber heitið Nútímafjölskyldujól.

Nótur fyrir píanó: Bráðum koma blessuð jólin
Jónína H. Gísladóttir tónlistarkennari gaf út bókina Bráðum koma blessuð jólin árið 1977. Þar er að finna nótur að íslenskum jólalögum fyrir píanó. Bókin hefur notið mikilla vinsælda allar götur síðan og er meðal annars fáanleg í Tónastöðinni í Skipholti í Reykjavík.

Hátíð fer að höndum ein færir mann nálægt kjarna jólanna
"Hátíð fer að höndum ein er uppáhaldsjólasálmurinn minn. Það er svo rosalega sterk stemning í því lagi," segir Sigfríður Björnsdóttir kennari og þarf ekki að hugsa sig um þegar hún er spurð. Hún segir þó enga einstaka minningu tengda þessum sálmi heldur hafi hann fylgt henni lengi.