Fótbolti
114 115 116 117 118 119 120 121 122 … 334 ›
Félix sá fjórði sem Chelsea kaupir í janúar Chelsea hefur fengið Portúgalann João Félix á láni frá Atlético Madrid á Spáni. Hann fjórði leikmaðurinn til að ganga í raðir liðsins þegar aðeins ellefu dagar eru liðnir á janúargluggann. Enski boltinn 11.1.2023 12:22
Margrét hitti goðsögnina Buffon strax á fyrsta degi Margrét Árnadóttir samdi við lið Parma í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á dögunum. Hún var vart lent á Ítalíu þegar hún hafði fengið sjálfu með einni af skærustu stjörnum Parma, goðsögninni Gianluigi Buffon. Fótbolti 9.1.2023 23:30
Keflavík byrjað að safna liði Eftir að hafa statt og stöðugt misst leikmenn úr leikmannahópi sínum hefur Keflavík loks sótt liðsstyrk fyrir komandi tímabil í Bestu deild karla í fótbolta. Sá heitir Gunnlaugur Fannar Guðmundsson og lék síðast með Kórdrengjum í Lengjudeildinni. Íslenski boltinn 9.1.2023 22:30
Skytturnar kláraðu C-deildarliðið í seinni hálfleik Arsenal vann C-deildarlið Oxford United 3-0 í ensku bikarkeppninni í fótbolta í kvöld. Öll mörkin komu í síðari hálfleik. Enski boltinn 9.1.2023 19:30
Kjartan Henry í þann mund að semja við FH Samkvæmt heimildum hlaðvarpsins Dr. Football mun FH tilkynna að framherjinn Kjartan Henry Finnbogason sé genginn í raðir félagsins og muni spila með því í Bestu deild karla í fótbolta næsta sumar. Íslenski boltinn 9.1.2023 20:45
Rúnar Alex hélt hreinu í stórsigri á meisturunum Landsliðsmarkvörðurinn Rúnar Alex Rúnarsson hélt hreinu þegar lið hans Alanyaspor vann 5-0 stórsigur á Tyrklandsmeisturum Trabzonspor í tyrknesku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Fótbolti 9.1.2023 20:05
Segja Félix hafa náð munnlegu samkomulagi við Chelsea Þó ekkert gangi innan vallar er líf og fjör á skrifstofu Chelsea þessa dagana. Það virðist sem portúgalski framherjinn João Félix sé að ganga í raðir félagsins á láni frá Atlético Madríd. Enski boltinn 9.1.2023 18:17
Eiður Smári minnist Vialli: „Hvíl í friði Luca“ Fyrrum landsliðsmaðurinn Eiður Smári Guðjohnsen hefur minnst ítölsku goðsagnarinnar Gianluca Vialli á samfélagsmiðlinum Instagram en Vialli tapaði baráttunni við krabbamein fyrir helgi. Enski boltinn 9.1.2023 14:00
Andri bætti upp fyrir vítaklúðrið og bjargaði jafntefli fyrir Ísland Andri Lucas Guðjohnsen skoraði eina mark íslenska karlalandsliðsins í fótbolta er liðið gerði 1-1 jafntefli gegn Eistum í vináttuleik á Algarve í dag. Markið skoraði Andri af vítapunktinum eftir að hafa misnotað aðra spyrnu fyrr í leiknum. Fótbolti 8.1.2023 18:55
Englandsmeistararnir fóru illa með Chelsea Englandsmeistarar Manchester City unnu afar öruggan 4-0 sigur er liðið tók á móti Chelsea í stórleik þriðju umferðar FA-bikarsins. Þetta er í annað sinn á fjórum dögum sem City hefur betur gegn Chelsea, en liðin mættust einnig í deildinni fyrr í vikunni. Enski boltinn 8.1.2023 16:00
Liverpool og Wolves þurfa að mætast á ný eftir dramatískt jafntefli Liverpool og Wolves gerðu 2-2 jafntefli er liðin mættust í ensku bikarkeppninni, FA-bikarnum í kvöld. Liðin þurfa því að mætast á ný til að skera úr um hvort liðið fer áfram í fjórðu umferð. Fótbolti 7.1.2023 19:31
Annar leikmaðurinn sem Chelsea kynnir til leiks í dag Chelsea hefur tilkynnt um önnur kaup sín í janúarglugganum en enska fótboltafélagið hefur tryggt sér þjónustu brasilíska miðjumanninum Andrey Santos. Fótbolti 7.1.2023 15:44
Kane skaut Tottenham áfram í bikarnum Harry Kane skoraði sigurmark Tottenham Hotspur þegar liðið fékk Portsmouth í heimsókn á Tottenham Hotspur-leikvanginn í þriðju umferð ensku bikarkeppninnar í fótbolta karla. Fimm leikir fóru fram í enska bikarnum í hádeginu í dag. Enski boltinn 7.1.2023 12:00
Frakkar halda tryggð við Deschamps Didier Deschamps, þjálfari franska karlalandsliðsins í fótbolta, hefur framlengt samning sinn við franska knattspyrnusambandið. Nýr samningur hans gildir fram yfir lokakeppni heimsmeistaramótsins sem fram fer í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada árið 2026. Fótbolti 7.1.2023 11:46
Manchester United fyrsta liðið til að tryggja sér sæti í fjórðu umferð Manchester United varð í kvöld fyrsta liðið til að tryggja sér sæti í fjórðu umferð FA-bikarsins er liðið vann 3-1 sigur gegn Everton í úrvalsdeildarslag. Enski boltinn 6.1.2023 19:15
Allslaus Alli sem enginn vill Tyrkneska félagið Besiktas er sagt vilja losna við enska miðjumanninn Dele Alli samkvæmt þarlendum fjölmiðlum. Hann er á láni frá Everton sem hefur enn minni áhuga á að endurheimta kappann. Enski boltinn 6.1.2023 17:01
Varamaðurinn Mahrez hetja Englandsmeistaranna í stórleiknum Riyad Mahrez skoraði eina mark leiksins er Englandsmeistarar Manchester City unnu mikilvægan 0-1 útisigur gegn Chelsea í stórleik umferðarinnar í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Enski boltinn 5.1.2023 19:31
Annar eigenda West Ham látinn David Gold, annar eigenda West Ham United í ensku úrvalsdeildinni, lést í dag eftir skammvinn veikindi. Hann var 86 ára gamall. Enski boltinn 4.1.2023 14:36
Fjórði deildarsigur United í röð Manchester United hefur nú unnið fjóra leiki í röð í ensku úrvalsdeildinni eftir að liðið vann öruggan 3-0 sigur gegn Bournemouth í kvöld. Enski boltinn 3.1.2023 19:30
Newcastle stöðvaði sigurgöngu Arsenal Eftir fimm sigurleiki í röð i ensku úrvalsdeildinni þurfti topplið Arsenal að sætta sig við markalaust jafntefli er liðið tók á móti Newcastle í kvöld. Enski boltinn 3.1.2023 19:15
Þúsundir fylgdu Pelé síðasta spölinn Þúsundir manna voru samankomnir úti á götum Santos í Brasilíu í dag til að fylgja knattspyrnugoðsögninni Pelé síðasta spölinn. Pelé var lagður til hinstu hvílu á níundu hæð í kirkjugarði í boginni til heiðurs föður hans sem lék með töluna níu á bakinu á sínum ferli. Fótbolti 3.1.2023 20:00
Ronaldo segir að mörg topp félög hafi reynt að krækja í sig Portúgalska stórstjarnan Cristiano Ronaldo segist hafa fengið boð um að ganga til liðs við mörg af topp félögum Evrópu áður en hann ákvað að semja loks við Al Nassr í Sádí-Arabíu. Fótbolti 3.1.2023 18:01
„Finnst alltaf svo gaman þegar maður sér íþróttastelpur með kvenmannsnafn á treyjunni sinni“ Glódís Perla Viggósdóttir, landsliðskona í fótbolta, fagnar meiri sýnileika fótboltakvenna og segir hann lykilinn að því auknum vinsældum kvennafótboltans. Fótbolti 3.1.2023 13:00
Vill að öll lönd heims nefni leikvang í höfuðið á Pelé Gianni Infantino, forseti Alþjóðaknattspyrnusambandsins, sagði í jarðarför hins brasilíska Pelé að hann myndi biðja allir þjóðir heims um að nefna einn leikvang í höfuðið á leikmanninum goðsagnakennda. Fótbolti 3.1.2023 07:31
Ósáttur Klopp segir Brentford „beygja reglurnar“ Jürgen Klopp, þjálfari Liverpool, var verulega ósáttur með 3-1 tap sinna manna gegn Brentford í eina leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni. Þó myndbandsdómari leiksins hafi tvívegis tekið mark af Brentford í kvöld sá Klopp sig samt sem áður tilneyddan til að gagnrýna dómgæsluna og leikstíl Brentford að leik loknum. Enski boltinn 2.1.2023 21:31
Annáll Bestu deildar kvenna: Ekkert fékk Val stöðvað Valur kom, sá og sigraði í Bestu deild kvenna í sumar. Eftir óvænt tap gegn Þór/KA á Akureyri í 2. umferð var sett í fimmta gír og spólað yfir önnur lið, í deild og bikar. Íslenski boltinn 2.1.2023 20:31
Annáll Bestu deildar karla: Grænn var litur sumarsins 2022 Besta deild karla var gerð upp í Íþróttasíld Stöðvar 2 á gamlársdag. Segja má að Breiðablik hafi stolið senunni árið 2022 en eftir að missa titilinn úr greipum sér árið 2021 kom ekkert annað til greina en að landa þeim stóra. Sumarið 2022 var grænt svo vægt sé tekið til orða. Íslenski boltinn 2.1.2023 20:00
Brentford stöðvaði sigurgöngu Liverpool Brentford vann magnaðan 3-1 sigur á Liverpool í eina leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Fyrir leik hafði Liverpool unnið fjóra deildarleiki í röð. Sigurinn er enn merkilegri fyrir þær sakir að Ivan Toney, markahæsti leikmaður Brentford á leiktíðinni, var fjarri góðu gamni. Enski boltinn 2.1.2023 17:00
Leikmannahópur Freys hjá Lyngby minnkar Íslendingalið Lyngby, botnlið dönsku úrvalsdeildarinnar, hefur misst tvo leikmenn nú þegar í janúarglugganum. Hvort liðið muni styrkja sig áður en leikar hefjast að nýju í deildinni mun koma í ljós. Fótbolti 2.1.2023 19:00
Lukaku segir alla vita hvað hann vill Belgíski framherjinn Romelu Lukaku segir allan heiminn vita hvað hann vill, að Inter Milan kaupi sig til baka frá Chelsea en leikmaðurinn er sem stendur á láni hjá Inter frá Chelsea. Þá telur Lukaku að framherjinn fyrrverandi Thierry Henry sé rétti maðurinn til að stýra belgíska landsliðinu. Enski boltinn 2.1.2023 18:16
Fjölmiðlafólki vísað úr salnum við myndbirtingu: „Þetta er ósæmilegt og átakanlegt myndefni“ Erlent