Viðskipti
164 165 166 167 168 169 170 171 172 … 223 ›
Ísland vænlegur kostur fyrir erlenda fjárfesta Ísland er þriðja vænlegasta land í heimi fyrir erlenda fjárfesta að mati bandaríska viðskiptatímaritsins Forbes. Á undan Íslandi á listanum er Danmörk, sem trónir á toppnum, og Finnland. Á eftir Íslandi koma Bandaríkin og Bretland en á botninum situr Haítí, rétt fyrir neðan Laos og Angóla. Innlent 9.2.2006 07:51
Hagnaður Össurar 225 milljónum minni en árið 2004 Hagnaður Össurar á síðasta ári var tæplega 735 milljónir króna. Árið 2004 nam hagnaður félagsins tæpum 960 milljónum króna, eða um 225 milljónum meira en á nýliðnu ári. Viðskipti innlent 7.2.2006 13:59
Bílanaust kaupir Olíufélagið Núverandi hluthafar og stjórnendur Bílanausts, ásamt öðrum fjárfestum, hafa keypt allt hlutafé í Olíufélaginu fyrir hátt í 20 milljarða króna. Með í kaupunum er eignarhluti Olíufélagsins í Olíudreifingu sem og þjónustustöðvar og flestar aðrar fasteignir í rekstri Olíufélagsins. Olíufélagið og Bilanaust verða í eigu nýs eignarhaldsfélags og verður velta þess á árinu 2006 um 26 milljarðar króna. Íslandsbanki hafði umsjón með söluferlinu. Hinir nýju eigendur skilja fjárfestingarfélagið Ker eftir með hugsanlegar sektargreiðslur vegna samráðs olíufélaganna um verðlagningu. Innlent 7.2.2006 09:37
Dagsbrún skilar 700 milljóna króna hagnaði Dagsbrún, sem á 365 miðla og þar með NFS, keypti í dag allt hlutafé Senu. Ársuppgjör félagsins var einnig birt í dag en samkvæmt því skilaði Dagsbrún liðlega 700 milljóna króna hagnaði eftir skatta. Innlent 6.2.2006 20:01
Kaupverð um 3,6 milljarðar króna Dagsbrún hf. hefur skrifað undir samning um kaup á öllu hlutafé Senu, með fyrirvara um samþykki samkeppnisyfirvalda. Sena er hluti af Degi Group og með kaupunum fylgir tónlistarútgáfa, umboð fyrir tölvuleiki, tónlist og kvikmyndir, bíórekstur, hljóðver, tónlistarveitan tónlist.is og allur annar rekstur Dags Group sem heyrir undir afþreyingarsvið. Kaupverð er um 3,6 milljarðar króna. Viðskipti innlent 6.2.2006 18:51
Gjaldeyrisforði Seðlabankans jókst um 1,2 milljarða Gjaldeyrisforði Seðlabanka Íslands jókst um 1,2 milljarða króna í janúarmánuði og nam hann 68,5 milljörðum króna í lok mánaðarins. Aukning gjaldeyrisforðans er tilkomin vegna reglubundinna kaupa Seðlabankans á gjaldeyri á innlendum markaði. Innlent 6.2.2006 17:35
Baugur vill kaupa Thorntons Baugur hafi augastað á breska smásölufyrirtækinu Thorntons sem rekur súkkulaðiverslanir. Talið er að forsvarsmenn Baugs sjái þar mögleika á samstarfi milli Thorntons, te og kaffiverslana Whittards of Chelsea, sem Baugur hefur gert yfirtökutilboð í, og heilsuverslanna Julians Graves, sem Baugur á meirihluta í. Innlent 2.2.2006 22:00
Íslandsbanki og Landsbanki hækka vexti Íslandsbanki og Landsbankinn hafa farið að fordæmi KB banka og hækkað vexti af óverðtryggðum inn- og útlánum. Hækkun allra bankanna nemur um það bil 0,25 prósentustigum og allir segjast þeir hafa hækkað vexti vegna þess að Seðlabankinn hækkaði stýrivexti nýverið. Innlent 2.2.2006 07:20
Bankar veikari en uppgjör benda til Tvö erlend greiningarfyrirtæki gagnrýna lánshæfismat íslensku bankanna í nýjum skýrslum og telja hana eiga að vera skör lægri. Gengishagnaður er sagður gera það að verkum að staða þeirra sé veikari en uppgjör þeirra benda til. Bankarnir segja afkomuna góða þótt gengishagnaður sé ekki talinn með. Viðskipti innlent 2.2.2006 08:45
Icelandic Group segir upp öllum starfsmönnum í Hamborg Icelandic Group, sem áður hét Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna, hefur sagt upp öllum 22 starfsmönnum söluskrifstofunnar í Hamborg, vegna endurskipulagningar og í sparnaðarskyni, segir í tilkynningu frá félaginu. Innlent 1.2.2006 12:07
Methagnaður Íslandsbanka Íslandsbanki kynnti í dag uppgjör sitt fyrir árið 2005. Var hagnaður fyrirtækisins rúmir nítján milljarðar eftir skatta og arðsemi eigin fjár 30 prósent. Hagnaðurinn jókst um 60 prósent á milli ára en var 12 milljarðar árið 2004. Fyrirtækið skilaði skatttekjum upp á um 4,3 milljarða til ríkissjóðs. Innlent 31.1.2006 16:40
Þrír bankar hagnast yfir 100 milljarða Hagnaður Landsbanka Íslands í fyrra nærri tvöfaldaðist frá fyrra ári og hefur aldrei verið meiri. Samanlagður hagnaður þeirra þriggja stóru banka sem birt hafa afkomutölur sínar í fyrra nemur meira en hundrað milljörðum króna. Innlent 27.1.2006 23:23
Landsbankinn hagnaðist um 25 milljarða í fyrra Hagnaður Landsbanka Íslands í fyrra nærri tvöfaldaðist frá fyrra ári, úr 12,7 milljörðum króna í 25 milljarða. Í afkomutilkynningu frá bankanum kemur enn fremur fram að hreinar vaxtatekjur hafi numið 22,9 milljörðum króna samanborið við 14,7 milljarð króna á árinu 2004 og jukust þær um 56 prósent. Innlent 27.1.2006 17:59
Högnuðust um 80 milljarða samanlagt Samanlagður hagnaður KB banka og Straums-Burðaráss nam tæpum áttatíu milljörðum króna í fyrra. Til samanburðar má geta þess að það kostar ríkið um sextíu milljarða króna að reka sjúkrahús, heilbrigðisstofnanir og öldrunarheimili landsins á þessu ári. Innlent 26.1.2006 20:07
Högnuðust um 27 milljarða króna Straumur-Burðarás hagnaðist um nær 27 milljarða króna á síðasta ári, þar af er nær helmingur hagnaðarins tilkomin af síðustu þremur mánuðum síðasta árs. Innlent 26.1.2006 15:24
Iceland Express komið í sölu Söluferli á flugfélaginu Iceland Express er hafið og eru væntanlegir kaupendur búnir að fá útboðsgögn í hendur. Að sögn Sigurjóns Pálssonar hjá KB Banka eru áhugasamir kaupendnur vel á anna tug og meirihluti þeirra séu innlendir aðilar. Viðskipti innlent 26.1.2006 14:05
Gullgrafaraæði grípur um sig í FlyMe Það rignir inn tilboðum frá einstaklingum, segir verðbréfamiðlari um sænska lággjaldaflugfélagið FlyMe en íslenskir fjárfestar, smáir sem stórir, hafa streymt inn í félagið að undanförnu samkvæmt upplýsingum Markaðarins. Viðskipti innlent 24.1.2006 17:51
Actavis kaupir Fako allt Actavis hefur keypt 11 prósenta hlut í tyrkneska samheitalyfjafyrirtækinu Fako fyrir 20,4 milljónir Bandaríkjadala. Fako er nú að fullu í eigu Actavis, en í desember 2003 keypti Actavis 89 prósenta hlut í fyrirtækinu fyrir 63 milljónir dala. Viðskipti innlent 23.1.2006 13:22
Hörð samkeppni Íslendinga erlendis Allt stefnir í harða samkeppni íslenskra fyrirtækja á fasteignamarkaðnum á meginlandi Evrópu þar sem Baugur og Straumur-Burðarás munu takast á. Innlent 20.1.2006 12:22
Mikil hækkun á Avion við skráningu Verðmæti Avion Group jókst um tæpa tuttugu milljarða króna á fyrstu mínútunum eftir opnun Kauphallar Íslands í morgun. Avion er lang stærsta fyrirtækið sem skráð hefur verið í Kauphöllina en skráning þess hófst þar í morgun. Innlent 20.1.2006 11:56
Næst lægst verðbólga hér Pólland er eina ríkið á Evrópska efnahagssvæðinu þar sem verðbólga er lægri en á Íslandi samkvæmt samræmdri vísitölu neysluverðs. Verðbólgan mælist samkvæmt þessu eitt prósent á Íslandi frá desember 2004 til desember 2005 en 0,8 prósent í Póllandi. Innlent 20.1.2006 09:14
28 milljarða hagnaður Baugs Baugur Group hagnaðist um 28 milljarða króna eftir skatta á síðasta ári. Þar af eru fimmtán milljarðar króna í formi innleysts hagnaðar. Eignir Baugs í árslok voru bókfærðar á 145 milljarða króna og eigið fé var 62,9 milljarðar. Innlent 20.1.2006 07:11
Keyptu í lettneskum banka Íslenskir fjárfestar hafa keypt sextíu prósent í Lateko-banka í Lettlandi. Eignir bankans, sem rekur tíu útibú, nema um þrjátíu milljörðum króna. Viðskipti innlent 18.1.2006 21:18
Úrvalsvísitala Kauphallarinnar lækkar Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands lækkaði um tvö komma sextíu og eitt prósent í dag. En hlutabréf fyrirtækja í Úrvalsvísitölunni hafa hækkað hratt frá áramótum eða um tíu prósent. Innlent 18.1.2006 21:14
Össur kaupir Innovation Sports Össur hf. hefur fest kaup á bandaríska stuðningstækinu Innovation Sports, Inc. og er kaupverðið fyrir 38,4 milljónir Bandaríkjadala eða hátt í 2,4 milljarðar íslenskra króna. Í tilkynningu frá Össuri vegna kaupanna segir að Innovation Sports sé forystufyrirtæki á sviði þróunar og framleiðslu á liðbandaspelkum. Össur tekur við rekstri Innovation Sports frá og með deginum í dag. Innlent 18.1.2006 17:00
Íslenskir fjárfestar kaupa tíunda stærsta banka Lettlands Íslenskir fjárfestar, þar á meðal félag í eigu forstjóra Norvíkur, hafa fest kaup á ráðandi hlut í tíunda stærsta banka Lettlands, Lateko-banka. Eignir hans nema 30 milljörðum króna og hjá honum starfa 550 manns. Bankinn rekur skrifstofur í Lundúnum og Moskvu. Innlent 18.1.2006 13:31
Íslensk erfðagreining kaupir Urði Verðandi Skuld Íslensk erfðagreining greindi í dag frá kaupum á líftæknifyrirtækinu Urði Verðandi Skuld af Iceland Genomics Corporation Inc. Íslensk erfðagreining greiðir kaupverðið, um 350 milljónir íslenskra króna, með hlutabréfum í deCODE genetics Inc. Markmið kaupanna er að efla rannsóknir á erfðafræði krabbameina sem vonast er til að leiði til aukins skilnings á líffræðilegum orsökum þeirra og nýrra aðferða til að greina og meðhöndla krabbamein. Innlent 18.1.2006 13:28
Hagnaður eykst um 135% Hagnaður 16 helstu félaganna í Kauphöll Íslands, fyrir utan KB banka, eykst um 135% á milli áranna 2004 og 2005 að mati Greiningadeildar KB banka. Í spá bankans er gert ráð fyrir mun minni aukningu á árinu 2006. Innlent 17.1.2006 22:13
Gengi bréfa í deCode hækkuðu Gengi bréfa deCode hækkuðu talsvert á NASDAQ-markaðinum í Bandaríkjunum í dag. Hækkunina má rekja til yfirlýsingar fyrirtækisins um að tekist hafi að einangra erfðabreytileika sem eykur hættu á sykursýki. Innlent 17.1.2006 16:56
Pálmi eykur hlut sinn í Ticket Pálmi Haraldsson, stjórnarformaður eignarhaldsfélagsins Fons, heldur áfram að kaupa í sænsku ferðaskrifstofunni Ticket en samkvæmt sænska viðskiptablaðinu Näringsliv 24 á hann nú yfir fimmtungshlut í fyrirtækinu. Viðskipti innlent 17.1.2006 07:35