

Gamla kempan Andre Agassi er kominn í fjórðungsúrslit á Opna Bandaríska Meistaramótinu í tennis eftir að hann lagði Xavier Malisse, 6-3, 6-4, 6-7 (5-7), 4-6 og 6-2 í gærkvöldi.
Spænski ökuþórinn Fernando Alonso hjá Renault segist alls ekki vera farinn að fagna meistaratitli ökumanna í Formúlu eitt, þó hann hafi 27 stiga forystu á næsta mann þegar aðeins 40 stig eru eftir í pottinum.
Fyrsta umferðin í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik fór fram um helgina. Magdeburg tapaði fyrir Wetzlar, 35-34, Róbert Sighvatsson skoraði 2 mörk fyrir Wetzlar, Sigfús Sigurðsson skoraði eitt fyrir Magdeburg.
Brasilía tryggði sér farseðilinn á heimsmeistaramótið í Þýskalandi í gærkvöldi þegar liðið kjöldró Chile á heimavelli með fimm mörkum gegn engu. Adriano skoraði þrennu og Robinho og Juan sitt markið hvor.
Heimsmeistarinn Michael Schumacher hjá Ferrari hefur óskað Spánverjanum Fernando Alonso til hamingju með titil ökumanna, þrátt fyrir að enn séu nokkrar keppnir eftir af tímabilinu.
Ari Gunnarsson, 21 árs gamall sundmaður úr Ármanni, hefur verið úrskurðaður í tveggja ára keppnisbann eftir að hafa fallið á lyfjaprófi sem hann fór í þegar hann keppti í bikarkeppni Sundsambandsins í júlí.
Um helgina var háð hér á landi hin árlega hjólreiðalandskeppni milli Íslendinga og Færeyinga, þar sem fremstu hjólreiðagarpar þjóðanna etja kappi. Það voru Íslendingar sem hrósuðu sigri þetta árið, eftir að þeir færeysku höfðu haft betur þrjú ár í röð.
Íslenska landsliðið í knattspyrnu lenti á flugvellinum í Sofíu í Búlgaríu fyrir klukkutíma en liðið leikur gegn heimamönnum á miðvikudag. Að sögn Loga Ólafssonar landsliðsþjálfara verður æfing síðdegis og síðan ein æfing á morgun.
Pedro de la Rosa, tilraunaökumaður McLaren-liðsins ók hraðast allar á æfingu á Monza-brautinni á Ítalíu en þar fer fram keppni í Formúlu 1 um helgina. Tími hans í dag var sekúndu betri en brautarmetið sem Rubins Barrichello setti í keppninni þar í fyrra. Mark Webber varð annar í dag - 1,4 sekúndu á eftir de la Rosa.
Íslenska kvennalandsliðið í blaki tapaði fyrir Egyptalandi 3-0 í öðrum leik á 4 landa móti í Nígeríu í gærkvöld. Egyptar unnu fyrstu hrinuna með aðeins 3 stigum, 25-22, en hinar næstu voru ekki eins spennandi. Önnur hrinan endaði 25-9 og sú þriðja 25-14. Á morgun leika Íslendingarnir við svo við Englendinga en þær unnu Nígeríu í gær, 3-0.
Brasilíumaðurinn Fabio Rochemback var í gær seldur frá Barcelona til Middlesbro. Barcelona keypti Rochemback á 770 milljónir króna í júlí 2001 en honum gekk illa að vinna sér fast sæti í liðinu. Hann var því lánaður til Sporting. Middlesbro þarf aðeins að borga 116 milljónir króna fyrir leikmanninn.
Lawrie Sanchez landsliðsþjálfari Norður Íra hefur rekið 2 leikmenn úr landsliðshópnum fyrir drykkjuskap. Jeff Whitley og Phil Mulryne leikmann Cardiff City duttu í það í gær þegar flugi þeirra frá Cardiff til Belfast var frestað. Þegar þeir skiluðu sér á hótel landsliðsins voru þeir búnir að missa af fyrstu æfingunni og héldu þá áfram að sitja á sumbli.
Real Madríd keypti í gær spænska varnarmanninn, Sergio Ramos frá Sevilla og borgaði fyrir hann rúma 2 milljarða króna. Real Madríd notaði því fjárhæðina sem félagið fékk fyrir söluna á Michael Owen og þurfti að bæta við 165 milljónum króna að auki.
Björgvin Björgvinsson sigraði í svigkeppni í Ástralíu í morgun. Sindri Már Pálsson varð sjöundi og Kristinn Ingi Valsson áttundi. Kristján Uni Óskarsson keyrði út úr brautinni í seinni ferðinni. Björgvin Björgvinsson hefur forystu í stigakeppni þessa móts en þarna keppa skíðamenn aðallega frá Nýja Sjálandi og Ástralíu.
Amerísku fótboltasamtökin, NFL, gáfu í gær eina milljón bandaríkjadala eða 63 milljónir íslenskra króna til hjálpar og uppbyggingarstarfs eftir eyðileggingu af völdum fellibylsins Katrínar.
Liverpool mistókst að ganga frá kaupum á nýjum leikmönnum áður en félagaskiptaglugginn lokaðist í gær. Portúglalski útherjinn Simao Sabrosa var á leið til Liverpool í gær fyrir 10 milljónir punda.
Þóra B. Helgadóttir, markvörður A landsliðs kvenna í knattspyrnu, var valin maður leiksins í viðureign Svíþjóðar og Íslands í undankeppni HM 2007 síðastliðinn sunnudag, en liðin mættust í Karlskoga í Svíþjóð. Í viðurkenningarskyni fékk Þóra afhenta forláta ryksugu að gjöf frá aðstandendum leiksins.
Íslenska kvennalandsliðið í blaki tapaði í gær fyrir Nígeríu í 4 hrinum í fyrsta leik sínum á fjögurra landa móti sem fram fer í Nígeríu. Íslenska liðið vann fyrstu hrinuna, 25-23, en tapaði þremur næstu, 25-10, 25-13 og 25-14. Íslenska liðið mætir Egyptum í dag en þeir lögðu Englendinga í gær, 3-0.
Óvænt úrslit urðu á opna Bandaríska meistaramótinu í tennis í gærkvöldi þegar Bandaríkjamaðurinn Andy Roddick féll úr keppni í fyrstu umferðinni. Roddick beið lægri hlut fyrir Gilles Muller frá Lúxemborg. Muller vann þrjár lotur allar 7-6. Roddick sigraði á opna Bandaríska mótinu fyrir tveimur árum.
Bestu bresku tenniskapparnir Tim Henman og Greg Rusedski eru báðir úr leik strax í fyrstu umferð á Opna bandaríska meistaramótinu í tennis. Henman tapaði fyrir Spánverjanum Fernando Verdasco í þremur settum og Rusedski tapaði fyrir Bandaríkjamanninum James Blake í fjórum settum.
Nú er sem allur vindur sé úr heimsmeistara Michael Schumacher, því hann viðurkenndi í viðtali að Ferrari ætti tæplega möguleika á verðlaunasæti á Monza brautinni á Ítalíu um helgina.
Íslendingar unnu til þrennra verðlauna á Norðurlandamóti unglinga í frjálsum íþróttum í Noregi í gær. Þorsteinn Ingvarsson HSÞ vann sigur í langstökki, stökk 7,11 metra. Ragnheiður Anna Þórsdóttir FH var í 2.sæti í kringlukasti með 45,22 metra.
Þorsteinn Ingvarsson, efnilegur frjálsíþróttamaður úr Bárðardal í Suður-Þingeyjarsýslu, vann um helgina keppni í langstökki á Norðurlandameistaramóti unglinga sem fram fer í Kristiansand í Noregi. Sigurstökk Þorsteins var upp á 7,11 metra en hann á best 7,38, en því náði hann í fyrra aðeins sextán ára gamall.
Kvennalandsliðið í knattspyrnu leikur gegn Svíum í dag í undankeppni fyrir heimsmeistaramótið árið 2007. Sænska liðið er eitt það sterkasta í heiminum og ljóst er að leikurinn verður gríðarlega erfiður fyrir íslenska liðið enda eru Svíar á heimavelli.
QPR og Sheffield Wednesday gerðu markalaust jafntefli í ensku fyrstu deildinni í knattspyrnu í gærkvöldi. Reading lið Brynjars Björns Gunnarssonar og Ívars Ingimarssonar mætir Watford á útivelli í dag og verður leikurinn í beinni útsendingu á Sýn klukkan 16.05 en Reading er í efsta sæti deildarinnar með níu stig en Watford í fimmta með sjö stig.
Þórey Edda Elísdóttir lenti í sjöunda sæti á gullmóti Alþjóðafrjálsíþróttasambandsins í Brussel í gærkvöldi. Hún stökk 4,33. Heimsmethafinn Jelena Isinbajeva sigraði stökk 4 metra og 93 sentimetra og var nokkuð frá heimsmeti sínu. Kenensia Bekele frá Eþiópíu bætti eigið heimsmet í 10.000 metra hlaupi um tæpar þrjár sekúndur. Hann hljóp á á 26 mínútum, 17.53 sekúndum.
Síðasta keppnin á mótaröðinni Sterkasti maður Íslands fór fram um helgina, en keppnin bar heitið Suðurnesjatröllið 2005. Keppnin hófst með látum í Hafnarfirði á föstudaginn, en þaðan lá leiðin í Garðinn og lokaátökin fóru fram í Grindavík.
Liverpool tryggði sér ofurbikar Evrópu, Super Cup, í þriðja skipti eftir sigur á CSKA Moskvu, 3-1, í Mónakó í gærkvöldi í árlegur leik meistara Evrópumótanna í knattspyrnu. Rússarnir komust yfir í fyrri hálfleik með marki Daniels Carvalho.
Nú stendur yfir keppni í Suðurnesjatröllinu en þetta er síðasta mót sumarsins í keppninni um sterkasta mann Íslands. Kraftajötnarnir byrja í dag kl 13:30 við Vitann í Garði og þar verður keppt í Drumbalyftu og Hleðslu síðan fara kapparnir til Grindavíkur klukkan fjögur og keppa í lóðkasti yfir rá og helluburði.
Síðasta keppnin á mótaröðinni Sterkasti maður Íslands verður háð nú um helgina, en hún ber heitið Suðurnesjatröllið 2005. Þar verða samankomnir margir af hrikalegustu aflraunamönnum landsins, með þá Auðun "Verndara" Jónsson og Kristin "Boris" Haraldsson í fararbroddi.