Viðskipti
58 59 60 61 62 63 64 65 66 … 223 ›
Straumur-Burðaráss orðinn viðskiptabanki Fjármálaeftirlitið veitti Straumi-Burðarás Fjárfestingabanka starfsleyfi sem viðskiptabanki í gær. Meginbreytingin felst í því að hér eftir hefur Straumur Burðarás heimild til þess að taka við innlánum frá viðskiptavinum og eru íslensku viðskiptabankarnir því orðnir fimm talsins. Viðskipti innlent 29.8.2007 12:33
Líkur á hægari útlánavexti Hægt hefur lítillega á útlánavexti ýmissa lánafyrirtækja það sem af er ári þrátt fyrir nokkra aukningu í júní og júlí. Greiningardeild Glitnis telur líkur á að dýrara fjármagn og líkur á verra aðgengi að lánsfé muni draga frekar úr útlánavexti. Viðskipti innlent 29.8.2007 11:26
Hækkun og lækkun á hlutabréfamörkuðum Gengi hlutabréfavísitalna hefur sveiflast nokkuð á hlutabréfamörkuðum í Evrópu í dag en margar þeirra stóðu á rauðu við opnun viðskipta. Vísitölurnar hafa hækkað lítillega í helstu löndum að Danmörku og Frakklandi undanskildu. Ísland virðist fylgja þeim en Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 0,2 prósent það sem af er dags. Gengi bréfa í Eimskipafélaginu hefur lækkað mest í Kauphöllinni í morgun. Viðskipti innlent 29.8.2007 11:09
Hagnaður eykst hjá Sparisjóði Vestfirðinga Hagnaður Sparisjóðs Vestfirðinga nam 822 milljónum króna á fyrstu sex mánuðum ársins samanborið við 217 milljónir króna á sama tíma í fyrra. Þetta er tæp fjórföldun á milli ára. Tekið er fram í árshlutauppgjöri sjóðsins að við innleiðingu alþjóðlegra reikningsskilastaðla hækkaði eigið fé hans um 512 milljónir króna. Viðskipti innlent 29.8.2007 10:41
EMI skiptir um eigendur í september Eric Nicoli, forstjóri breska útgáfurisans EMI, ætlar að yfirgefa forstjórastólinn þegar nýir eigendur taka við félaginu í næsta mánuði. Félagið hefur átt við mikinn rekstrarvanda að stríða vegna minnkandi geisladiskasölu og fór í söluferli fyrr á árinu. Úr varð að fjárfestingafélagið Terra Firma keypti útgáfufélagið í maí fyrir 2,4 milljarða punda, jafnvirði rúmra 300 milljarða íslenskra króna. Viðskipti erlent 29.8.2007 10:29
Landsbankinn á 10% í Kauphöllinni í Ósló Landsbankinn hefur eignast tíu prósenta hlut í Oslo Børs Holding ASA, eignarhaldsfélagi Kauphallarinnar í Ósló. Markaðsvirði Oslo Børs Holding nam tæpum fjörutíu milljörðum króna í gærmorgun og er hlutur Landsbankans því metinn á um fjóra milljarða króna. Viðskipti innlent 29.8.2007 09:54
Dregur úr væntingum Þjóðverja Væntingavísitalan í Þýskalandi lækkaði nokkuð á milli mánaða og hafa Þjóðverjar ekki verið svartsýnni um horfur á næstu mánuðum í hálft ár og nú. Ástæðan fyrir þessu eru þrengingar á bandarískum fasteignamarkaði og spár um að það geti dregið úr hagnaði fyrirtækja og hagvexti á heimsvísu. Viðskipti erlent 29.8.2007 09:27
Lækkun í Evrópu og Asíu Gengi hlutabréfa í Evrópu og Asíu lækkaði nokkuð á fjármálamörkuðum í álfunum í morgun. Þetta er í takt við lækkun á bandarískum hlutabréfamörkuðum í gær vegna samdráttar á bandarískum fasteignamarkaði og verri lausafjárstöðu fjármálafyrirtækja. Óttast er að samdrátturinn geti leitt til þess að hagvöxtur í Bandaríkjunum dragist saman vegna þessa. Viðskipti erlent 29.8.2007 09:11
Bakslag í Bandaríkjunum Helstu vísitölur á bandarískum hlutabréfamarkaði féllu um rúm tvö prósent við lokun markaða í dag. Helstu ástæðurnar fyrir lækkuninni eru minni væntingar neytenda vestanhafs nú en áður í skugga samdráttar á bandarískum fasteignamarkaði. Þá dvína vonir fjárfesta um að bandaríski seðlabankinn kæmi til móts við þrengingar á fjármálamarkaði með lækkun stýrivaxta. Viðskipti erlent 28.8.2007 20:37
Bandarískir neytendur svartsýnir Væntingavísitala bandarískra neytenda tók dýfu í mánuðinum en hún hefur ekki fallið jafn mikið á milli mánaða í tvö ár. Fréttveita Bloomberg segir þetta sýna að neytendur vestanhafs séu svartsýnni nú en áður um horfur í efnahagsmálum vegna viðvarandi lækkunar á fasteignaverði auk þess sem erfiðara er nú en áður að fjármagna fasteignakaup. Viðskipti erlent 28.8.2007 15:28
Rauður dagur að mestu í Kauphöllinni Gengi hlutabréfa lækkaði nokkuð við lokun viðskipta í Kauphöllinni í dag. Gengi bréfa í Flögu lækkaði mest, eða um rúm fjögur prósent. Einungis gengi bréfa í Marel og Atorku hækkaði en gengi annarra félaga ýmist lækkaði eða stóð í stað. Gengi Úrvalsvísitölunnar lækkaði 1,61 prósent og stendur hún í 8.171 stigi. Viðskipti innlent 28.8.2007 15:43
MP Fjárfestingabanki skilar metafkomu MP Fjárfestingabanki skilaði methagnaði á fyrstu sex mánuðum arsins. Hagnaður nam 1.118 milljónum króna samanborið við 576,6 milljónir króna á sama tíma í fyrra. Þetta er 94 prósenta aukning á milli ára. Viðskipti innlent 28.8.2007 15:02
Samruni Scania, Man og Volkswagen á salt Sænski fjárfestirinn Peter Wallenberg hefur hætt við samruna sænska vöruflutningabílaframleiðandans Scania, MAN og hluta af þýska fyrirtækinu Volkswagen í bili. Gert hafði verið ráð fyrir að úr samrunanum yrði til nýr framleiðandi vöruflutningabíla. Viðskipti erlent 28.8.2007 14:48
Rauður dagur í Bandaríkjunum Gengi hlutabréfa lækkaði nokkuð við lokun fjármálamarkaða í Bandaríkjunum í dag eftir að gögn sýndu að endursala á fasteignum dróst saman í síðasta mánuði. Salan hefur minnkað jafnt og þétt síðan á vordögum þegar samdráttar á fasteignalánamarkaði vestra varð fyrst vart og hefur salan ekki verið með dræmara móti í fimm ár. Þá hefur fasteignaverð sömuleiðis lækkað síðastliðna 12 mánuði. Viðskipti erlent 27.8.2007 20:13
Teymi hækkaði mest í Kauphöllinni Gengi hlutabréfa í Teymi hefur hækkað langmest skráðra félaga í Kauphöllinni eða um 16 prósent síðustu sjö viðskiptadaga. Þar af hækkaði gengið um rúm sex prósent í dag. Á sama tíma bætti Úrvalsvísitalan við sig 0,26 prósentum en hún stendur nú í 8.305 stigum. Viðskipti innlent 27.8.2007 15:39
LME skoðar yfirtöku á Stork-samstæðunni Marel hefur hug á að kaupa allt hlutafé hollensku iðnsamsteypunnar Stork en ekki einungis matvælavélavinnsluhluta hennar. Þetta kom fram á hluthafafundi í Stork sem fram fór í dag en lögmaður LME eignarhaldsfélags, sem Marel á fimmtungshlut í á móti Eyri Invest og Landsbankanum, sagði félagið skoða alla möguleika. Yfirtökutilboð sem gert hefur verið í Stork hljóðar upp á rúma 133 milljarða króna. Viðskipti innlent 27.8.2007 13:26
Hagnaður Eikar tífaldaðist á milli ára Fasteignafélagið Eik, sem er í eigu FL Group, Baugs Group, Saxbyggs og Fjárfestingafélagsins Primusar ehf., skilaði hagnaði upp á tvo milljarða króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Þetta er tæp tíföldun á milli og besta afkoman á fyrstu sex mánuðum ársins í sögu fyrirtækisins. Viðskipti innlent 27.8.2007 09:27
Rio Tinto fær grænt ljós í Bandaríkjunum Ál- og námafyrirtækið Rio Tinto hefur fengið græna ljósið hjá bandarískum samkeppnisyfirvöldum til að kaupa kanadíska álrisann Alcan, sem meðal annars er móðurfélag álversins í Straumsvík. Tilboðið Rio Tinto hljóðar upp á 38,1 milljarð dala, um 2.500 milljarða íslenskra króna. Til samanburðar hljóðaði tilboð bandaríska álrisans Alcoa í Alcan upp á 27 milljarða dala. Viðskipti erlent 27.8.2007 09:15
Nokkrir sitja um hlut Nasdaq í LSE Nokkrar af helstu kauphöllum Evrópu og asískur fjárfestingasjóður hafa kannað möguleikann á því að kaupa hlut bandaríska hlutabréfamarkaðarins Nasdaq í kauphöllinni í Lundúnum í Bretlandi (LSE). Nasdaq á 31 prósents hlut í LSE en hefur ekki ákveðið hvort helmingur hlutarins eða meira verði seldur. Á meðal hugsanlegra kaupenda er kauphöllin í Dubai. Viðskipti erlent 26.8.2007 21:37
Efnahagslífinu stafar ógn af efnalitlu fólki Hryðjuverk eru ekki lengur það sem bandaríski hagfræðingar óttast mest í augnablikinu. Þeir telja efnalitla einstaklinga með litla greiðslugetu sem lenda í vanskilum með afborganir af lánum sínum geta skaðað efnahagslífið meira. Viðskipti erlent 25.8.2007 10:30
Góður endir á vikunni Fjárfestar í Bandaríkjunum virðast hafa verið bjartsýnni í gær en aðra daga vikunnar en hækkun var á helstu hlutabréfavísitölum við lokun fjármálamarkaða á Wall Street í gær. Tölur viðskiptaráðuneytisins vestra um aukna sölu á nýjum fasteignum í skugga samdráttar á fasteignalánamarkaði og aukin eftirspurn eftir varanlegum neysluvörum er helsta ástæða hækkunarinnar. Viðskipti erlent 25.8.2007 10:04
Landsbankinn spáir aukinni verðbólgu Greiningardeild Landsbankans spáir því að vísitala neysluverðs hækki talsvert í september, eða um 1,4 prósent. Gangi það eftir mun verðbólga fara úr 3,4 prósentum í 4,3 prósent. Viðskipti innlent 24.8.2007 16:41
Gengi krónu styrkist í kjölfar veikingar Gengi krónunnar hefur styrkst á nýjan leik eftir snarpa veikingu síðustu vikur samfara óróa á alþjóðamörkuðum. Greiningardeild Landsbankans segir endurheimt jafnvægi á mörkuðum ytra muna endurvekja hneigð til styrkingar. Viðskipti innlent 24.8.2007 16:13
Úrvalsvísitalan lækkaði lítillega Úrvalsvísitalan lækkaði lítillega eftir nokkuð sveiflukenndan dag við lokun viðskipta í Kauphöllinni. Þetta er í takti við alþjóðlega hlutabréfamarkaði í dag en vísitölur enduðu beggja vegna núllsins í Evrópu. Gengi bréfa í Teymi hækkaði mest í dag, eða um 4,31 prósent. Bréf í Kaupþingi lækkaði hins vegar mest, eða 1,27 prósent. Viðskipti innlent 24.8.2007 15:36
Faldi hagnað af sölu hlutabréfa Héraðsdómsstóll í Tókýó í Japan dæmdi í dag sextuga konu í 18 mánaða skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu sektar vegna skattsvika. Konan varði arfi eftir móður sína til hlutabréfakaupa og græddi jafnvirði rúmra tvö hundruð milljóna íslenskra króna á viðskiptunum. Stóran hluta af hagnaðinum faldi hún fyrir skattayfirvöldum á ýmsum reikningum í nafni skyldmenna sinna. Viðskipti erlent 24.8.2007 14:51
BNP Paribas opnar fyrir sjóði á ný Franski bankinn BNP Paribas ætlar að opna fyrir þrjá af sjóðum sínum í næstu viku. Bankinn skrúfaði fyrir sjóðina í byrjun ágúst af ótta við lausafjárskorts vegna samdráttar á bandarískum fasteignalánamarkaði. Christine Lagarde, fjármálaráðherra Frakklands, segir skellinn í Bandaríkjunum ekki hafa teljandi áhrif á fransk efnahagslíf og hvetur franska banka til að halda ekki aftur af lánveitingum. Viðskipti erlent 24.8.2007 14:16
Hveitiverð í hæstu hæðum Kílóverð á hveiti stendur í sögulegum hæðum þessa stundina en slæmt veðurfar í kornræktarlöndum í Ameríku og Evrópu hefur leitt til þess að hveitibirgðir hafa dregist saman. Eftirspurnin eftir hveiti er hins vegar umfram framboð og getur það leitt til þess að brauðmeti og aðrar vöru úr hveiti geti hækkað í verði. Viðskipti erlent 24.8.2007 12:54
Aukið tap hjá Atlantic Petroleum Færeyska olíuleitarfélagið Atlantic Petroleum, sem skráð er á markað í Kauphöllinni, tapaði 39,3 milljónum danskra króna, um 470,5 milljónum íslenskra króna, á fyrstu sex mánuðum ársins. Þetta er talsvert meira tap en á sama tíma í fyrra þegar fyrirtækið tapaði jafnvirði 76 milljónum króna. Mestur hluti tapsins kom til á öðrum fjórðungi ársins. Viðskipti innlent 24.8.2007 12:33
Gengi hlutabréfa lækkar í Kauphöllinni Gengi hlutabréfa í fjármálafyrirtækjum hefur lækkað nokkuð í Kauphöllinni í dag. Þetta er í takt við lækkun á erlendum hlutabréfamörkuðum. Gengi bréfa í Landsbankanum leiðir lækkunina nú en verðið hefur lækkað um 2,21 prósent það sem af er dags. Fast á hæla bankans fylgir gengi bréfa í Straumi-Burðarási, FL Group og Glitni. Viðskipti innlent 24.8.2007 11:05
Slitinn ljósleiðari truflar markaðsvakt Ljósleiðari slitnaði í Kópavogi í morgun með þeim afleiðingum að einstaklingar og einhverjir bankar og fjármálafyrirtæki hafa ekki fengið upplýsingar um viðskipti í Kauphöllinni í dag. Upplýsingafyrirtækið Teris heldur utan um viðskiptin fyrir Markaðsvakt Mentis og nær hugbúnaðurinn ekki að tengjast grunni Teris, sem vistaður er í Kópavogi. Truflunin hefur hins vegar ekki áhrif á viðskipti í Kauphöllinni. Viðskipti innlent 24.8.2007 10:33
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti