Guðlaugur Þór Þórðarson

Fréttamynd

Vanræksla stjórnvalda í forvarnamálum!

Nú berast fréttir af því að við Íslendingar séum orðin næst feitasta þjóð heims! Þetta eru sorglegar fréttir, sérstaklega þar sem þessi þróun hefur verið fyrirséð í langan tíma. Í ljósi þess setti ég sem ráðherra heilbrigðismála forvarnir í forgang. Ég fékk til liðs við mig fólk með yfirburðaþekkingu á sviðinu; Dr. Ingu Dóru Sigfúsdóttur, sem nú starfar sem prófessor við Columbia háskóla í New York, og Héðin Unnsteinsson, sem starfað hafði að stefnumótun hjá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni um árabil. Byggt á nýjustu rannsóknum og í samráði við fjölmarga fagaðila á sviði forvarnamála, settu þau saman heildstæða stefnu sem tekur til hreyfingar, vímuvarna og geðverndar.

Skoðun
Fréttamynd

Kolbeinn Proppé og Landspítalinn

Kolbeinn Óttarsson Proppé, núverandi blaðamaður og fyrrverandi varaborgarfulltrúi R-listans og oddviti VG í Suðurkjördæmi, skrifar um mig í Fréttablaðinu sl. fimmtudag. Ég kemst ekki hjá því að leiðrétta rangfærslur í grein hans.

Skoðun
Fréttamynd

Venesúela, Kúba… Ísland?

Grein mín á Pressunni sem bar heitið Venesúela og Kúba fór fyrir brjóstið blaðamanninum Magnúsi Þorláki Lúðvíkssyni og gerði hann hana að umtalsefni á síðum blaðsins í dálknum Frá degi til dags. Í greininni rakti ég ýmislegt sem ríkisstjórnin hefur gert sem er þess eðlis að ætti frekar heima í erlendum fréttum frá þessum löndum heldur en sem fréttir frá Íslandi. Blaðamaðurinn tilgreindi eitt dæmi sem ég nefndi sem gæti að hans áliti alls ekki átt við Venesúelu og Kúbu en það er þegar íslenski utanríkisráðherrann gekk í að kenna stækkunarstjóra ESB Evrópufræði, þegar hinn síðarnefndi benti Íslendingum á að þeir gætu ekki fengið varanlegar undanþágur frá lögum ESB.

Skoðun
Fréttamynd

Matvælaverð lækkar!

Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar - Enn og aftur lækkar núverandi þingmeirihluti skatta og gjöld. Þann 1. mars lækkaði virðisaukaskattur á öll matvæli í 7%. Lækkun þessi nær einnig til veitingahúsa, mötuneyta og hliðstæðra aðila.

Skoðun