Spænski boltinn
232 233 234 235 236 237 238 239 240 … 266 ›
Vicente frá í mánuð Spænski landsliðsmaðurinn Vicente hjá Valencia verður frá keppni í mánuð vegna meiðsla á læri. Þetta kom í ljós eftir að hann fór til sérfræðinga í Madrid í gær sem fengnir voru til að skoða hann eftir að hann hélt því fram í fjölmiðlum að læknar Valencia væru vanhæfir. Hann á yfir höfði sér sekt vegna þeirrar yfirlýsingar, en læknar Valencia höfðu áður dæmt að meiðsli hans væru af sálrænum toga. Fótbolti 7.9.2007 13:38
Segir Eið Smára kominn út í kuldann hjá Barcelona Spænska blaðið Sport í Katalóníu segir að Eiður Smári Guðjohnsen sé kominn út í kuldann hjá forráðamönnum Barcelona fyrir að neita að ganga í raðir West Ham á síðustu dögum félagaskiptagluggans í sumar. Fótbolti 7.9.2007 13:23
Dos Santos er ekki á förum frá Barcelona Faðir mexíkóska undrabarnsins Giovani Dos Santos hjá Barcelona segir ekkert til í blaðaskrifum á Englandi þar sem fullyrt hefur verið að Chelsea sé að undirbúa kauptilboð í drenginn. Dos Santos hefur náð að komast í aðallið Barcelona og þykir eitt mesta efni í Evrópu. Faðir hans segir drenginn ánægðan hjá Barcelona og bendir á að hann sé í viðræðum um nýjan samning við Katalóníufélagið. Fótbolti 7.9.2007 11:06
Riquelme byrjaður að æfa með Villarreal á ný Argentínski leikstjórnandinn Juan Roman Riquelme mætti í dag á sína fyrstu æfingu með spænska liðinu Villarreal í langan tíma. Riquelme var í sumar tjáð að krafta hans væri ekki lengur óskað hjá félaginu eftir ósætti hans við þjálfarann, en hann hefur nú snúið til æfinga á ný með liðinu eftir að hafa æft einn í tvær vikur. Fótbolti 4.9.2007 13:59
Henry er enn að venjast gömlu stöðunni Franski framherjinn Thierry Henry hefur verið látinn í sína gömlu stöðu á vinstri vængnum í fyrstu leikjum sínum með Barcelona á Spáni. Henry viðurkennir að hann sé enn að venjast stöðunni sem hann spilaði þegar hann var hjá Juventus, reyndar með misjöfnum árangri. Fótbolti 4.9.2007 13:42
Schuster kannast vel við takta Sneijder Bernd Schuster, þjálfari Real Madrid, var að vonum ánægður með frábæran leik Hollendingsins Wesley Sneijder um helgina þegar Real Madrid burstaði Villarreal 5-0 á útivelli. Sneijder skoraði tvö mörk og lagði upp eitt og sagði Schuster hann hafa minnt sig á annan glókoll sem lék með Real á árum áður. Fótbolti 3.9.2007 15:45
Dýr skilnaður í vændum hjá Thierry Henry Franski framherjinn Thierry Henry skildi í dag við konu sína til fjögurra ára, fyrirsætuna Claire Merry. Gengið var frá skilnaðinum í réttarsal í Lundúnum í morgun en hvorugt þeirra hjóna var viðstatt. Talið er að skilnaðurinn gæti átt eftir að kosta markaskorara Barcelona vænar fúlgur. Fótbolti 3.9.2007 14:58
Gio er leynivopn Franks Rijkaard Átján ára mexíkóskur strákur sló í gegn á undirbúningstímabilinu hjá Barcelona og eykur enn við sóknarþunga snillinganna og samkeppnina hjá Eiði Smára Guðjohnsen í framlínu liðsins. Fótbolti 2.9.2007 22:05
Verður Cannavaro seldur til AC Milan áður en glugginn lokar? Vaxandi orðrómur er bæði á Ítalíu og á Spáni um að Fabio Cannavaro, varnarmaður Real Madrid, gæti verið seldur til AC Milan áður en leikmannaglugginn lokar á föstudaginn. Þessi 33 ára gamli Ítali hefur margoft sagt að hugur hans sé hjá Spánarmeisturunum en oðrómur er um að hann sé falur fyrir sjö milljónir evra. Fótbolti 29.8.2007 17:55
Riguelme til Madríd? Juan Roman Riquelme, miðjumaður Villareal, hefur samþykkt að skrifa undir tveggja ára samning við Atletico Madrid samkvæmt spænsku útvarpsstöðinni Cadena Ser. Engin opinber tilkynning hefur komið frá klúbbunum en útvarpsstöðin segist hafa heimildarmann sem er náinn leikmanninum. Fótbolti 29.8.2007 17:17
Uppfært: Puerta er látinn Spænski landsliðsmaðurinn Antonio Puerta lést í dag á Virgen del Rocio sjúkrahúsinu í Sevilla. Puerta, sem lék með knattspyrnuliði borgarinnar, hneig niður í leik við Getafe um helgina. Læknar segja að hann hafi fengið hjartaáfall. Enski boltinn 28.8.2007 13:41
Spænskur landsliðsmaður fékk hjartaáfall í miðjum leik Jose Maria del Nido, forseti Sevilla, hefur staðfest að Antonio Puerta, leikmaður liðsins, hafi fengið hjartaáfall í miðjum leik liðsins gegn Getafé í gær. Líðan Puerta er stöðug en hann er þó ennþá undir eftirliti en leikmaðurinn féll niður í eigin teig í leiknum í gær á 35. mínútu leiksins. Spænski landsliðsmaðurinn stóð þó upp og gekk af velli, en þegar í búningsherbegið var komið féll hann aftur niður og var fluttur á sjúkrahús nálægt vellinum. Fótbolti 27.8.2007 15:54
Robben og Heinze búnir að skrifa undir hjá Real Madrid Real Madrid er búið að ganga frá kaupunum á Gabriel Heinze frá Manchester United og Arjen Robben frá Chelsea. Leikmennirnir skrifuðu báðir undir samning í dag eftir að hafa staðist læknisskoðun hjá félaginu. Madrid borgaði 24 milljónir punda fyrir Robben sem skrifaði undir fimm ára samning, en Heinze kostaði félagið átta milljónir punda og skrifaði hann undir fjögurra ára samning. Fótbolti 23.8.2007 16:21
Van Nistelrooy valinn á ný Ruud van Nistelrooy, framherji Real Madrid, hefur verið valinn í hollenska landsliðið á ný eftir að hafa verið úti í kuldanum frá því á HM í fyrra. Fótbolti 17.8.2007 17:33
Eiður Smári hefur áhyggjur af meiðslum sínum Miklar vangaveltur hafa verið um framtíð Eiðs Smára Guðjohnsens hjá Barcelona en þær eru allar í biðstöðu vegna hnémeiðsla hans. Eiður Smári hefur áhyggjur af meiðslunum því að bati er enginn og sprautumeðferð hefur ekki skilað neinum árangri. Eiður Smári vonast til að þurfa ekki að fara undir hnífinn. Fótbolti 13.8.2007 20:02
Barcelona hafnar 40 milljón pundum frá AC Milan Umboðsmaður Ronaldinho, Roberto Assis, sagði í viðtali við blaðið Gazzetta della Sport um helgina að Barcelona hefði hafnað 40 milljón punda tilboði í leikmanninn. Assis sem er einnig bróðir leikmannsins segir að svo virðist sem Barcelona ætli í staðinn að leggja fram nýtt samningstilboð sem haldi Ronaldinho hjá Barcelona til ferill hans er enda. Fótbolti 13.8.2007 09:13
Hvetur Eið til að leita á önnur mið Yfirmaður knattspyrnudeildar hjá Barcelona hvetur Eið Smára Guðjohnsen til að leita á önnur mið. Hann segir ákvörðun Eiðs um að vera áfram hjá félaginu, slæma ákvörðun. Fótbolti 11.8.2007 18:01
Sevilla hefur hafnað tveimur tilboðum í Alves Forráðamenn Sevilla segjast hafa hafnað tveimur tilboðum í bakvörðinn eftirsótta Daniel Alves. Ástæðuna segja þeir vera að þeir séu að bíða eftir ásættanlegu tilboði. Talið er að Chelsea standi á bakvið tilboðin sem hljómuðu upp á 21,7 milljónir punda og 23,7 milljónir punda, en Chelsea hefur verið sterklega orðað við leikmanninn. Fótbolti 10.8.2007 15:54
Nicolau Casaus látinn Nicolau Casaus, fyrrverandi varaforseti Barcelona er látinn, 94 ára að aldri. Í virðingarskyni fyrir Casaus verður öllum fánum liðsins flaggað í hálfa stöng í dag. Minningarathöfn þessa sterka persónuleika verður haldin á hádegi á morgun við Tanatorio de Les Corts í Barcelona. Fótbolti 9.8.2007 15:03
Valencia að tryggja sér Zigic? Samkvæmt breskum fjölmiðlum hefur spænska liðið Valencia náð samkomulagi um kaup á hávaxna framherjanum Nikola Zigic frá Racing Santander. Talið er að umsamið verð á leikmanninum sé um 10,1 milljón punda. Fleiri félög hafa sýnt þessum serbneska landsliðsmanni áhuga, þ.á.m. Manchester City, Werder Bermen og Fenerbache. Fótbolti 8.8.2007 18:40
Eiður Smári og Messi æfðu í gær - Eiður aðeins í 15 mínútur Eiður Smári Guðjohnsen æfði í gær á æfingasvæði Barcelona með Lionel Messi en þetta var fyrsta æfing Messi eftir þáttöku hans í Suður-Ameríkubikarnum í sumar. Þeir tóku létta æfingu þar sem þeir hlupu með bolta, æfðu sendingar og gerðu stuttar þolæfingar. Eiður Smári æfði þó aðeins í 15 mínútur þar sem hann er að jafna sig af hnémeiðslum, en Messi æfði einn í kjölfarið. Fótbolti 8.8.2007 15:39
Eiður telur sig eiga góða möguleika Enskir fjölmiðlar héldu áfram að bendla Eið Smára Guðjohnsen við sölu til West Ham í gær eftir að Íslendingafélagið samþykkti tveggja milljón króna greiðslu frá umboðsmanninum Kia Joorabchian til að losa argentínska framherjann Carlos Tevez undan samningi við félagið. Fótbolti 3.8.2007 15:36
Eiður Smári fer ekki til Asíu með Barcelona Eiður Smári Guðjohnsen mun ekki ferðast með Barcelona til Asíu í æfingaferð vegna meiðsla á hné. Landsliðsfyrirliðinn missti einnig af æfingaferð Barcelona til Skotlands í síðustu viku. Carlos Puyol og Edmílson eru einnig meiddir og fara því ekki með til Asíu. Þar að auki eru Lionel Messi, Rafa Márques og Gabi Milito enn í frí vegna þátttöku þeirra í Suður-Ameríkukeppninni. Fótbolti 31.7.2007 15:53
Deco vill vinna aftur með Mourinho Miðjumaðurinn Deco hjá Barcelona hefur gefið það út að hann myndi langa að vinna með José Mourinho, framkvæmdastjóra Chelsea. Deco var einn af lykilmönnum Porto þegar liðið varð Evrópumeistari undir stjórn Mourinho. Orðrómur hefur verið á kreiki að Barcelona vilji losna við leikmanninn vegna komu Thierry Henry í liðið. Fótbolti 31.7.2007 14:17
Atletico Madrid klófestir Reyes Atletico Madrid hefur staðfest að þeir hafi nælt sér í Jose Antonio Reyes frá Arsenal. Spænski framherjinn hefur ekki farið leynt með að hann vilji spila í heimalandinu eftir vonbrigði á Englandi með Arsenal, en hann var á láni hjá Real Madrid á síðasta tímabili. Á vefsíðu Skysports kemur fram að Reyes muni skrifa undir fjögurra ára samning við félagið og kaupverðið er talið vera um 8,1 milljón punda. Fótbolti 30.7.2007 21:55
Arnór: Eiður er opinn fyrir að ganga til liðs við West Ham Arnór Guðjohnsen, faðir og umboðsmaður Eiðs Smára Guðjohnsen, segir að sonur sinn væri áhugasamur um að ganga til liðs við West Ham. Eiður hefur verið sterklega orðaður við West Ham í sumar. Eftir að Barcelona keypti Thierry Henry fyrr í sumar er ljóst að Eiður hefur færst aftar í goggunarröðina. Fótbolti 30.7.2007 16:22
Nicola Zigic vinsæll í Evrópu Nicola Zigic, serbneski framherjinn hjá Racing Santander, er vinsæll á meðal liða víðs vegar um Evrópu. Fenerbache og Manchester City höfðu bæði lýst yfir áhuga sínum á kappanum og nú hefur Werder Bremen bæst í hópinn. Fótbolti 30.7.2007 14:13
Rijkaard segir það ekki vera vandamál að stilla stjörnunum í byrjunarliðið Frank Rijkaard segir að að það verði ekkert mál að stilla stjörnunum fjórum upp saman í byrjunarliði Barcelona. Þar á hann við Samuel Eto´o, Lionel Messi, Ronaldinho og Thierry Henry, en mikið hefur verið rætt um að þeir gætu ekki allir verið í byrjunarliðinu. Fótbolti 27.7.2007 14:29
Henry skoraði í fyrsta leiknum fyrir Barcelona Thierry Henry skoraði eina mark Barcelona í sigri gegn Dundee United í Skotlandi í kvöld. Markið kom á 89. mínútu eftir vítaspyrnu. Henry tók spyrnuna sem var varin en hann fylgdi vel á eftir. Þetta var fyrsti leikurinn sem Henry spilar fyrir Barcelona en hann kom frá Arsenal í sumar. Fótbolti 26.7.2007 21:42
Eiður ekki með Barcelona í Skotlandi Eiður Smári Guðjohnsen verður ekki með Barcelona í æfingaferð liðsins til Skotlands vegna meiðsla á hné. Carlos Puyol verður ekki heldur með vegna meiðsla, auk þess sem að Lionel Messi, Gaby Milito og Rafa Márguez er enn í fríi vegna þáttöku þeirra í Suður-Ameríkukeppninni. Fótbolti 23.7.2007 15:07