Erlendar
110 111 112 113 114 115 116 117 118 … 264 ›
Babayaro kærður fyrir að slá til mótherja Celestine Babayaro hjá Newcastle á nú yfir höfði sér leikbann eftir að hafa verið kærður fyrir að slá til hollenska framherjans Dirk Kuyt hjá Liverpool í leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni á miðvikudagskvöldið. Babayaro mun að öllu óbreyttu taka út þriggja leikja bann eftir að atvikið var skoðað á myndbandi, en hann hefur frest fram yfir helgina til að svara fyrir sig. Enski boltinn 22.9.2006 13:40
Hefur enn ekki fengið gögn frá BBC Breska knattspyrnusambandið hefur lýst yfir óánægju sinni með breska sjónvarpið í kjölfar þess að sambandinu hafa enn ekki borist gögn frá sjónvarpinu svo hægt sé að fara á fullu í að rannsaka ásakanir á hendur stjórum og leikmönnum sem fram komu í þættinum Panorama á dögunum. Enski boltinn 22.9.2006 13:34
Falleg knattspyrna er arfleifð Arsene Wenger Thierry Henry fer fögrum orðum um knattspyrnustjóra sinn Arsene Wenger í viðtali í dag og segir að stjórans verði minnst fyrir þá fallegu knattspyrnu sem liðið hefur spilað undir hans stjórn síðan hann tók við fyrir bráðum áratug. Enski boltinn 21.9.2006 18:41
Fjórar milljónir ljósára í Evrópusætið Martin O´Neill segir að alla hjá Aston Villa dreymi vissulega um að koma liðinu í Evrópukeppnina á ný, þar sem liðið hefur ekki látið að sér kveða síðan árið 1982 þegar liðið vann sigur í Evrópukeppninni. O´Neill er þó hógvær á möguleika liðsins og segir Evrópusætið fjórar milljónir ljósára í burtu á þessum tímapunkti. Enski boltinn 21.9.2006 21:05
Rooney verður betri en George Best Breska dagblaðið Sun heldur áfram að birta kafla úr bók Rio Ferdinand sem enn er óútkomin, en að þessu sinni er tekinn fyrir kafli helgaður framherjanum sterka Wayne Rooney. Ferdinand segir Rooney hafa óbilandi sjálfstraust og ætli sér að verða besti knattspyrnumaður í sögu Manchester United. Enski boltinn 21.9.2006 20:33
Óvænt úrslit í bikarnum Mjög óvænt úrslit urðu í norsku bikarkeppninni í knattspyrnu í kvöld þegar lið Sandefjord burstaði Rosenborg 5-2 á útivelli og tryggði sér þar með sæti í úrslitum keppninnar. Sandefjord mætir Fredrikstad í úrslitaleik, en Fredrikstad lagði Start í hinum undanúrslitaleiknum í gær. Fótbolti 21.9.2006 20:03
Feginn að losna frá Englandi Spænski framherjinn Fernando Morientes gerði ekki gott mót á þeim mánuðum sem hann lék með Liverpool, en hann hefur nú tekið upp fyrri iðju í heimalandinu og raðar inn mörkunum fyrir Valencia. Hann segist feginn að vera laus frá Englandi, því knattspyrnan þar hafi engan veginn fallið að sínum leikstíl. Fótbolti 21.9.2006 19:37
Craig Bellamy er strigakjaftur Terry McDermott, þjálfari hjá enska úrvalsdeildarliðinu Newcastle, lenti í orðaskaki við framherjann Craig Bellamy hjá Liverpool eftir leik liðanna á Anfield í gærkvöldi, en Bellamy lék áður með Newcastle. McDermott segir að Bellamy sé strigakjaftur sem haldi ætíð að hann sé stærri en liðið sem hann spilar fyrir hverju sinni. Enski boltinn 21.9.2006 18:17
Konum bannað að kaupa aðgöngumiða Það er jafnan heitt í kolunum þegar grannaliðin Dinamo og Steua frá Búkarest eigast við á knattspyrnuvellinum, en forráðamenn Dinamo gengu svo langt að banna konum að kaupa miða á leikinn í gær og sökuðu þær um að vera að hamstra miða fyrir gestaliðið. Þá kom einnig til slagsmála í einni miðaröðinni sem seldi Dinamo miða eftir að farsími tók að hringja með stuðningsmannalagi Steua. Sport 21.9.2006 17:14
Dimitar Berbatov meiddur Búlgarski landsliðsmaðurinn Dimitar Berbatov verður frá keppni í að minnsta kosti tvær vikur til viðbótar hjá Tottenham eftir að nárameiðsli hans tóku sig upp að nýju á æfingu í dag. Berbatov hefur lítið geta spilað með Lundúnaliðinu síðan hann var keyptur frá Leverkusen á 11 milljónir í sumar, en þetta er mikið áfall fyrir liðið sem hefur byrjað afleitlega í deildinni og gengur ekkert að skora mörk. Enski boltinn 21.9.2006 16:57
Mandaric stígur formlega af stóli Milan Mandaric, stjórnarformaður enska úrvalsdeildarfélagsins Portsmouth, hefur nú tilkynnt að hann ætli að segja af sér formennsku að loknum leik Portsmouth og Bolton á mánudaginn. Undir stjórn Gaydamak hefur félagið tekið stórt stökk á nokkrum árum og framtíðin er vissulega björt undir stjórn hins nýja eiganda, Alexandre Gaydamak. Enski boltinn 21.9.2006 15:24
Reading áformar að stækka heimavöllinn Forráðamenn Reading segja áform uppi um að stækka Madejski leikvanginn, heimavöll félagsins, um allt að 10.000 sæti. Völlurinn tekur sem stendur aðeins um 24.000 manns í sæti, en vonast er til að stuðningsmönnum úrvalsdeildarliðsins fjölgi í kjölfar góðs gengis liðsins á síðustu misserum. Enski boltinn 21.9.2006 15:01
Sjónvarpsþátturinn var farsi Harry Redknapp segir að sjónvarpsþátturinn Panorama sem sýndur var í breska sjónvarpinu á dögunum hafi verið farsi frá upphafi til enda og segir ásakanir á hendur sér í þættinum algjöra vitleysu. Redknapp var sakaður um að hafa rætt ólöglega við leikmanninn Andy Todd á sínum tíma. Enski boltinn 21.9.2006 14:49
Tekur fulla ábyrgð á tapinu Gareth Southgate segir að skrifa megi tapið fyrir fyrrum lærisveinum Guðjóns Þórðarsonar í Notts County alfarið á sig, en Southgate stillti upp mikið breyttu liði á heimavelli gegn 3. deildarliðinu og uppskar 1-0 tap. Enski boltinn 21.9.2006 13:59
Óttast ekki pressuna Stuart Pearce segist ekki óttast þá síauknu pressu sem á honum er eftir að Manchester City tapaði enn eina ferðina í gær og nú fyrir Chesterfield í enska deildarbikarnum. Þetta var þriðja tap City og 13 ósigur liðsins í síðustu 16 leikjum í það heila. Enski boltinn 21.9.2006 13:50
Mjög sáttur þrátt fyrir að vera á bekknum Eiður Smári Guðjohnsen segist fullkomlega sáttur við lífið hjá nýja liðinu sínu Barcelona þó hann hafi þurft að verma varamannabekkinn hjá liðinu fyrstu vikurnar, líkt og hann gerði hjá Chelsea. Hann segir að leikstíll þeirra Frank Rijkaard og Jose Mourinho sé hreint ekki svo ólíkur. Fótbolti 20.9.2006 20:24
Léttir fyrir Liverpool Liverpool vann í kvöld afar mikilvægan 2-0 sigur á Newcastle í eina leiknum sem fram fór í ensku úrvalsdeildinni, en leikið var á Anfield. Hollenski framherjinn Dirk Kuyt opnaði markareikning sinn fyrir félagið með marki í fyrri hálfleik og Spánverjinn Xabi Alonso skoraði ótrúlegt mark frá eigin vallarhelmingi í þeim síðari og tryggði Liverpool þrjú dýrmæt stig eftir að liðið hafði tapað tveimur deildarleikjum í röð. Enski boltinn 20.9.2006 20:58
Þrjú úrvalsdeildarlið úr leik Enski deildarbikarinn stóð svo sannarlega undir nafni í kvöld, því þrjú úrvalsdeildarlið féllu úr keppni gegn minni spámönnum í leikjunum fimm sem voru á dagskrá. Aston Villa hélt þó uppi merkjum liða í efstu deild með góðum 2-1 útisigri á Scunthorpe í leik sem sýndur var beint á Sýn. Juan Pablo Angel skoraði bæði mörk Villa í leiknum. Enski boltinn 20.9.2006 20:47
Heiðar minnkar muninn fyrir Fulham Lið Fulham hefur komið einbeittara til leiks í síðari hálfleiknum gegn Wycombe á heimavelli sínum því Heiðar Helguson er búinn að minnka muninn í 2-1 með góðum skalla strax á 47. mínútu leiksins. Enski boltinn 20.9.2006 19:57
Aston Villa yfir gegn Scunthorpe Fimm leikir eru á dagskrá kvöldsins í enska deildarbikarnum og annað kvöldið í röð eru litlu liðin að stríða úrvalsdeildarliðunum. Aston Villa er ekki eitt þeirra, en liðið hefur 1-0 forystu gegn Scunthorpe í leik sem sýndur er beint á Sýn. Enski boltinn 20.9.2006 19:42
Orðlaus yfir smekklausum stuðningsmönnum West Ham Glenn Roader, stjóri Newcastle og fyrrum stjóri West Ham, segist hafa trúað sínum eigin eyrum þegar hann mætti á Upton Park með nýja liðið sitt á dögunum, en þá sungu stuðningsmenn niðrandi texta um lífshættuleg veikindi sem hann átti við að stríða þegar hann stýrði West Ham á sínum tíma. Enski boltinn 20.9.2006 19:11
Kevin Bond ætlar í mál við BBC Kevin Bond, þjálfari hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Newcastle, ætlar að höfða skaðabótamál á hendur breska sjónvarpinu eftir að honum þótti hann borinn þungum og röngum sökum í þættinum Panorama sem sýndur var í breska sjónvarpinu í gærkvöld og er að gera allt vitlaust í knattspyrnuheiminum á Englandi. Enski boltinn 20.9.2006 17:19
Boa Morte verður frá í sex vikur Forráðamenn enska úrvalsdeildarliðsins Fulham hafa nú staðfest að portúgalski landsliðsmaðurinn Luis Boa Morte verði frá keppni í sex vikur eins og óttast var í upphafi eftir að hann lenti í samstuði við harðjaxlinn og samherja sinn Heiðar Helguson í leik gegn Tottenham um síðustu viku. Enski boltinn 20.9.2006 16:27
Aðgangur að öllum mörkum í farsímanum Og Vodafone hefur nú aukið þjónustu sína við knattspyrnuáhugamenn til muna en nú geta farsímanotendur séð öll mörkin úr meistaradeildinni og ensku úrvalsdeildinni í gegn um netið í farsímum sínum. Enski boltinn 20.9.2006 16:58
Scunthorpe - Aston Villa í beinni Sjónvarpsstöðin Sýn verður með beina útsendingu frá viðureign Scunthorpe og Aston Villa í enska deildarbikarnum í kvöld. Útsending hefst klukkan 18:30, en fimm leikir eru á dagskrá í keppninni í kvöld. Líklegt þykir að tékkneski framherjinn Milan Baros spili sinn fyrsta leik á tímabilinu með Aston Villa í kvöld, en þeir fá eflaust harða mótspyrnu frá liði Scunthorpe sem er um miðja næst efstu deild á Englandi. Enski boltinn 20.9.2006 16:16
Blackwell rekinn frá Leeds 1. deildarfélagið Leeds United rak í dag knattspyrnustjórann Kevin Blackwell úr starfi, en hann tók við liðinu vorið 2004. Mikil pressa hafði verið á stjóranum að undanförnu, en eftir að Leeds missti naumlega af sæti í úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð er það nú við botninn í deildinni og það er óásættanlegt. Fyrrum landsliðsmaðurinn Gylfi Einarsson leikur með Leeds. Enski boltinn 20.9.2006 16:06
Tapar Liverpool þriðja leiknum í röð? Einn leikur fer fram í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld, en þá tekur Liverpool á móti Newcastle á Anfield. Liverpool hefur tapað tveimur leikjum í röð í deildinni, en talið er líklegt að Rafa Benitez tefli fram sama byrjunarliði í kvöld og í síðasta leik og yrði það þá í fyrsta sinn í 92 leiki sem það gerðist. Enski boltinn 20.9.2006 14:45
Stóri-Sam neitar ásökunum Sam Allardyce hefur staðfastlega neitað öllum ásökunum sem hann var borinn í sjónvarpsþættinum Panorama í breska sjónvarpinu í gær, en þar kom fram að hann hefði tekið við mútugreiðslum frá tveimur umboðsmönnum í leikmannakaupum. "Ég vísa öllum ásökunum sem fram komu í þættinum á bug og málið er nú í höndum lögmanna minna," sagði Allardyce í dag, en neitar annars að tjá sig um málið. Enski boltinn 20.9.2006 14:23
Skuldir Arsenal jukust um 100 rúmar milljónir punda Peter Hill-Wood, stjórnarformaður Arsenal, tilkynnti í dag að skuldir félagsins hefðu aukist úr 153 milljónum punda í 262 milljónir. Þessi gríðarlega aukning er fyrst og fremst komin til vegna flutnings liðsins á nýja heimavöllinn, Emirates Stadium, en innkoma hjá félaginu var að öðru leiti nokkuð jákvæð enda náði liðið langt í meistaradeild Evrópu. Enski boltinn 20.9.2006 14:15
Falsaðar nektarmyndir af konu Woods í umferð Ameríski kylfingurinn Tiger Woods á nú í erfiðleikum með að einbeita sér að keppni á Ryder Cup mótinu, eftir að bresk og írsk blöð birtu í dag falsaðar nektarmyndir af konu hans sem höfðu verið í umferð á netinu. Golf 20.9.2006 13:59