Ástin á götunni
293 294 295 296 297 298 299 300 301 … 334 ›
Naumur sigur Arsenal Arsenal vann 1-0 sigur á Birmingham í ensku úrvalsdeildinni rétt í þessu og var það Robin van Persie sem skoraði eina mark leiksins á 81. mínútu. Skot Persie hafði reyndar viðkomu í Stephen Clemence og breytti um stefnu, þaðan í Taylor markvörð og yfir línuna. Birmingham lék einum manni færri frá 24. mínútu. Sport 23.10.2005 15:01
Juventus í 5 stiga forystu Juventus náði 5 stiga forystu á toppi ítölsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í kvöld með 2-0 sigri á Inter Milan. David Trezeguet og Pavel Nedved skoruðu mörk Juve sem er með 18 stig eða fullt húst stiga eftir 6 umferðir í Serie A. AC Milan og Fiorentina koma næst með 13 stig í öðru og þriðja sæti. Sport 23.10.2005 15:01
Osasuna kemur á óvart á Spáni Osasuna gerði best toppliðanna á Spáni í dag þegar liðið lyfti sér upp í 3. sæti fótboltadeildarinnar La Liga með 1-0 útisigri á Deportivo La Coruna. Inaki Munoz skoraði sigurmarkið á 19. mínútu og er Osasuna með 12 stig í þriðja sæti, tveimur stigum á eftir toppliði Getafe sem lagði Valencia í gærkvöldi. Sport 23.10.2005 15:01
Wigan lagði Bolton Nýliðar Wigan halda áfram að koma á óvart í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta en þeir unni 2-1 sigur á Bolton í deildinni í dag. Wigan er í 7. sæti deildarinnar með 13 stig, aðeins 2 stigum frá Charlton sem er í 2. sæti. Bolton er einu stigi á undan Wigan í 5. sæti. Sport 23.10.2005 15:01
Loks sigur hjá Middlesbrough Middlesbrough vann 2-3 útisigur á Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag og lyfti sér með sigrinum upp í 10. sæti deildarinnar. Aiyegbeni Yakubu skoraði 2 mörk fyrir Boro, það seinna úr vítaspyrnu á 88. mínútu en George Boateng eitt. Luke Moore og Steven Davis skoruðu mörk Aston Villa sem er í fimmta neðsta sæti með 6 stig. Sport 23.10.2005 15:01
Maldini skoraði tvö fyrir AC Milan Sjálfur varnarmaðurinn og fyrirliðinn Paolo Maldini var hetja AC Milan í dag þegar hann skoraði bæði mörk sinna manna í 2-1 sigri á Reggina. Með sigrinum lyfti liðið sér í 2. sæti Serie A í fótbolta á Ítalíu og er með 13 stig, tveimur stigum á eftir toppliði Juventus sem á leik inni gegn Inter Milan í kvöld. Sport 23.10.2005 15:01
Grétar fékk 6 mínútur með Alkmar Grétar Rafn Steinsson lék síðustu 6 mínúturnar í liði AZ Alkmar sem tyllti sér á topp hollensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag með 3-2 sigri á NEC Nijmegen. Feyenoord sem er í 2. sæti deildarinnar með jafnmörg stig og Alkmar tapaði í dag fyrir Utrecht 3-1. Sport 23.10.2005 15:01
Mörkunum rignir á Anfield Damien Duff hefur komið Chelsea aftur yfir gegn Liverpool þar sem staðan er orðin 1-2 og flautað hefur verið til hálfleiks. Duff skoraði eftir frábæran undirbúning Didier Drogba sem losaði sig skemmtilega við Sami Hyypia og kom boltanum á Duff. Markið kom á 42. mínútu. Sport 23.10.2005 15:01
Notts County án sigurs í 6 leikjum Notts County, lið Guðjóns Þórðarsonar gerði markalaust jafntefli á útivelli við Macclesfield í ensku D-deildinni í fótbolta í dag, eða 2. deild. Liðið er í 8. sæti deildarinnar með 18 stig eftir 12 umferðir og hefur ekki unnið sigur í síðustu 6 leikjum. Sport 23.10.2005 15:01
Sheffield jafnar í toppslagnum Sheffield Utd hefur jafnað metin gegn Reading í toppslag ensku 1. deildarinnar í fótbolta en Brynjar kom Reading yfir strax á 2. mínútu leiksins. Ívari Ingimarsson er einnig í byrjunarliði Reading. Liðin er í efstu tveimur sætum deildarinnar fyrir leikinn sem hófst kl. 14, Sheffield með 30 stig og Reading sex stigum á eftir. Sport 23.10.2005 15:01
West Ham í 6. sæti eftir jafntefli Sunderland og West Ham skildu jöfn, 1-1 í ensku úrvalsdeildinni í knattpsyrnu í dag en þetta var síðasta leikur dagsins í deildinni. Nýliðar West Ham eru nú í 6. sæti deildarinnar með 12 stig en Sunderland fikrar sig ofar eftir skelfilega byrjun í deildinni og er nú í 17. sæti með 5 stig. Sport 23.10.2005 15:01
Naumur sigur Man Utd Manchester United vann mikilvægan 2-3 útisigur á Fulham í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Heiðar Helguson lék síðustu 20 mínúturnar í liði Fulham eftir að hafa komið inn á sem varamaður. Tottenham vann ævintýralegan sigur á Charlton 2-3 eftir að hafa lent 2-0 undir og Newcastle gerði markalaust jafntefli við Portsmouth á útivelli. Þá vann Blackburn 2-0 sigur á W.B.A. Sport 23.10.2005 15:01
Heiðar kemur inn á gegn Man Utd Heiðar Helguson er kominn inn á sem varamaður í lið Fulham sem er 2-3 undir á heimavelli gegn Man Utd í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Heiðar kom inn á fyrir Brian Mc Bride á 71. mínútu og var dæmdur rangstæður innan við mínútu síðar og 2 mínútum eftir það straujaði hann Mikael Silvestre niður í baráttunni um boltann. Sport 23.10.2005 15:01
Getur yfirstigið allar hindranir Línur eru teknar að skýrast í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu og er greinilegt að Chelsea ætlar sér ekki að láta meistaratitilinn af hendi baráttulaust. Eiður Smári Guðjohnsen hefur ekki leikið mikið með liðinu það sem af er vegna veikinda og meiðsla en hann er nú farinn að láta að sér kveða á nýjan leik Sport 23.10.2005 15:01
Brynjar var hetja Reading Brynjar Björn Gunnarsson var hetja Reading og skoraði bæði mörk liðsins í 2-1 sigri á Sheffield Utd í toppslag ensku 1. deildarinnar í fótbolta í dag. Sigurmarkið skoraði Brynjar á 89. mínútu. Hannes Sigurðsson lék sinn fyrsta leik fyrir Stoke sem tapaði fyrir Bjarna Guðjónssyni og félögum í Plymouth. Sport 23.10.2005 15:01
Brynjar Björn búinn að skora Brynjar Björn Gunnarsson er búinn að koma Reading yfir gegn Sheffield United í toppslagnum í ensku 1. deildinni. Brynjar skoraði markið strax á 2. mínútu leiksins en hann er ásamt Ívari Ingimarssyni í byrjunarliði Reading. Liðin er í efstu tveimur sætum deildarinnar fyrir leikinn, Sheffield með 30 stig og Reading sex stigum á eftir. Sport 23.10.2005 15:01
Pressan er öll á Liverpool Liverpool og Chelsea mætast öðru sinni á innan við viku þegar liðin mætast á Anfield í dag en leikur liðanna í Meistaradeild Evrópu endaði með markalausu jafntefli. Úrslitin komu fáum á óvart enda hafa varnir liðanna verið afar sterkar það sem af er tímabilinu. Nú eru þrjú stig í boði í deildinni og það er ljóst að pressan er öll á Liverpool þar sem liðið er fjórtan stigum á eftir Chelsea, en reyndar á liðið tvo leiki til góða. Sport 23.10.2005 15:01
Stack sýknaður Markvörður Arsenal, Graham Stack, sem er í láni hjá liði Reading, var í dag sýknaður af nauðgunarákæru sem hann fékk á sig fyrir ári síðan. Hann hafði verið sakaður um að hafa nauðgað 22 ára gömlum laganema í London þann 1. september í fyrra. Sport 23.10.2005 15:01
Þórður á heimleið frá Stoke Landsliðsmaðurinn í knattspyrnu, Þórður Guðjónsson, segir í samtali við <em>Morgunblaðið</em> í dag að hann hafi tekið þá ákvörðun að snúa heim til Íslands þegar samningur hans við enska 1. deildarliðið Stoke City rennur út næsta vor. Þórður sem orðinn er 32 ára hefur ekkert leikið með Stoke á þessri leiktíð og ekki er gert ráð fyrir því í áætlunum knattspyrnustjóra liðsins, Johans Boskamp. Sport 23.10.2005 15:01
Mikil meiðsli hjá Birmingham Steve Bruce, stjóri Birmingham í ensku úrvalsdeildinni, á í stökustu erfiðleikum með að ná í fullskipað lið fyrir leikinn gegn Arsenal á sunnudaginn vegna meiðsla sem hrjá leikmenn liðsins. Sport 23.10.2005 15:01
Marel á leið heim Marel Jóhann Baldvinsson, knattspyrnumaður Lokeren í Belgíu, er á heimleið eftir rúm fimm ár í atvinnumennsku. Marel hefur átt við erfið meiðsli á hné að stríða undanfarin ár og sækist nú eftir starfslokasamningi hjá belgíska liðinu. Sport 23.10.2005 15:01
Skagamenn ræða við Þórð Skagamenn eiga í viðræðum við Þórð Guðjónsson um að hann gangi á ný til liðs við félagið. Þórður hefur fengið þau skilaboð frá Johan Boskamp, knattspyrnustjóra Stoke City, að hann muni ekki fá tækifæri í liðinu í vetur. Sport 23.10.2005 15:01
Táningarnir fá tækifæri Eyjólfur Gjafar Sverrisson, landsliðsþjálfari ungmennaliðs Íslands í knattspyrnu skipað leikmönnum 21 árs og yngri, hefur ákveðið að gefa þremur unglingum tækifæri í landsleik gegn Svíum í undankeppni Evrópukeppninnar árið 2006 þann 11. október nk. Sport 23.10.2005 15:01
Keane ekki forgangsatriði Carlos Queiroz, aðstoðarmaður Alex Ferguson hjá Manchester United, segir að samningaviðræður við fyrirliðann Roy Keane hafi ekki forgang í augnablikinu, heldur séu menn í herbúðum liðsins fyrst og fremst að einbeita sér að leiknum við Fulham í deildinni á sunnudaginn. Sport 23.10.2005 15:01
Gerrard vill meiri ævintýramennsku Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, segir að Chelsea séu langt í frá ósigrandi og vill að lið sitt verði frakkara í sóknarleiknum á sunnudaginn þegar liðin mætast í ensku úrvalsdeildinni. Sport 23.10.2005 15:01
Beckham fer í gömlu stöðuna Talið er víst að David Beckham muni fá gömlu stöðuna sína á hægri kantinum hjá enska landsliðinu aftur þegar liðið mætir Austurríki í undankeppni HM í byrjun mánaðarins. Þá stendur landsliðsþjálfarinn fram fyrir erfiðum ákvörðunum varðandi nokkrar stöður í liðinu. Sport 23.10.2005 15:01
Everton úr leik Everton er fallið úr leik í Evrópukeppni félagsliða í knattspyrnu, þrátt fyrir að hafa sigrað rúmenska liðið Dinamo Búkarest 1-0 í kvöld, með marki frá Tim Cahill. Dinamo vann fyrri leikinn í Rúmeníu 5-1 og samanlagt 5-2. Þetta er enn eitt áfallið fyrir Everton, sem hefur byrjað leiktíðina skelfilega í ár, eftir gott gengi á síðustu leiktíð. Sport 23.10.2005 15:00
Tromsö sló út Galatasaray Norska liðið Tromsö gerði sér lítið fyrir og sló tyrkneska liðið Galatasaray út í Evrópukeppni félagsliða nú í kvöld. Norska liðið vann fyrri leikinn í Tromsö 1-0, og náði svo jafntefli í Tyrklandi í kvöld 1-1. Sport 23.10.2005 15:00
Fer Keane frá United? Roy Keane, fyrirliði Manchester United segist ekki eiga von á öðru en hann muni yfirgefa félagið næsta sumar þegar samningur hans rennur út. Sport 23.10.2005 15:00
Eiður handarbrotinn Eiður Smári Guðjohnsen, fyrirliði íslenska landsliðsins í knattspyrnu, handabrotnaði á æfingu með Chelsea fyrir skemmstu en þarf þó ekki að taka sér frí frá æfingum eða keppni. Sport 23.10.2005 15:00