Spænski boltinn
248 249 250 251 252 253 254 255 256 … 266 ›
Barcelona 1-1 Valencia Barcelona og Valencia gerðu 1-1 jafntefli á Camp Nou leikvanginum í Barcelona. Það var David Villa sem skoraði fyrir Valencia en Andres Iniesta jafnaði metin fyrir Barcelona. Eiður Smári Guðjohnsen sat á bekknum og kom ekki inn á. Önnur úrslit á Spáni: Fótbolti 24.9.2006 20:57
1-0 fyrir Valencia Staðan í hálfleik í leik Barcelona og Valencia á Camp Nou í Barcelona er 1-0 fyrir Valencia. Það var David Villa sem skoraði markið. Eiður Smári er á bekknum í liði Barcelona. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn. Fótbolti 24.9.2006 19:53
Barcelona - Valencia í kvöld Eiður Smári Guðjohnsen verður væntanlega í eldlínunni þegar Barcelona fær Valencia í heimsókn í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 19:00 og verður í beinni útsendingu á Sýn. Eiður Smári kom inn á um síðustu helgi og fiskaði m.a. vítaspyrnu. Fótbolti 24.9.2006 17:43
Feginn að losna frá Englandi Spænski framherjinn Fernando Morientes gerði ekki gott mót á þeim mánuðum sem hann lék með Liverpool, en hann hefur nú tekið upp fyrri iðju í heimalandinu og raðar inn mörkunum fyrir Valencia. Hann segist feginn að vera laus frá Englandi, því knattspyrnan þar hafi engan veginn fallið að sínum leikstíl. Fótbolti 21.9.2006 19:37
Mjög sáttur þrátt fyrir að vera á bekknum Eiður Smári Guðjohnsen segist fullkomlega sáttur við lífið hjá nýja liðinu sínu Barcelona þó hann hafi þurft að verma varamannabekkinn hjá liðinu fyrstu vikurnar, líkt og hann gerði hjá Chelsea. Hann segir að leikstíll þeirra Frank Rijkaard og Jose Mourinho sé hreint ekki svo ólíkur. Fótbolti 20.9.2006 20:24
Kveikir í mér að sjá konuna í búningnum Enska knattspyrnugoðið David Beckham viðurkenndi í viðtali við útvarpsmanninn og félaga sinn Chris Moyles að það kveikti í sér þegar konan hans gengi um í búningum af sér. Hann segir konu sína Victoriu gjarnan ganga um í keppnistreyjum sínum í húsi þeirra hjóna og viðurkennir að stundum fái hann morgunmat í rúmið frá konunni í treyju hans einni fata. Fótbolti 19.9.2006 16:52
Einn besti dagur í lífi mínu Jose Antonio Reyes, leikmaður Real Madrid á Spáni, skoraði sitt fyrsta mark fyrir félagið í gærkvöld þegar það lagði Real Sociedad 2-0 á heimavelli sínum. Reyes var að spila sinn fyrsta heimaleik fyrir félagið og sagðist ekki hafa geta beðið um betri byrjun. Fótbolti 18.9.2006 16:30
Real Madrid lagði Sociedad Real Madrid lagði Real Sociedad 2-0 á heimavelli sínum í lokaleik kvöldsins í spænska boltanum. Jose Antonio Reyes skoraði sitt fyrsta mark fyrir Real og kom liðinu yfir þegar langt var liðið á síðari hálfleik, en það var svo varamaðurinn David Beckham sem gerði út um leikinn með marki á lokamínútunni. Ekki er hægt að segja að hafi verið glæsibragur á leik Real, en Fabio Capello þjálfari er enn að slípa það saman eftir miklar breytingar í sumar. Fótbolti 17.9.2006 21:30
Eiður fiskaði vítaspyrnu Barcelona var ekki í teljandi vandræðum með að leggja lið Racing Santander í spænska boltanum í dag og hafði 3-0 sigur á útivelli. Eiður Smári Guðjohnsen spilaði síðasta stundarfjórðunginn í leiknum og náði að setja mark sitt á leikinn með því að fiska vítaspyrnu, en úr henni skoraði Ronaldinho örugglega. Ludovic Giuly og Samuel Eto´o voru einnig á skotskónum í liði meistaranna. Fótbolti 17.9.2006 20:13
Racing - Barcelona í beinni Leikur Racing Santander og Barcelona er nú að hefjast í beinni útsendingu á Sýn. Það er hinn óviðjafnanlegi Guðjón Guðmundsson sem lýsir leiknum og vonandi fá áhorfendur tækifæri til að sjá landsliðsfyrirliðann Eið Smára Guðjohnsen spreyta sig hjá Katalóníuliðinu, en hann er á varamannabekknum í dag. Síðar í kvöld er svo leikur Real Madrid og Real Sociedad sýndur beint á Sýn. Fótbolti 17.9.2006 17:53
Deportivo lagði Villarreal Einn leikur fór fram í spænska boltanum í kvöld. Deportivo La Corunia bar sigurorð af Villarreal 2-0 á heimavelli sínum, þar sem Juan Capdevila skoraði bæði mörk Deportivo. Leikurinn var sýndur beint á Sýn. Fótbolti 16.9.2006 21:50
Deportivo yfir í hálfleik Nú stendur yfir leikur Deportivo la Corunia og Villarreal í spænsku deildinni og hefur Deportivo 1-0 yfir þegar flautað hefur verið til hálfleiks. Þorsteinn Gunnarsson lýsir leiknum beint á Sýn, en það var Capdevila sem skoraði mark Deportivo í fyrri hálfleik. Fótbolti 16.9.2006 20:54
Torres hjá Atletico til 2009 Fernando Torres, leikmaður Atletico Madrid, hefur framlengt samning sinn við félagið til ársins 2009. Torres hefur verið orðaður við nokkur lið undanfarin tvö ár en hefur nú slegið á allar sögusagnir um að hann vilji yfirgefa Atletico. Fótbolti 13.9.2006 20:49
Nistelrooy skoraði þrennu Hollenski framherjinn Ruud van Nistelrooy fór hamförum og skoraði þrennu þegar Real Madrid burstaði Levante 4-1 á útivelli í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Þetta var fyrsti sigur Real í deildinni í ár. Fótbolti 10.9.2006 20:40
Eiður Smári á bekknum Eiður Smári Guðjohnsen byrjar á varamannabekk Barcelona sem tekur á móti Osasuna í spænsku úrvalsdeildinni. Ronaldinho, Messi og Eto´o eru í fremstu víglínu Barca en athygli vekur að fyrirliðinn Carlos Puyol þarf að sætta sig við að hefja leik á bekknum. Leikurinn er að hefjast og er í beinni útsendingu á Sýn. Fótbolti 9.9.2006 17:50
Eiður Smári í hópnum Eiður Smári Guðjohnsen er í leikmannahópi Barcelona sem mætir Osasuna á heimavelli sínum Nou Camp í spænsku úrvalsdeildinni eftir skamma stund. Ronaldinho hefur hins vegar snúið aftur í hóp Evrópumeistaranna og því er afar ólíklegt að Eiður Smári fái tækifæri í byrjunarliðinu. Fótbolti 9.9.2006 09:24
Ósáttur við að fá ekki að spila úrslitaleikinn Jose Antonio Reyes segir að það hafi verið dropinn sem fyllti mælinn fyrir sig hjá Arsenal þegar hann fékk ekki að koma við sögu í úrslitaleik meistaradeildarinnar í vor, en Spánverjinn tjáði sig um brotthvarf sitt frá enska liðinu þegar hann var kynntur til sögu á blaðamannafundi hjá Real Madrid í dag. Fótbolti 8.9.2006 20:03
Auglýsingar á búningi Barcelona í fyrsta sinn Spænska knattspyrnustórveldið Barcelona mun í fyrsta skipti í sögunni bera auglýsingar framan á búningum sínum á þriðjudagskvöldið þegar liðið mætir Levski Sofia í meistaradeildinni. Hér er þó ekki um hefðbundna auglýsingu að ræða, heldur ber liðið merki barnahjálpar sameinuðuþjóðanna. Forseti Barcelona mun á morgun undirrita sérstakan styrktarsamning við samtökin og talið er að spænska félagið muni láta um 1,5 milljónir evra af hendi rakna til styrktar þessu góða málefni. Fótbolti 7.9.2006 17:19
Ferguson stakk mig í bakið Hollenski framherjinn Ruud Van Nistelrooy hjá Real Madrid segir að Sir Alex Ferguson hjá Manchester United hafi stungið sig í bakið þegar hann ákvað að tefla honum ekki fram í úrslitaleik deildarbikarsins í vor. Fótbolti 7.9.2006 13:49
Verður skrítið að leika gegn Chelsea Eiður Smári Guðjohnsen sló rækilega í gegn í sínum fyrsta leik með Barcelona í spænsku deildinni, en hann skoraði sigurmarkið gegn Celta Vigo. Félag hans kynnir Eið rækilega til leiks á heimasíðu sinni þessa dagana. Eiður var í athyglisverðu spjalli á heimasíðunni í gær þar sem hann ræddi meðal annars um hvernig það yrði fyrir hann að mæta Chelsea í Meistaradeildinni með Barcelona. Fótbolti 4.9.2006 21:56
Senna framlengir við Villarreal Miðjumaðurinn Marcos Senna hjá Villarreal hefur framlengt samning sinn við félagið um þrjú ár. Senna er þrítugur og fæddist í Brasilíu, en er með spænskt ríkisfang og er í landsliðshóp Spánverja. Manchester United hafði augastað á miðjumanninum knáa í sumar, en hann hefur nú ákveðið að ljúka ferlinum hjá spænska liðinu. Fótbolti 4.9.2006 16:52
Framlengir samning sinn við Atletico Madrid Framherjinn skæði Fernando Torres hefur samþykkt að framlengja samning sinn við Atletico Madrid um eitt ár, eða til ársins 2009. Torres er 22 ára gamall og hefur um árabil verið einn eftirsóttasti framherji Evrópu, en hann er staðráðinn í að vera áfram í herbúðum Madrídarliðsins. Torres mun undirrita nýja samninginn þegar hann snýr aftur frá Norður-Írlandi með spænska landsliðinu í vikunni. Fótbolti 4.9.2006 16:47
Vilja fá Larsson til baka Forráðamenn Barcelona vilja ólmir fá hinn sænska Henrik Larsson til baka til félagsins, þó ekki til að spila með liðinu heldur til að að gefa honum og stuðningsmönnum félagsins tækifæri til að kveðjast formlega. Larsson komst í sögubækur félagsins með innkomu sinni í úrslitaleik Meistaradeildarinnar á síðustu leiktíð þar sem hann lagði upp bæði mörk Barca gegn Arsenal en sneri til Helsingborgar í heimalandi sínu í sumar. Fótbolti 3.9.2006 19:29
Þiggur ekki laun frá Real Madrid Zinedine Zidane, fyrrum fyrirliði franska landsliðsins og leikmaður Real Madrid, neitar að taka við launagreiðslum frá Real Madrid þótt hann eigi fullan rétt á þeim. Zidane ákvað sem kunnugt er að leggja skóna á hilluna í sumar þrátt fyrir að eiga eitt ár eftir af samningi sínum við Real og ákvað spænska félagið að verða við þeirri ósk snillingsins gegn því að hann ynni sem útsendari og sendiherra fyrir félagið á þessu keppnistímabili. Fótbolti 3.9.2006 19:30
Baptista til Arsenal - Reyes til Madrid Arsenal og Real Madrid gengu nú rétt í þessu frá leikmannaskiptum sín á milli þar sem spænski landsliðsmaðurinn Jose Antonio Reyes fer til Real Madrid og Arsenal fær í staðinn brasilíska miðjumanninn Julio Baptista. Hér er um að ræða lánssamning í fyrstu, en til greina kemur að skiptin verði gerð að fullu Fótbolti 31.8.2006 19:08
Reyes liggur á bæn Spánverjinn Jose Antonio Reyes segist enn ekki vera búinn að gefa upp alla von um að losna frá Arsenal og aftur til heimalands síns, þar sem hann segir draum sinn að vera genginn í raðir Real Madrid fyrir 23. afmælisdag sinn á föstudaginn. Fótbolti 31.8.2006 15:02
Saviola hafði ekki áhuga á að fara til Aston Villa Umboðsmaður argentínska framherjans Javier Saviola hjá Barcelona hefur gefið það upp að leikmaðurinn hafi hafnað tilboði um að ganga í raðir enska úrvalsdeildarfélagsins Aston Villa. Saviola hefur ekki spilað af neinu viti fyrir spænska liðið í tvö ár og útlit fyrir að hann verði annað hvort seldur eða lánaður frá félaginu enn eina ferðina. Fótbolti 30.8.2006 22:02
Gravesen til Celtic Danski landsliðsmaðurinn Thomas Gravesen hefur gengið frá þriggja ára samningi við Glasgow Celtic í Skotlandi, en félagið festi í dag kaup á honum frá spænska félaginu Real Madrid. Í gær bárust þær fréttir að slitnað hefði upp úr viðræðum milli leikmannsins og forráðamanna Celtic, en þær reyndust ekki á rökum reistar. Fótbolti 30.8.2006 14:08
Landsliðsfyrirliðinn hógvær eftir sigurmarkið gegn Celta Vigo Eiður Smári Guðjohnsen var aðeins þrettán mínútur að stimpla sig inn í spænska boltann en hann gerði sigurmark Spánar- og Evrópumeistara Barcelona gegn Celta Vigo í 1. umferð spænsku deildarkeppninnar. Mark Eiðs kom tveim mínútum fyrir leikslok en honum var skipt inn á fyrir Ludovic Guily stundarfjórðungi fyrir leikslok þegar staðan í leiknum var 2-2. Fótbolti 29.8.2006 20:43
Van Bommel til Bayern Þýsku meistararnir Bayern Munchen gengu í gær frá kaupum á hollenska landsliðsmanninum Mark Van Bommel frá Evrópumeisturum Barcelona. Kaupverðið er sagt vera um 6 milljónir evra og hefur Van Bommel skrifað undir þriggja ára samning við Bayern. Þar verður honum ætlað að fylla skarð Michael Ballack, en hann verður eflaust óður í að fá að sanna sig eftir að hafa lítið fengið að spila með Barcelona á síðustu leiktíð. Fótbolti 29.8.2006 16:48