Erlent
277 278 279 280 281 282 283 284 285 … 334 ›
Ekki hafðir með í ráðum Stjórnvöld á Srí Lanka neita því að hafa samþykkt í gær að taka skilyrðislaust þátt í friðarviðræðum við uppreisnarmenn Tamíltígra í landinu. Fulltrúar þeirra eru þó tilbúnir til viðræðna hætti tígrarnir árásum. Erlent 13.9.2006 12:24
Tvísýnar kosningar í Svíþjóð Tvær skoðanakannanir sem birtar voru í morgun sýna að þingkosningarnar í Svíþjóð um næstu helgi verða þær tvísýnustu í rúman aldarfjórðung. Munur milli stjórnar og stjórnarandstöðu er innan skekkjumarka. Erlent 13.9.2006 12:18
Olíuverð hækkar Heimsmarkaðsverð á hráolíu hækkaði lítillega á helstu fjármálamörkuðum í dag. Fjárfestar bíða upplýsinga um olíubirgðastöðu í Bandaríkjunum en þær verða birtar síðar í dag. Búist er við að birgðirnar hafi dregist saman á milli vikna. Viðskipti erlent 13.9.2006 11:55
Frímerki skreytt plötuumslögum Bítlanna Breska póstþjónustan tilkynnti í gær að frægustu plötuumslög Bítlanna myndu skreyta nýja röð frímerkja sem gefin verður út í janúar. Erlent 13.9.2006 08:52
Talíbanar hættulegri en al-Kaída liðar Fréttastofa AP hefur komist yfir myndband sem sagt er tekið af Talíbönum í Afganistan og veitir svipmynd af þeim átökum sem orðið hafa í Kandahar-héraði í Suður-Afganistan. Fundað verður í Belgíu í dag um hvernig fjölga megi í herliði NATO í Afganistan. Forseti Pakistans segir Talíbana meiri ógn í þessum heimshluta en al-Kaída. Erlent 13.9.2006 08:23
Soros berst gegn fátækt Bandaríski auðkýfingurinn George Soros hefur ákveðið að veita Sameinuðu þjóðunum 50 milljónir bandaríkjadala, jafnvirði rúmra 3,5 milljarða íslenskra króna, á næstu fimm árum til að berjast gegn fátækt og útbreiðslu alnæmis í Afríku. Viðskipti erlent 13.9.2006 10:12
Streymi ferskvatns í sjó eykst Streymi ferskvatns út í sjó hefur aukist um 17 þúsund rúmkílómetra síðastliðinn áratug vegna bráðnunar íss og jökla. Það slagar hátt upp í 40 ára gegnumstreymi ferskvatns út í Missisippi-flóann. Það þýðir róttæka breytingu á lífsskilyrðum fisktegunda og annarra sjávarlífvera, sérstaklega á heimskautasvæðum. Erlent 13.9.2006 08:41
Margir án atvinnu í Bretlandi Atvinnuleysi mældist 5,5 prósent í Bretlandi á öðrum fjórðungi ársins en þetta jafngildir því að 1,7 milljónir manna hafa verið án atvinnu í landinu. Atvinnuleysi í Bretlandi hefur ekki verið meira í sex ár, samkvæmt útreikningum bresku hagstofunnar. Viðskipti erlent 13.9.2006 09:49
Mannskæð sprengjuárás í Tyrklandi 10 létust og 14 liggja sárir eftir sprengjuárás í suðausturhluta Tyrklands í gærkvöldi. Á meðal látinna eru 7 börn. Sprengjan sprakk nálægt barnaskóla í borginni Diyarbakir og hefur enginn enn lýst yfir ábyrð á árásinni. Erlent 13.9.2006 08:17
Myndband frá Talíbönum Fréttastofa AP hefur komist yfir myndband sem sagt er tekið af Talíbönum í Afganistan og veitir sjaldgæfa svipmynd af þeim átökum sem orðið hafa í Kandahar-héraði í Suður-Afganistan. Á myndbandinu má sjá fjölmarga hópa vopnaðra andspyrnumanna ganga um þau svæði þar sem hefur komið til átaka og árásarþyrlur skjóta að þeim. Erlent 13.9.2006 08:13
Fjandvinir Bandaríkjamanna funda á Kúbu Fundur leiðtoga þeirra ríkja sem standa utan bandalaga hófst í Havana á Kúbu í gær. Forsetar Írans, Sýrlands og Venesúela, auk næstráðandi í Norður-Kóreu, sækja fundinn. Erlent 13.9.2006 08:08
Stjórnvöld á Srí Lanka ekki til viðræðna Stjórnvöld á Srí Lanka neita því að hafa samþykkt í gær að taka skilyrðislaust þátt í friðarviðræðum við uppreisnarmenn Tamíltígra í landinu. Yfirlýsing eftir fund um friðarferlið í Brussel í Belgíu í gær hafi verið röng. Erlent 13.9.2006 08:05
Sjö fórust í sprengingu í Tyrklandi Sjö létust og sautján særðust í sprenging sem varð í suðausturhluta Tyrklands í kvöld. Á meðal látinna eru fimm börn. Þrír þeirra sem særðust eru taldir í lífshættu. Sprengingin varð í borginni Diyarbakir og hefur enginn enn lýst yfir ábyrð á árásinni. Kúrdar eru í meirihluta í borginni. Tólf hafa látist í sprengingum í Tyrklandi á síðustu vikum og tugir slasast. Erlent 12.9.2006 22:13
Bann við innflutningi á selskinnum til umræðu á þingi ESB Ályktunartillaga um að banna innflutning á selskinnum verður á næstunni lögð fram hjá Evrópusambandinu. Áralöng barátta dýraverndarsamtaka er þar að skila árangri, en hún hefur einkum beinst gegn selveiðum Kanadamanna. Dýraverndarsamtökin ætla að láta kné fylgja kviði og fara framá að einnig verði bönnuð sala á pelsum og öðrum tilbúnum flíkum úr selskinni. Innlent 12.9.2006 19:46
Baulað á Blair Fjölmargir verkalýðsforkólfar gengu út af ársfundi sambands verkalýðsfélaga í Bretlandi í dag. Þetta gerðist um leið og Tony Blair tók þar til máls í síðasta sinn sem leiðtogi Verkamannaflokksins og forsætisráðherra landsins. Erlent 12.9.2006 18:21
Hryðjuverkaárásirnar seinkuðu inflúensufaraldri í BNA Hryðjuverkaárásirnar á Bandaríkin 11. september seinkuðum árlegum inflúensufaraldri í landinu um tvær vikur, árið eftir, að sögn lækna við Barnasjúkrahúsið í Boston. Þeir hafa birt niðurstöður sínar í læknatímariti. Læknarnir rekja þetta til þess að stórfelld minnkun varð á flugi eftir árásirnar og það tók því flensuvírusinn lengri tíma að dreifa sér. Læknarnir telja að þetta sé til marks um að dreifing smitsjúkdóma með flugi sé meiri en áður var talið, og að sú vitneskja geti hugsanlega gagnast ef þurfi að verjast alvarlegum smitsjúkdómum, eins og fuglaflensu. Erlent 12.9.2006 19:39
Réð menn til að misþyrma kærustunni sinni Sænskur forstjórasonur hefur verið dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir að leigja tvo óbótamenn til þess að misþyrma kærustu sinni, til þess að hún missti fóstur. Kærastan hafði neitað að fara í fóstureyðingu. Óbótamennirnir réðust á hana á skógarstíg í einu úthverfa Stokkhólms. Þar héldu þeir henni fastri og börðu hana í kviðinn, með barefli, þartil hún þóttist missa meðvitund. Stúlkan gat skreiðst eftir hjálp, og það tókst að bjarga barni hennar. Árásarmennirnir tveir voru einnig dæmdir til fangelsisvistar. Erlent 12.9.2006 19:35
Þriðja hver stúlka misnotuð kynferðislega Þriðja hver stúlka á Grænlandi hefur verið misnotuð kynferðislega áður en hún nær fimmtán ára aldri, samkvæmt könnun sem grænlenska heimastjórnin lét gera. Erlent 12.9.2006 19:35
Framkvæmdir á geimstöðinni hafnar Byggingarframkvæmdir á alþjóðlegu geimstöðinni hófust í dag. Tveir hugaðir geimfarar vörðu lunganum úr deginum í geimnum utan við geimstöðina í að byggja við hana. Óhætt er að segja að verk þeirra hafi verið töluvert flókið og jafnvel tafsamt. Erlent 12.9.2006 19:07
Þýðingarmikið skref stigið á Srí Lanka Stjórnvöld á Srí Lanka og uppreisnarmenn Tamíltígra hafa samþykkt að setjast niður til friðarviðræðna án nokkurra skilyrða. Upplýsingafulltrúi vopnaeftirlitsins á Srí Lanka segir þetta þýðingarmikið skref í átt til friðar. Erlent 12.9.2006 19:02
Bandaríkjamenn þakka Sýrlendingum skjót viðbrögð Herskáir múslimar, vopnaðir handsprengjum og byssum, reyndu að brjóta sér leið inn í sendiráð Bandaríkjamanna í Damaskus á Sýrlandi í morgun. Öryggissveitum tókst að hrinda árásinni. Fjórir féllu í átökum, þrír árásarmenn og sýrlenskur öryggisvörður. Erlent 12.9.2006 18:13
Methalli í Bandaríkjunum Viðskiptahallinn í Bandaríkjunum nam 68 milljörðum dala eða rúmum 4.800 milljörðum íslenskra króna í júlí. Um methalla er að ræða en hann skýrist fyrst og fremst af verðhækkunum á olíu. Líkur eru á að viðskiptahalli ársins verði meiri en hallinn í fyrra sem nam 717 milljörðum dala eða rúmum 51.100 milljörðum íslenskra króna. Viðskiptahallinn vestra hafði aldrei verið meiri. Viðskipti erlent 12.9.2006 16:33
Samþykkja skilyrðislausar friðarviðræður Stjórnvöld á Srí Lanka og uppreisnarmenn Tamíltígra hafa samþykkt að setjast niður til friðarviðræðna án nokkurra skilyrða. Þetta var staðfest eftir fund um átökin í landinu sem haldinn var í Brussel í Belgíu í dag. Erlent 12.9.2006 14:50
Gæsluvarðhald yfir þingmönnum framlengt Gæsluvarðhald yfir tveimur háttsettum þingmönnum Hamas-samtakanna hefur verið framlengt samkvæmt ákvörðun dómara í Ísrael. Einhverjir þingmenn sem eru í haldi verða þó látnir lausir á næstunni. Flestir þeirra voru teknir höndum skömmu eftir að herskáir Palestínumenn rændu ísraelskum hermanni á Gaza-svæðinu. Erlent 12.9.2006 13:31
Olíuverð hækkaði lítillega Heimsmarkaðsverð á hráolíu hækkaði lítillega á helstu mörkuðum í dag og fór nálægt 66 bandaríkjadölum á tunnu. Þar með var endir bundinn á samfelldar lækkanir á olíuverði síðastliðna sex daga. Viðskipti erlent 12.9.2006 12:47
Háttsettir Hamas-liðar verði látnir lausir Dómstóll í Ísrael hefur fyrirskipað að nokkrir háttsettir liðsmenn Hamas-samtakanna, sem hafa verið í haldi Ísraela, verði látnir lausir. Mennirnir voru handteknir eftir að herskáir Palestínumenn rændu ísraelskum hermanni á Gaza-svæðinu í júní. Meðal hinna handteknu eru ráðherrar í heimastjórn Palestínumanna. Erlent 12.9.2006 12:17
Komu í veg fyrir alvarlega árás Öryggissveitarmenn komu í veg fyrir alvarlega hryðjuverkaárás á sendiráð Bandaríkjamanna í Damascus í Sýrlandi í morgun. Þeir felldu þrjá hryðjuverkamenn sem höfðu sprengt bifreið fyrir utan bygginguna í loft upp. Fjórði árásarmaðurinn særðist í átökunum. Erlent 12.9.2006 12:10
Ókeypis hárskurður á Vesturbakkanum Rakarar og hárskerar í Ramallah og Betlehem á Vesturbakkanum hafa gripið til þess ráðs að bjóða ókeypis hárskurð í einn sólahring. Þetta var gert í gær til að styðja við bakið á opinberum starfsmönnum heimastjórnar Palestínumanna sem ekki hafa fengið laun sín greidd í marga mánuði. Erlent 12.9.2006 09:35
Sprengingar á flugeldamarkaði í Mexíkó Eldur olli töluverðum sprengingum á stærsta flugeldamarkaðinum í Mexíkó í gærkvöldi. Fjölmargir sölubásar í Tultepec, skammt utan við Mexíkó-borg eyðilögðust þegar flugeldarnir fuðruðu upp. Erlent 12.9.2006 09:31
Felldu þrjá árásarmenn í Damascus Sýrlenskar öryggissveitir felldu þrjá hryðjuverkamenn sem sprengdu bíl í loft upp fyrir utan bandaríska sendiráðið í Damascus í Sýrlandi í morgun. Innanríkisráðherra Sýrlands segir fjórða árásarmanninn hafa særst í átökum en ekki fallið eins og ranglega hafi verið hermt. Minnst tveir sýrlenskir öryggisverðir féllu í átökum við árásarmennina. Erlent 12.9.2006 10:19