Erlent
8 9 10 11 12 13 14 15 16 … 334 ›
Mikil lækkun í Bandaríkjunum Gengi hlutabréfa lækkaði talsvert í byrjun viðskipta í Bandaríkjunum í dag eftir að opinberar tölur bentu til að dregið hafi úr framleiðslu í mánuðinum. Viðskipti erlent 16.10.2008 15:08
Methækkun á bandarískum hlutabréfamarkaði Gengi hlutabréfa hækkaði verulega í Bandaríkjunum í dag í kjölfar efnilegrar ákvörðunar bandarískra stjórnvalda að auka varnir þarlendra banka og fjármálafyrirtækja gegn yfirstandandi hremmingum með kaupum á hlutafé þeirra. Viðskipti erlent 13.10.2008 20:06
Walker íhugar frekari kaup í Iceland-keðjunni Malcolm Walker, stofnandi, forstjóri og meðeigandi bresku frystivörukeðjunnar Iceland, er sagður íhuga að kaupa einhverja hluti Baugs í versluninni. Viðskipti erlent 12.10.2008 01:20
Mikil sveifla á Wall Street Vikan hefur aldrei verið verri á bandarískum hlutabréfamarkaði. Helstu hlutabréfavísitölur tóku mikla dýfu í byrjun dags en jöfnuðu sig þegar nær dró lokum viðskiptadagsins. Viðskipti erlent 10.10.2008 21:32
Verðbólga eykst í Slóvakíu Verðbólga mældist 5,4 prósent í Slóvakíu í síðasta mánuði, samkvæmt útreikningum hagstofu landsins. Verðbólgan hefur ekki verið meiri síðan í desember 2004. Viðskipti erlent 10.10.2008 10:28
Olíuverð ekki lægra í rúmt ár Verð á framvirkum samningum á hráolíu féll um rúm 5,4 dali á tunnu í dag og stendur verði ðnú í 81 dal á tunnu. Verðfallið nemur sex prósentum. Viðskipti erlent 10.10.2008 10:01
Dow Jones hrundi á afmælisdeginum Gengi hlutabréfa í bandaríska bílaframleiðandanum General Motors hrundi um 31 prósent á fjármálamörkuðum vestanhafs í dag eftir að matsfyrirtækið Standard & Poor´s setti félagið á athugunarlista með mögulega lækkun í huga. Ástæðan fyrir þessu er minnkandi sala á nýjum bílum fyrirtækisins í Bandaríkjunum samfara hrakspám um yfirvofandi efnahagssamdrátt. Viðskipti erlent 9.10.2008 21:13
Dow Jones í frjálsu falli Dow Jones-hlutabréfavísitalan féll skyndilega niður um 5,14 prósent fyrir stundu og fór undir 9.000 stigin fyrir stundu. Svo virðist sem mikil lækkun á gengi hlutabréfa bandaríska bílaframleiðandans General Motors hafi dregið hlutabréfamarkaðinn með sér í fallinu. Viðskipti erlent 9.10.2008 19:41
Stýrivaxtalækkun tikkar inn í Evrópu Talsverð hækkun er á flestum hlutabréfamörkuðum í dag. Hækkunin skýrist fyrst og fremst af óvæntri stýrivaxtalækkun seðlabanka víða um heim til að sporna við spá Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um hugsanlegt samdráttarskeið beggja vegna Atlantsála. Viðskipti erlent 9.10.2008 09:30
Olíutunnan nálgast 80 dali Heimsmarkaðsverð á hráolíu hefur lækkað talsvert samfara hrakspám um efnahagssamdrátt og minnkandi eftirspurn í Bandaríkjunum og Evrópu og stendur hún nú í 88 dölum á tunnu í Asíu. Viðskipti innlent 9.10.2008 08:49
Seðlabankar grípa til neyðaraðgerða - lækka stýrivexti Seðlabankar í Bandaríkjunum, á evrusvæðinu, í Bretlandi, Sviss og í Svíþjóð lækkuðu í dag stýrivexti óvænt um 0,5 prósent í dag. Bankarnir tóku ákvörðunin í sameiningu til að bregðast við versnandi aðstæðum í efnahagslífinu. Viðskipti erlent 8.10.2008 11:11
Englandsbanki lækkar stýrivexti óvænt Englandsbanki, seðlabanki Bretlands, ákvað í dag að grípa til neyðaraðgerða vegna aðstæðna í efnahagslífinu og lækkaði stýrivexti um 0,5 prósent. Við það fara stýrivextir landsins í 4,75 prósent. Viðskipti erlent 8.10.2008 11:04
Sampo og Storebrand falla hratt Gengi hlutabréfa í finnska fjármálafyrirtækinu Sampo hefur fallið um 5,9 prósent í dag og Storebrand um 7,9 prósent. Kaupþing og Exista eiga tæpan 30 prósenta hlut í Storebrand en Exista seldi tæpan tuttugu prósenta hlut í Sampo í gær. Viðskipti erlent 8.10.2008 09:12
Mikið fall á alþjóðlegum mörkuðum Hlutabréf víða um heim féllu hratt í morgun en fjárfestar óttast nú að fjármálakreppan muni vara lengi og höggva stór skörð víða um heim. Viðskipti erlent 8.10.2008 08:58
Mikill skellur á Wall Street - fjárfestar halda í vonina Gengi hlutabréfa tók dýfu á bandarískum fjármálamörkuðum í dag. Fjárfestar vænta þess nú að bandaríski seðlabankinn lækki stýrivexti vegna aðstæðna á mörkuðum. Viðskipti erlent 7.10.2008 21:41
Svartsýnir í röðum bandarískra fjárfesta Gengi hlutabréfa í fjármálafyrirtækjum féll með skelli á bandarískum hlutabréfamarkaði í dag en fjárfestar vestanhafs óttast nú að viðamiklar björgunaraðgerðir bandarískra stjórnvalda, sem gengu í gegnum þingið á föstudag, dugi ekki til að koma fjármálakerfinu á réttan kjöl. Viðskipti erlent 6.10.2008 20:13
Dow Jones ekki lægri í fimm ár Dow Jones-hlutabréfavísitalan hefur fallið um 3,39 prósent í dag og stendur vísitalan í 9.974 stigum. Hún hefur ekki verið lægri síðan seint í nóvember árið 2003 þegar hún var að rísa upp eftir að netbólan sprakk og hryðjuverkaárásir á Bandaríkin. Viðskipti erlent 6.10.2008 14:20
Enn einn skellurinn í Bandaríkjunum Enn einn skellurinn var á bandarískum hlutabréfamarkaði í dag en fjárfestar telja björgunaraðgerðir stjórnvalda, sem fulltrúaþing Bandaríkjaþings samþykkti í síðustu viku, hvergi duga til að koma fjármálakerfinu aftur á réttan kjöl. Viðskipti erlent 6.10.2008 13:52
Englandsbanki opnar bönkum dyrnar á gátt Englandsbanki hefur rýmkað reglur um veð sem gerir breskum bönkum auðveldara um vik að sækja sér lausafé. Í tilkynningu sem bankinn sendir frá sér í dag segir að hann hafi ákveðið að gera þetta vegna lausafjárþurrðar á fjármálamörkuðum um þessar mundir. Viðskipti erlent 3.10.2008 14:02
Enn einn skellurinn á Wall Street Nýjustu upplýsingar hins opinbera í Bandaríkjunum um samdrátt í framleiðslu og vísbendingar um aukið atvinnuleysi urðu til þess að svartsýni greip um sig í röðum fjárfesta vestanhafs í dag. Bankar og fjármálafyrirtæki hertu enn frekar tökin á sjóðum sínum og hömstruðu fjármagn með þeim afleiðingum að lánsfé varð enn dýrara en í gær. Viðskipti erlent 2.10.2008 20:34
Olíuverðið komið í 95 dali á tunnu Heimsmarkaðsverð á hráolíu hefur lækkað um tæpa fjóra bandaríkjadali í dag og kostar tunnan nú 94,8 dali í Bandaríkjunum. Viðskipti erlent 2.10.2008 17:09
Evran lækkar gagnvart flestum nema krónu Gengi evru lækkaði um 0,7 prósent gagnvart Bandaríkjadal í morgun og hefur það ekki verið lægra í ár. Þá hefur evran ekki verið lægra gagnvart jeni í tvö ár. Evran kostar nú 154,8 krónur. Í gær rauf evran 157 krónu múrinn og hafði þá aldrei verið sterkari gagnvart krónunni. Viðskipti erlent 2.10.2008 10:01
Buffett opnar veskið á ný Bandaríski auðkýfingurinn Warren Buffett gert gert samkomulag um kaup á hlutabréfum í bandarísku risasamsteypunni General Electric fyrir þrjá milljarða bandaríkjadala, jafnvirði tæpra 330 milljarða íslenskra króna. Kaupin eru gerð í gegnum fjárfestingafélagið Berkshire Hathaway, sem hann hefur stýrt í rúm fjörutíu ár. Viðskipti erlent 1.10.2008 21:21
Fjárfestar bíða vongóðir á Wall Street Gengi hlutabréfa í tæknifyrirtækjum á borð við Apple og DeCode lækkaði nokkuð á hlutabréfamörkuðum í Bandaríkjunum í dag á meðal fjármálafyrirtækin stóðu nokkuð óbreytt. Viðskipti erlent 1.10.2008 20:58
Bandaríkin opna í mínus Gengi hlutabréfa hefur almennt lækkað í Bandaríkjunum í dag eftir mikla uppsveiflu í gær. Mikill órói er í röðum fjárfesta sem vonast til þess að Öldungadeild Bandaríkjaþings gefi græna ljósið á björgunaraðgerðir stjórnvalda vestanhafs í dag. Viðskipti erlent 1.10.2008 13:34
Bandaríkin opna í plús Gengi hlutabréfa hækkaði almennt við upphaf viðskiptadagsins í Bandaríkjunum í dag eftir versta skell sem fjárfestar hafa séð þar í landi í um 21 ár. Viðskipti erlent 30.9.2008 13:55
Írska ríkið tryggir bankana Írska ríkið hefur gengist í ábyrgðir fyrir skuldbindingar banka þar í landi næstu tvö árin. Ákvörðunin kemur í framhaldi af mikilli lækkun á gengi hlutabréfa í írskum fjármálafyrirtækjum í gær en tilefni þótti til að róa fjárfesta. Viðskipti erlent 30.9.2008 11:32
Hlutabréf féllu hratt í Japan Hlutabréf fjármálafyrirtækja lækkaði við upphaf viðskiptadagsins í Japan nú skömmu eftir miðnætti að íslenskum tíma og fór Nikkei-hlutabréfavísitalan niður um 1,5 prósent. Heldur gaf í lækkunina þegar nokkrar mínútur voru liðnar og stóð hún í fjögurra prósenta mínus stundarfjórðungi síðar. Viðskipti erlent 30.9.2008 00:23
Mesta fall í Bandaríkjunum í 21 ár Helstu hlutabréfavísitölur féllu um tæp tíu prósent í Bandaríkjunum í dag. Fjárfestar hafa ekki séð neitt þvíumlíkt í 21 ár. Viðskipti erlent 29.9.2008 20:00
Olíuverð hrapar með hlutabréfafallinu Heimsmarkaðsverð hefur fallið um tíu dali í Bandaríkjunum í dag og stendur verðmiðinn nú í 96,3 dölum á tunnu. Verðið fór í 95 dali til skamms tíma í dag. Viðskipti erlent 29.9.2008 19:31
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu:„Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent