Keflavíkurflugvöllur

Fréttamynd

Ekki nóg af sætum, salernum, mat eða upp­lýsingum

Hafsteinn Karlsson var á leið til Íslands frá Kaupmannahöfn með konu sinni á fimmtudaginn þegar stefnan var óvænt tekin á Akureyri vegna veðuraðstæðna á Keflavíkurflugvelli. Við tóku um átta klukkustundir af óvissu í komusalnum á Akureyrarflugvelli þar sem mörghundruð manns var gert að bíða í fleiri klukkutíma. 

Innlent
Fréttamynd

Trúður hand­tekinn á Kefla­víkur­flug­velli vegna meintrar sprengju

Bandaríski trúðurinn Eric Broomfield, sem kallar sig Jelly Boy the Clown og býr á Íslandi, var handtekinn um borð í flugvél Icelandair í Keflavík á leið til Bandaríkjanna á þriðjudag. Ástæðan var rafmagnstæki, sem hann notar í sýningum sínum, sem lögreglan taldi vera heimagerða sprengju. Hann var yfirheyrður og dúsaði í fangaklefa í fimm klukkutíma áður en honum var sleppt. Hann hefur ferðast um allan heim með tækið og aldrei áður lent í öðru eins.

Lífið
Fréttamynd

Síðustu strandaglóparnir komust til Kefla­víkur í nótt

Síðustu farþegar Icelandair sem lentu í töfum vegna hríðarbyls við Keflavíkurflugvöll síðdegis í gær og var því lent á varaflugvöllum voru komnir til Keflavíkur um tvöleytið í nótt. Forstjóri segir leiðakerfi Icelandair hafa verið komið á réttan snúning í morgun og segir starfsfólk hafa unnið þrekvirki.

Innlent
Fréttamynd

Engin við­varandi markaðs­setning frá 2023

Viðvarandi markaðssetning stjórnvalda í ferðaþjónustu hefur ekki verið til staðar frá árinu 2023 og fjárframlög minnkuð, segir fagstjóri ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu. Setja þurfi í samhengi hvernig ferðaþjónusta hér á landi hefur breyst á síðustu árum.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Á leið á flug­völlinn þegar fluginu var flýtt

Aldísi Leoní Rebora brá heldur betur í brún í lok janúar þegar hún fékk tölvupóst um að hún hefði einungis fimmtíu mínútur til að ná flugi til London. Flugið var það fyrsta á löngu ferðalagi frá Íslandi til Ástralíu þar sem hún stundar nám. Sannarlega engin óskabyrjun.

Lífið
Fréttamynd

Allt að 57% lægra verð í Ís­land Duty Free

Undanfarið hefur verið mikið rætt um verð í verslun Iceland Duty Free á Keflavíkurflugvelli, nýlega í samanburði við tollfrjálsa verslunina í Alicante á Spáni. Umfjöllun Morgunblaðsins sýnir að verð á Íslandi er hærra í völdum tilfellum en í Alicante.

Skoðun
Fréttamynd

Engin svör að fá sem skýra „rán um há­bjartan dag“

Trúnaður ríkir um innihald samninga sem Keflavíkurflugvöllur gerir við rekstraraðila í flugstöðinni og sökum þessa getur Isavia ekki veitt upplýsingar um það hvaða skilyrði eru fyrir hendi í samningi flugvallarins við fyrirtæki sem rekur fjármálaþjónustu á Keflavíkurflugvelli. Hins vegar eru þeir samningar sem Keflavíkurflugvöllur gerir við rekstraraðila þess eðlis að þeir eru jafnan tengdir við veltu. Af því má ráða að Isavia fái meira upp úr krafsinu eftir því sem rekstraraðilar í flugstöðinni fá meira í kassann. Það tók níu mánuði að fá svör frá Isavia um samning vegna fjármálaþjónustu á flugvellinum, sem var á þá leið að ekki væri unnt að veita umbeðnar upplýsingar.

Neytendur
Fréttamynd

„Sprengju­flug­vélar er ógnin sem við sjáum hér“

Flugsveit sænska flughersins mun næstu vikurnar sinna loftrýmisgæslu í íslenskri lofthelgi en verkefnið er á vegum NATO og unnið í samvinnu við varnarmálasvið Landhelgisgæslunnar. Yfirliðsforingi í sænska flughernum segir rússneskar sprengjuflugvélar helstu ógnina og að móttökurnar hér á landi hafi verið afar góðar.

Innlent
Fréttamynd

Smíða tengibyggingu sem verður hjarta Leifs­stöðvar

Ein stærsta framkvæmd í landinu á næstu árum verður enn frekari stækkun flugstöðvarinnar á Keflavíkurflugvelli, sem Isavia hyggst hefja á þessu ári. Þetta er smíði 22 milljarða króna tengibyggingar sem verða á hjarta Leifsstöðvar.

Innlent
Fréttamynd

Burðar­dýr hlaut þungan dóm fyrir vökvasmygl

Valentin Jemeljanov, Litái á fertugsaldri, hefur verið dæmdur til þriggja og hálfs árs fangelsisvistar fyrir að flytja inn þrjá lítra af kókaíni á vökvaformi. Úr vökvanum mætti framleiða 3,5 kíló af kókaíni með styrkleika upp á 53 prósent. 

Innlent
Fréttamynd

Hættu við lendingu í miðju að­flugi

Flugvél Icelandair þurfti að hætta við lendingu í miðju aðflugi í Keflavík og fara í svokallað fráhvarfsflug. Vélin hafði flogið frá Arlanda í Stokkhólmi og kom til lendingar í Keflavík um þrjúleytið í dag.

Innlent
Fréttamynd

Með 29 kíló af maríjúana í töskunum

Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt tvo karlmenn í tíu mánaða fangelsi fyrir að hafa reynt að smygla samtals um 29 kílóum af marijúana til landsins. Þeir komu til landsins með flugi frá Toronto í Kanada í byrjun desember síðastliðnum.

Innlent
Fréttamynd

Sverrir Berg­mann hættir í bæjar­stjórn

Sverrir Bergmann Magnússon, tónlistarmaður, varaþingmaður og bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ, hefur ráðið sig í starf samfélags- og sjálfbærnisstjóra hjá Kadeco, þróunarfélagi Keflavíkurflugvallar. Þar sem fyrirtækið starfar bæði í Reykjanesbæ og Suðurnesjabæ hefur hann ákveðið að hætta í bæjarstjórn og kveðst ekki bjóða sig fram aftur. 

Innlent
Fréttamynd

Kannast ekki við lýsingar leigu­bíl­stjóra

Það er mat forsvarsmanna Isavia á Keflavíkurflugvelli að þjónusta leigubíla gangi nú mun betur fyrir sig en á fyrri hluta síðasta árs. Síðasta hálfa árið hafi þurft að meina sex leigubílstjórum um aðgang að flugstöðinni í hverjum mánuði að meðaltali en árið á undan voru þeir um þrettán á mánuði.

Innlent
Fréttamynd

Enn eitt burðardýrið á leið í steininn

Karlmaður frá Litáen hefur verið dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir innflutning á þremur lítrum af kókaíni á vökvaformi. Maðurinn játaði brot sitt en ekkert benti til þess að hann hefði verið eigandi efnanna.

Innlent
Fréttamynd

„Málið er að á­standið fer versnandi“

Formaður félags leigubílstjóra segir að staðan á leigubílamarkaði fari versnandi. Hann segir engan vita hve margir leigubílar séu í raun og veru í akstri og segir ráðamenn skella skollaeyrum við viðvörunum leigubílstjóra á meðan frumvarp um stöðvaskyldu sitji í nefnd. Leigubílstjórar sæti miklum atvinnumissi í núverandi efnahagsástandi.

Innlent
Fréttamynd

Icelandair setur nokkur met

Icelandair hefur aldrei flutt fleiri farþega en á síðasta ári en í heildina var fjöldinn um 5,1 milljónu og er það átta prósentum meira en árið 2024. Þá var desember stærsti desembermánuðurinn í sögu Icelandair en þá flutti flugfélagið 344 þúsund farþega.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

„Það er öllu stjórnað með ógn þarna“

Leigubílstjóri segir stöðuna á leigubílastæðinu við Keflavíkurflugvöll enn þá minna á villta vestrið þvert á loforð forsvarsmanna Isavia um að gæsla á stæðinu yrði bætt. Frumvarp ráðherra um breytingar á leigubílalögum er nú til umfjöllunar í nefnd.

Innlent
Fréttamynd

Stöðvuðu menn í of­beldis­hug við landa­mærin

Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði menn á Keflavíkurflugvelli í vor sem voru komnir hingað til lands til að fremja ofbeldisverk. Aðstoðaryfirlögregluþjónn á Suðurnesjum segir að ekki hafi verið um að ræða hryðjuverk gegn almenningi, heldur ákveðinn ofbeldisverknað tengdan skipulagðri brotastarfsemi.

Innlent