Ástin á götunni

Fréttamynd

Reid hefur ekki áhuga á Plymouth

Fyrrum knattspyrnustjórinn Peter Reid segist ekki vera rétti maðurinn til að taka við liði Bjarna Guðjónssonar í ensku fyrstu deildinni, en hann er einn þeirra sem orðaður er við stöðu knattspyrnustjóra félagsins.

Sport
Fréttamynd

Lyon ætlar að sigra Real Madrid

Forsvarsmenn frönsku meistaranna í Lyon ætlast til sigurs þegar liðið mætir Real Madrid í Meistaradeild Evrópu annað kvöld, en það eykur vonir Frakkanna að spænska liðið verður án þeirra Zinedine Zidane og Ronaldo í leiknum.

Sport
Fréttamynd

Juventust burstaði Empoli

Juventus, Livorno og Udinese eru einu liðin með fullt hús stiga eftir tvær umferðir í ítölsku fyrstu deildinni í knattspyrnu. Juve burstaði Empoli 4-0 í gær. Frakkinn Patrick Viera skoraði fyrsta mark sitt fyrir Juve og landi hans, David Trezeguet, skoraði tvívegis.

Sport
Fréttamynd

Þrenna frá Marlon Harewood

Marlon Harewood skoraði þrennu í kvöld fyrir West ham í 4-0 sigri á Aston Villa í lokaleik 5. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar. Með sigrinum komust nýliðarnir upp í 7. sæti deildarinnar. Harewood skoraði mörkin á 25 mínútna kafla, tvö á stuttum tíma um miðjan fyrri hálfleik og það síðasta á upphafsmínútum þess seinni.

Sport
Fréttamynd

Barcelona lagði Real Mallorca

Barcelona bar sigurorð af Real Mallorca með tveimur gegn engu í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær. Samuel Eto´o skoraði bæði mörk meistaranna gegn sínum gömlu félögum. Celta Vigo, sem vann Real Madrid á laugardag, og Deportivo La Coruna eru efst og jöfn með sex stig eftir tvær umferðir.

Sport
Fréttamynd

Pardew skorar á leikmenn sína

Alan Pardew, knattspyrnustjóri West Ham, hefur skorað á framherja sína að sanna fyrir sér að hann þurfi ekki á kröftum Suður-Afríkumannsins Benny McCarthy að halda, með því að raða inn mörkum fyrir liðið.

Sport
Fréttamynd

Áfall fyrir Arsenal

Lið Arsenal fékk ekki góðar fréttir í morgun, því þá kom í ljós að framherji þeirra og fyrirliði, Thierry Henry, verður frá keppni í allt að fjórar vikur vegna nárameiðsla sem hrjá hann um þessar mundir og er það mun lengri tími en búist var við í upphafi.

Sport
Fréttamynd

Kári og félagar í góðum málum

Kári Árnason lék allan leikinn með Djurgårdens IF sem vann 2-0 sigur á Malmö í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld og náði þar með þriggja stiga forskot á toppnum þegar aðeins fimm umferðir eru eftir. Djurgårdens IF hefur 43 stig, þremur stigum meira IFK Göteborg sem gerði markalaust jafntefli í kvöld.

Sport
Fréttamynd

Makaay klár með Bayern

Hollenska markamaskínan Roy Makaay verður í liði Bayern Munchen sem sækir Rapid Vín heim í Meistaradeildinni á miðvikudag. Makaay varð fyrir því óláni að meiðast á hné fyrir nokkru og missti af leik liðsins í þýsku úrvalsdeildinni um helgina.

Sport
Fréttamynd

Leik Lokeren aflýst í gær

Leik Íslendingaliðs Lokeren gegn Lierse í belgísku deildinni í gær var frestað vegna hættuástands sem myndaðist á vellinum í kjölfar ausandi rigningar og þrumuveðurs.

Sport
Fréttamynd

Jörundur tilkynnir landsliðshópinn

Jörundur Áki Sveinsson hefur tilkynnt kvennalandsliðshópinn sem mætir Tékkum í undankeppni HM í Kravare í Tékklandi þann 24. september næstkomandi, en þar ber hæst að markadrottningin Olga Færseth hefur verið valin á ný í hópinn.

Sport
Fréttamynd

Del Horno meiddur

Spænski landsliðsmaðurinn Asier del Horno, sem nýverið gekk í raðir Chelsea, meiddist á læri í leiknum við Sunderland í gær og verður ekki með liðinu á næstunni. Jose Mourinho segir að menn verði að sætta sig við að mikið álag í kring um landsleiki verði til þess að menn lendi í meiðslum.

Sport
Fréttamynd

Óvænt úrslit á Spáni og Ítalíu

Óvænt úrslit urðu í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu í gær þegar Real Madríd tapaði á heimavelli fyrir nýliðum Celta de Vigo. Þá mátti Internazionale þola ósigur gegn Palermo á Ítalíu.

Sport
Fréttamynd

Ronaldo fær frí á miðvikudag

Ungstirnið Cristiano Ronaldo fær frí frá leik Manchester United og Villareal á Spáni á miðvikudagskvöldið, vegna fráfalls föður hans á dögunum. Ronaldo var ekki með liði sínu í jafnteflinu gegn grannaliðinu Manchester City á laugardaginn og Alex Ferguson ætlar að gefa honum lengri tíma til að jafna sig.

Sport
Fréttamynd

Áform KR heilluðu Teit

Teitur Þórðarson, nýráðinn þjálfari KR í knattspyrnu, sagði að ekki hefði staðið til að koma strax aftur heim til Íslands, en sagði tilboð KR hafa freistað sín vegna þeirra áætlana sem þeir hafi uppi um uppbyggingarstarf á næstu árum.

Sport
Fréttamynd

Benitez vill skerpa sóknina

Rafael Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool, er ánægður með leik sinna manna það sem af er leiktíðinni, en segist þó vilja skerpa á sóknarleik liðsins, sem hefur ekki verið upp á marga fiska í undanförnum leikjum.

Sport
Fréttamynd

Bolton og Blackburn skildu jöfn

Nú rétt í þessu lauk sunnudagsleiknum í enska boltanum, en það var viðureign Bolton og Blackburn á Reebok Stadium í Bolton. Leiknum lauk með markalausu jafntefli og fyrir vikið er Bolton í 5. sæti deildarinnar með átta stig úr fimm leikjum, en Blackburn, sem fékk sitt fyrsta stig á útivelli í dag, er með fimm stig í 12. sætinu.

Sport
Fréttamynd

Gunnar Heiðar tryggði sigurinn

Íslenski landsliðsframherjinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson heldur áfram að minna á sig í sænska boltanum, en nú fyrir stundu var að ljúka leik Hacken og Halmstad í sænsku úrvalsdeildinni. Leiknum lauk með 1-0 sigri Halmstad og það var Gunnar Heiðar sem skoraði sigurmarkið á 70. mínútu leiksins.

Sport
Fréttamynd

Jenas vill Evrópusæti

Jermaine Jenas, sem lék sinn fyrsta leik fyrir Tottenham Hotspurs í jafntefli liðsins við Liverpool í gær, segir að liðið eigi raunhæfa möguleika á að ná Meistaradeildarsæti í úrvalsdeildinni í ár.

Sport
Fréttamynd

Guðjón æfur út í dómara

Guðjón Þórðarson lét dómarann sem dæmdi leik Notts County og Chester City í gær, hafa það óþvegið í viðtali við heimasíðu Notts County eftir leikinn, sem endaði 1-1. Guðjón sagði sorglegt að jafn óreyndur dómari fengi að dæma leiki af þessu tagi.

Sport
Fréttamynd

Luque frá í sex vikur

Sóknarmaðurinn Alberto Luque hjá Newcastle verður frá keppni í allt að sex vikur eftir að hann var borin af velli í leik liðsins gegn Fulham í gær, en hann er meiddur á læri.

Sport
Fréttamynd

Best vill reka Eriksson

Knattspyrnugoðsögnin George Best, sem gerði garðinn frægan hjá Manchester United á sínum tíma, liggur ekki á skoðunum sínum þegar kemur að málum enska landsliðsins í knattspyrnu og segir að reka ætti Eriksson úr starfi hið snarasta.

Sport
Fréttamynd

Hartley skaut Hearts á toppinn

Markahrókurinn Paul Hartley skoraði tvívegis þegar lið hans Hearts frá Edinborg lagði botnliði Livingston 4-1 í skosku úrvalsdeildinni í dag og því hefur liðið nú fimm stiga forystu á Glasgow Celtic á toppi úrvalsdeildarinnar þegar sex umferðir hafa verið leiknar.

Sport
Fréttamynd

Maccarone kemur Boro í 2-0

Massimo Maccarone hefur komið Middlesbrough í 2-0 gegn Arsenal í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni og því er útlitið orðið svart hjá bikarmeisturunum. Aðeins um stundarfjórðungur er eftir af leiknum.

Sport
Fréttamynd

Wenger slær á létta strengi

Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, er ekki vanur að vera mikill háðfugl, en þegar hann var spurður út í ráðningu grannaliðsins Tottenham á Damien Comolli á dögunum, sá hann ástæðu til að slá á létta strengi.

Sport
Fréttamynd

Middlesbrough lagði Arsenal 2-1

Middlesbrough vann frækinn sigur á Arsenal í síðasta leiknum í ensku úrvalsdeildinni í dag. Það voru þeir Yakubu og Massimo Maccarone sem komu heimamönnum í 2-0, en Spánverjinn Jose Antonio Reyes minnkaði muninn í uppbótartíma fyrir Arsenal, sem hefur nú tapað tveimur af fyrstu fjórum leikjum sínum í deildinni.

Sport
Fréttamynd

Breiðablik komið yfir

Blikastúlkur voru rétt í þessu að komast yfir 2-1 gegn KR í bikarúrslitaleik kvenna á Laugardalsvelli. KR stúlkur komust í 1-0 eftir aðeins fimm mínútna leik, en Blikastúlkur komust yfir 2-1 í blálokin á hálfleiknum.

Sport
Fréttamynd

Jol hrósar Michael Carrick

Martin Jol, knattspyrnustjóri Tottenham Hotspurs, hrósaði miðjumanni sínum Michael Carrick í hástert eftir leikinn við Liverpool í dag og sagði hann hafa átt miðjuna í leiknum. Jol segist ekki skilja af hverju Carrick er ekki valinn í enska landsliðið.

Sport
Fréttamynd

Draumur í dós

Við byrjuðum þennan leik reyndar á hælunum en það var fínt að fá á okkur þetta mark. Þetta var eins og gusa framan í okkur og áttu þær ekki möguleika eftir að við byrjuðum að skora okkar mörk," sagði fyrirliði og markvörður Breiðabliks, Þóra Helgadóttir, eftir bikarsigurinn í gær.

Sport
Fréttamynd

Blikar lyftu bikarnum í 1. deild

Breiðablik vann góðan 2-1 sigur á KA í Kópavogi í dag og fengu afhentan bikarinn fyrir sigurinn í fyrstu deildinni eftir leikinn. KA menn þurftu helst að sigra í leiknum, því þeir voru í harðri baráttu við Víking um að komast upp í Landsbankadeild að ári, en þeim varð ekki að ósk sinni.

Sport