Innlendar
52 53 54 55 56 57 58 59 60 … 75 ›
Átta mörk í fyrri hálfleik Nú er kominn hálfleikur í leikjunum fjórum sem standa yfir í Landsbankadeild karla. Staðan í leik Blika og Fylkis í Kópavogi er jöfn 2-2, Grindvíkingar hafa yfir 2-0 gegn KR, ÍBV er yfir 2-0 gegn Skagamönnum í Eyjum og markalaust er hjá Víkingi og FH. Sport 22.6.2006 20:12
Áttunda umferðin að hefjast Áttundu umferð Landsbankadeildar karla lýkur nú í kvöld með fjórum leikjum sem hefjast allir klukkan 19:15 og fylgst verður með gangi mála á Boltavaktinni hér á Vísi. Breiðablik tekur á móti Fylki, Grindavík fær KR í heimsókn, Skagamenn fara til Eyja og þá taka Víkingar á móti Íslandsmeisturum FH í Fossvoginum. Sport 22.6.2006 19:05
Steindautt jafntefli á Laugardalsvelli Valsmenn og Keflvíkingar skildu jafnir 0-0 í fyrsta leik 8. umferðarinnar í Landsbankadeild karla í knattspyrnu í kvöld. Leikurinn var spilaður við kjöraðstæður í blíðunni í Laugardalnum, en engin mörk litu dagsins ljós og liðin skiptu með sér stigunum. Áttundu umferðinni lýkur annað kvöld. Sport 21.6.2006 22:57
Valur - Keflavík að hefjast Einn leikur er á dagskrá í Landsbankadeild karla í knattspyrnu í kvöld. Valsmenn taka á móti Keflvíkingum á Laugardalsvelli og er þetta fyrsti leikurinn í áttundu umferð deildarinnar, sem klárast svo annað kvöld. Valsmenn eru í 6. sæti deildarinnar með 10 stig og Keflvíkingar í því 7. með 7 stig. Sport 21.6.2006 19:05
Svíar ekki með á HM í handbolta í fyrsta sinn Svíar verða ekki með á HM í handbolta í Þýskalandi í næsta ári eftir að þeir töpuðu fyrir Íslandi í umspilsleikjum um sæti. Þetta er mikið áfall fyrir Svía sem hafa þar með misst af þremur af síðustu fjórum stórmótum (Ólympíuleikunum í Aþenu 2004, EM í Sviss 2006 og loks HM í Þýskalandi 2007). Þetta er ennfremur söguleg fjarvera sænska handboltalandsliðsins því þetta verður fyrsta heimsmeistaramót sögunnar þar sem Svíar verða ekki meðal þátttakenda. Sport 17.6.2006 20:57
Tölfræðin úr leiknum gegn Svíum í Höllinni í kvöld Ísland er komið inn á HM í Þýskalandi 2007 eftir 25-26 tap fyrir Svíum í troðfullri Laugardalshöll í seinni umspilsleik þjóðanna. Ísland vann fyrri leikinn í Globen með fjórum mörkum, 32-28, og þar með samanlagt 57-54. Ólafur Stefánsson var markahæstur í íslenska liðinu með sex mörk. Hér á eftir má sjá tölfræðina úr þessum sögulega leik sem var leikinn undir svakalegri stemmningu í Höllinni í kvöld. Sport 17.6.2006 19:30
Eiður Smári samdi við Barcelona Fremsti knattspyrnumaður Íslands í dag, Eiður Smári Guðjohnsen, hefur samið við spænska stórliðið Barcelona til þriggja ára, en félagið er Spánar- og Evrópumeistari. Þar með lýkur sex ára veru Eiðs Smára hjá Chelsea þar sem hann átti farsælan feril. Fótbolti 17.6.2006 00:19
Blikarnir hafa tapað flestum stigum Nýliðar Breiðabliks töpuðu niður forskoti fjórða leikinn í röð í Landsbankadeild karla á Akranesi í gær og eru það lið í deildinni sem hefur tapað langflestum stigum í fyrstu sjö umferðunum. Að tapa stigum telst það þegar lið tapa eða gera jafntefli í leikjum sem þau hafa haft forustu í. Grindvíkingar koma þeim næstir en þeir eru líka það lið sem hefur unnið sér inn flest stig eftir að hafa verið undir í leikjum sínum. Sport 16.6.2006 13:21
Willum Þór ósigraður í Grindavík Willum Þór Þórssyni hefur gengið vel með sín lið þegar hann hefur heimsótt Grindvíkinga þótt ekki hafi Valsmönnum tekist að koma með öll stigin heim úr leik sínum þar í gær. Þetta var sjötti leikur liðs undir stjórn Willums Þór á Grindavíkurvelli og hans lið hafa náð í 14 af 18 stigum í boði eða 78% stiganna. Markatalan er, 7-2, liðum Willums í vil. Sport 16.6.2006 13:13
FH lagði ÍBV Íslandsmeistarar FH lögðu ÍBV 3-1 á heimavelli sínum í Landsbankadeildinni í kvöld. KR lagði Víking 1-0, Skagamenn lögðu Blika 2-1 og Grindavík og Valur skildu jöfn 1-1 í Grindavík. Sport 15.6.2006 21:28
Pétur skoraði eftir 30 sekúndur í Kaplakrika Nú er kominn hálfleikur í leikjunum fjórum sem fara fram í Landsbankadeild karla í kvöld. Staðan í leik FH og ÍBV í Kaplakrika er 1-1. Pétur Runólfsson kom gestunum yfir eftir aðeins 30 sekúndur, en Atli Viðar Björnsson jafnaði á 31. mínútu. Grindvíkingar hafa yfir 1-0 gegn Val í Grindavík þar sem Jóhann Þórhallsson skoraði mark heimamanna. Þá er markalaust hjá KR og Víkingi í vesturbænum, eins og hjá ÍA og Blikum á Skaganum. Sport 15.6.2006 20:28
Kekic hættur hjá Grindavík Hinn fjölhæfi leikmaður Sinisa Kekic, sem leikið hefur með Grindvíkingum í Landsbankadeildinni undanfarin ár, hefur spilað sinn síðasta leik fyrir félagið. Kekic lenti í deilum við þjálfarann Sigurð Jónsson á dögunum, en Sigurður staðfesti þessi tíðindi á fréttavef Víkurfrétta síðdegis í dag. Sport 15.6.2006 19:37
Viktor Bjarki bestur Víkingsmaðurinn Viktor Bjarki Arnarsson var í dag útnefndur besti leikmaður fyrstu sex umferðanna í Landsbankadeild karla í knattspyrnu, en það eru íþróttafréttamenn og fulltrúar Landsbankans sem standa að valinu. Þá var einnig valið úrvalslið umferðanna, besti þjálfarinn og besti dómarinn. Sport 13.6.2006 17:28
Jón Eðvaldsson tekur við kvennaliði Keflavíkur Körfuknattleiksdeild Keflavíkur hefur ráðið Jón Halldór Eðvaldsson sem næsta þjálfara kvennaliðs félagsins. Samningurinn er til tveggja ára og honum til aðstoðar verður Agnar Mál Gunnarsson. Jón hefur áður verið við þjálfun hjá yngri flokkum félagsins. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins í dag. Sport 13.6.2006 16:27
KR lá í Eyjum Tveir leikir fóru fram í Landsbankadeild karla í knattspyrnu í kvöld. ÍBV vann góðan 2-0 sigur á KR með mörkum frá Atla Jóhannssyni og Jonah Long, en Keflvíkingar töpuðu sínum þriðja leik í röð þegar þeir lágu 2-1 fyrir Fylki í Árbænum. Sævar Þór Gíslason skoraði bæði mörk Fylkis, en Guðmundur Steinarsson minnkaði munin í lokin fyrir Keflvíkinga. Sport 12.6.2006 22:28
Markalaust í Árbænum Nú er kominn hálfleikur í viðureign Fylkis og Keflavíkur í Landsbankadeild karla í knattspyrnu, en hvorugu liðinu hefur tekist að skora enn sem komið er. Þá er hinn margfrestaði leikur ÍBV og KR einnig hafinn í Vestmannaeyjum. Sport 12.6.2006 20:07
FH tapaði fyrstu stigum sínum á Kópavogsvelli Íslandsmeistarar FH töpuðu sínum fyrstu stigum í Landsbankadeildinni í sumar þegar liðið varð að gera sér að góðu 1-1 jafntefli gegn skipulögðum Blikum í Kópavogi. Daði Lárusson kom heimamönnum yfir með sjálfsmarki um miðbik leiksins, en Tryggvi Guðmundsson jafnaði fyrir gestina á 70. mínútu. Skömmu síðar var Guðmundi Sævarssyni vikið af leikvelli og meistararnir töpuðu þar með sínum fyrstu stigum á leiktíðinni. Sport 11.6.2006 21:04
Blikar yfir gegn FH Nú er kominn hálfleikur í viðureign Breiðabliks og FH í Landsbankadeildinni og hafa heimamenn nokkuð óvænt 1-0 forystu. Það var enginn annar en Daði Lárusson, markvörður FH, sem skoraði markið sem skilur liðin að, þegar hann sló knöttinn í eigið net eftir hornspyrnu Blika. Íslandsmeistararnir hafa verið meira með knöttinn í hálfleiknum, en Blikar leika skipulagðan varnarleik. Sport 11.6.2006 20:04
Heldur sigurganga Íslandsmeistara FH áfram? Íslandsmeistarar FH mæta nýliðum Breiðabliks á Kópavogsvelli klukkan 19.15 í sjöttu umferð Landsbankadeild karla og geta með sigri náð átta stiga forustu á toppi deildarinnar. Með sigri mun FH-liðið, fyrst allra liða í sögu tíu liða efstu deildar karla, ná annað árið í röð 18 stigum af 18 mögulegum í fyrstu sex umferðum Íslandsmósins. Blikar reyna hinsvegar að enda þriggja leikja taphrinu sína. Sport 11.6.2006 18:35
Vorum búnir að skoða Svíana mun betur en þeir okkur "Þetta var frábær leikur hjá okkur. Við vorum greinilega búnir að skoða Svíana mun betur en þeir okkur. Það var mjög gott fyrir okkur að fá mjög erfiða leiki á móti Dönunum því við gátum unnið mjög mikið úr mistökunum sem við vorum að gera þar," sagði þjálfarinn Alfreð Gíslason í viðtali við Geir Magnússon í útsendingu RÚV strax eftir 32-28 sigur íslenska handboltalandsliðsins á Svíum í fyrri umspilsleik þjóðanna um sæti á HM í Þýskalandi 2007. Sport 11.6.2006 17:46
Á eftir að ráðast á síðustu mínútunum í Höllinni "Þetta var frábært og ég er mjög sáttur. Vörnin var frábær, Birkir í markinu var líka flottur og nýtingin í sókninni var góð og það gekk eigilega allt upp hjá okkur," sagði fyrirliðinn Ólafur Stefánsson fyrir íslenska handboltalandsliðsins í viðtali við Geir Magnússon í útsendingu RÚV strax eftir leik. Ísland vann glæsilegan fjögurra marka sigur, 32-28, og er í góðum málum fyrir seinni leikinn um næstu helgi. Sport 11.6.2006 17:22
Tölfræðin úr sigrinum glæsilega á Svíum Íslenska landsliðið vann stórglæsilegan fjögurra marka sigur á Svíum, 32-28, í Globen í dag en þetta var fyrri umspilsleikur þjóðanna um sæti á HM í Þýskalandi 2007. Íslenska landsliðið vann síðustu ellefu mínútur leiksins 8-2 þar sem Einar Hólmgeirsson skoraði fjögur af sex mörkum sínum í leiknum. Snorri Steinn Guðjónsson var markahæstur með 7 mörk þar af 5 úr vítum. Sport 11.6.2006 17:01
Frábær sigur á Svíum Íslenska karlalandsliðið í handknattleik vann frækinn sigur á Svíum á útivelli í dag 32-28 og er því komið í vænlega stöðu fyrir síðari leikinn sem verður hér heima á þjóðhátíðardaginn. Sigurvegarinn í einvígi liðanna tryggir sér sæti á HM í Þýskalandi sem fram fer á næsta ári. Snorri Steinn Guðjónsson var markahæstur með 7 mörk og Einar Hólmgeirsson skoraði 6 mörk. Sport 11.6.2006 16:38
Aftur frestað í Eyjum Leik ÍBV og KR í Landsbankadeild karla sem fara átti fram á Hásteinsvelli í dag, hefur enn á ný verið frestað vegna ófærðar. Leikurinn hefur verið færður þangað til annað kvöld klukkan 19:15. Sport 11.6.2006 16:21
KR-ingar á eftir fyrsta deildarsigrinum í Eyjum síðan 1997 Leikur ÍBV og KR í 6. umferð Landsbankadeild karla í knattspyrnu, sem var frestað í gær vegna þess að ekki var hægt að fljúga til Vestmannaeyja, hefur verið settur á klukkan 19:15 á morgun á Hásteinsvellinum. KR-ingar hafa ekki unnið deildarleik í Eyjum síðan 1997 og Eyjamenn eru án sigurs í síðustu fjórum leikjum sínum í Landsbankadeildinni. Sport 11.6.2006 14:07
Jafnt í hálfleik Globen Staðan í fyrri leik Íslendinga og Svía um laust sæti á HM í handbolta er jöfn 13-13 þegar flautað hefur verið til hálfleiks í Globen í Stokkhólmi. Svíar höfðu undirtökin allan fyrri hálfleikinn, en þrátt fyrir nokkuð mótlæti tókst íslensku stráknum að jafna í blálokin með miklu harðfylgi. Sport 11.6.2006 15:47
42 ár liðin síðan við unnum Svía í alvörulandsleik Íslenska handboltalandsliðið hefur aðeins einu sinni náð að vinna Svía í stórmóti eða undankeppnum þeirra. Hér er verið að tala um Heimsmeistaramót, Evrópumeistaramót og Ólympíuleika. Eini sigurinn kom á HM í Tékkóslóvakíu fyrir 42 árum síðan þegar íslenska liðið vann 12-10 í riðlakeppninni. Íslensku strákarnir hafa nú tapað 9 "alvöruleikjum" í röð fyrir sænska landsliðinu. Íslenska landsliðið mætir Svíum í Globen í fyrri leik liðanna í undankeppni HM 2007 klukkan 15.00 í dag. Sport 11.6.2006 13:49
Fullt hús hjá Valsstúlkum Valsstúlkur eru enn með fullt hús stiga í efsta sæti Landsbankadeildarinnar eftir 3-2 útisigur á KR í dag í hörkuleik. Þetta var fyrsti leikurinn í 5. umferð deildarinnar, þar sem Valur trjónir á toppnum með 15 stig eftir 5 leiki og markatöluna 29-3. KR er í 4. sætinu með 6 stig. Sport 10.6.2006 19:53
Leik ÍBV og KR frestað vegna ófærðar Leik ÍBV og KR sem fara átti fram á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum nú klukkan 16 hefur verið frestað til klukkan 16:30 á morgun. Sport 10.6.2006 15:48
Tölfræðin úr seinni leiknum við Dani í Höllinni í kvöld Íslenska landsliðið gerði jafntefli við Dani í Laugardalshöllinni í kvöld í seinni æfingaleik þjóðanna en íslenska liðið er á leiðinni til Svíþjóðar þar sem það spilar við Svíþjóð í umspili um sæti á HM í Þýskalandi 2007. Hér á eftir má finna tölfræði íslenska liðsins í leiknum í kvöld. Sport 9.6.2006 00:22
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti