Hernaður
1 2 3 4 5 6 7 8 9 … 53 ›
Halda árásum áfram og beina sjónum að eldflaugastæðum Hezbollah Ísraelsher hefur haldið loftárásum sínum á Líbanon áfram í nótt eftir harðar árásir gærdagsins þar sem um 500 eru sagðir hafa látist og um 1.600 særst. Erlent 24.9.2024 06:30
Úkraínumenn berjist með „aðra hönd bundna fyrir aftan bak“ Tregða Bandaríkjanna og annarra ríkja til að leyfa Úkraínumönnum að nota vopn frá þeim innan landamæra Rússlands er mikil vonbrigði. Þetta segir formaður utanríkismálanefndar Eistlands sem telur afstöðuna hættulega og merki um veikleika. Mikið sé í húfi fyrir allsherjaröryggi í Evrópu. Innlent 23.9.2024 20:02
Fólk flýr Beirút undan mannskæðum árásum Ísraela Hundrað eru sagðir fallnir og hundruð særðir í hörðum árásum Ísraelshers á Líbanon. Ísraelsher hefur sagt íbúum í Suður-Líbanon að forða sér búi þeir nærri athafnasvæðum Hezbollah-samtakanna. Fólksflótti er skollinn á frá höfuðborginni Beirút. Erlent 23.9.2024 11:42
Ísraelar ráðast í umfangsmiklar loftárásir og hvetja íbúa til að flýja Ísraelsher hefur hvatt íbúa í þorpum í suðurhluta Líbanon, sem kunna að búa nærri byggingum eða svæðum þar sem Hezbollah er með hernaðarinnviði, til að forða sér. Erlent 23.9.2024 07:12
Segir að Hezbollah muni skilja skilaboðin Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael, segir meðlimi ríkisstjórnar sinnar staðráðna að gera íbúum Norður-Ísrael kleift að snúa aftur til síns heima. Að leiðtogar Hezbollah muni fljótt átta sig á stöðunni, eftir árásir sem þeir hefðu ekki getað ímyndað sér fyrir nokkrum dögum. Erlent 22.9.2024 15:02
Varpa sprengjum á fjölbýlishús í Karkív Að minnsta kosti 21 er særður eftir að sprengjum var varpað á fjölbýlishús í Karkív í Úkraínu í nótt. Þetta var aðra nóttina í röð sem Rússar varpa sprengjum á fjölbýlishús í borginni, sem hefur lengi orðið fyrir sambærilegum árásum. Erlent 22.9.2024 10:31
Skiptast á eldflaugum í massavís Ísraelski herinn og Hezbollah hafa skotið fjölda eldflauga þvers og kruss yfir landamæri Ísrael og Líbanon í nótt og í gær. Árásirnar hafa líklega aldrei verið jafn umfangsmiklar í hvora áttina frá því Hezbollah hóf árásir á Ísrael í október í fyrra, eftir að Ísraelar hófu hernað sinn á Gasaströndinni. Erlent 22.9.2024 07:37
Senda svifsprengjur fyrir F-16 Yfirvöld í Bandaríkjunum íhuga að senda Úkraínumönnum nýjar svifsprengjur sem hægt er að varpa með F-16 orrustuþotum, sem Úkraínumenn hafa þegar fengið. Enn er verið að leggja lokahönd á næsta hergagnapakka sem Bandaríkjamenn ætla að senda en hann á að vera metinn á um 375 milljónir dala. Erlent 21.9.2024 14:55
Önnur vopnageymsla í ljósum logum í Rússlandi Önnur stór vopnageymsla í Rússlandi stendur í ljósum logum eftir árás Úkraínumanna í nótt. Stórar sprengingar urðu í vopnageymslunni í nótt og hafa fleiri sést í morgun. Erlent 21.9.2024 07:58
Vörpuðu líkum fram af húsþaki á Vesturbakkanum Ísraelsher rannsakar nú hóp hermanna sem náðust á myndbandi kasta líkum Palestínumanna fram af húsþaki eftir rassíu á Vesturbakkanum. Meðferðin á líkunum stríðir gegn alþjóðalögum. Erlent 20.9.2024 21:08
Felldu marga leiðtoga Hezbollah í einni árás Talsmaður Ísraelshers segir að þó nokkrir af háttsettum leiðtogum Hezbollah-samtakanna hafi verið felldir í loftárás í Beirút í dag. Helsta skotmark árásarinnar var Ibrahim Aqil, einn af æðstu leiðtogum samtakanna sem sagður var hafa leitt hernaðararm Hezbollah eftir að fyrrverandi leiðtogi þessa arms var ráðinn af dögum í júlí. Erlent 20.9.2024 16:52
Felldu einn af leiðtogum Hezbollah Ísraelar gerðu í dag loftárás á fjölbýlishús í úthverfi Beirút en árásin er sögð beinast gegn háttsettum leiðtoga Hezbollah-samtakanna. Nokkrar sprengjur eru sagðar hafa lent á húsinu, sem varð fyrir miklum skemmdum. Erlent 20.9.2024 13:49
Norðurlönd dýpka samvinnu í varnarmálum Norðurlöndin hafa tekið upp nánara samstarf á sviði varnarmála. Eftir inngöngu Finnlands og Svíþjóðar í Atlantshafsbandalagið eru öll Norðurlöndin í bandalaginu og gerir það ríkjunum kleift að efla samvinnuna frekar. Innlent 20.9.2024 11:13
Ísraelar gera umfangsmiklar loftárásir á skotmörk í Líbanon Herþotur Ísraelshers gerðu árásir á fjölda skotmarka í suðurhluta Líbanon í gærkvöldi, aðeins klukkustundum eftir að Hassan Nasrallah, leiðtogi Hezbollah, hét hefndum fyrir sprengingar símboða og talstöðva liðsmanna samtakanna. Erlent 20.9.2024 06:37
Hafa séð Hezbollah fyrir símboðum í tvö ár Ísraelar hafa selt meðlimum Hezbollah-hryðjuverkasamtakanna símboða sem þeir framleiddu sjálfir gegnum skúffufélög frá árinu 2022. Þegar leiðtogi samtakanna fordæmdi notkun snjallsíma fyrr á þessu ári var framleiðslan aukin til muna og þúsundir símboða voru seldir til Líbanon. Erlent 19.9.2024 15:03
Gera umfangsmiklar árásir í Líbanon Forvarsmenn ísraelska hersins hafa tilkynnt nýjar árásir gegn Hezbollah-samtökunum í suðurhluta Líbanon. Formaður herforingjaráðs Ísraels segist hafa samþykkt aðgerðaáætlun fyrir herinn í norðurhluta Ísrael. Erlent 19.9.2024 14:03
Felldu tugi og brenndu forsetaflugvélina Vígamenn sem tengjast Al-Qaeda gerðu í vikunni umfangsmikla árás í Bamako, höfuðborg Malí. Þar eru þeir sagðir hafa banað rúmlega sjötíu manns auk þess sem þeir brenndu herflugvélar og einnig forsetaflugvél Assimi Goita, ofursta, sem leiðir herforingjastjórn Malí. Erlent 19.9.2024 12:31
20 létust og 450 slösuðust þegar talstöðvarnar sprungu Að minnsta kosti 20 létust og 450 særðust þegar talstöðvar liðsmanna Hezbollah sprungu í borgum Líbanon í gær, degi eftir að tólf létust og 2.800 særðust þegar sama gerðist með símboða. Erlent 19.9.2024 06:34
Stærðarinnar sprengingar í vopnageymslu í Rússlandi Íbúar í grennd við stóra vopnageymslu í Tver-héraði í Rússlandi, skammt frá Belarús, vöknuðu í nótt við kröftugar sprengingar og stendur vopnageymslan í ljósum logum. Úkraínumenn eru sagðir hafa gert umfangsmikla drónaárás á vopnageymsluna, sem þeir telja að hafi hýst eldflaugar og önnur hergögn frá Norður-Kóreu. Erlent 18.9.2024 09:45
Íslendingum ekki boðið á sjónvarpsumræðu um öryggi á Norðurlöndum Ríkisreknar sjónvarpsstöðvar Norðurlanda, að RÚV undanskildu, héldu í síðustu viku sérstakan sjónvarpsviðburð sem sýndur var á öllum stöðvunum. Þátturinn bar titilinn „Svar Norðurlanda við stríði Pútíns“ og sátu utanríkisráðherrar landanna fyrir svörum, auk sérfræðinga og Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins. Innlent 18.9.2024 08:02
169 börn sem fæddust eftir 7. október á lista yfir látnu Heilbrigðisráðuneyti Gasa hefur gefið út skjal þar sem borin eru kennsl á 34.344 einstaklinga sem hafa látist í árásum Ísraelsmanna. Um er að ræða 80 prósent þeirra sem sagðir eru hafa fallið frá því að átök brutust út í kjölfar árása Hamas á byggðir í Ísrael 7. október síðastliðinn. Erlent 18.9.2024 06:29
Stækkar herinn í þriðja sinn Vladimír Pútín, forseti Rússlands, gaf í gær út þá skipun að her ríkisins yrði stækkaður. Atvinnuhermönnum yrði fjölgað um 180 þúsund og yrðu því alls ein og hálf milljón. Skipunin á að taka gildi þann 1. desember en þetta er í þriðja sinn frá því innrás Rússa í Úkraínu hófst í febrúar 2022 sem Pútín gefur út skipun sem þessa. Erlent 17.9.2024 13:07
Herforingi kallar eftir innrás í Líbanon Yoav Gallant, varnarmálaráðherra Ísrael, segir tímann á þrotum þegar kemur að því að koma í veg fyrir átök milli Ísrael og Hezbollah í sunnanverðu Líbanon. Ori Gordin, yfirmaður herafla Ísrael í norðri, hefur kallað eftir því að fá grænt ljós á innrás í Líbanon. Erlent 16.9.2024 16:06
Kim kallar eftir meira úrani í kjarnorkuvopn Ráðamenn í Norður-Kóreu opinberuðu í fyrsta sinn frá 2010 myndir af skilvindum þar sem úran er auðgað fyrir kjarnorkuvopn einræðisherrans Kim Jong Un. Myndirnar voru teknar þegar Kim heimsótti rannsóknarstöðina þar sem úran er auðgað. Erlent 13.9.2024 12:23
Ísraelar gerðu áhlaup á leynilega vopnaverksmiðju í Sýrlandi Samhliða umfangsmiklum loftárásum Ísraela á fjölda skotmarka í Sýrlandi síðastliðinn sunnudag gerðu ísraelskir sérsveitarmenn áhlaup á eldflaugaverksmiðju Hezbollah. Verksmiðjan er sögð hafa verið reist af Írönum við landamæri Sýrlands og Líbanon. Erlent 13.9.2024 11:21
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rússar hefja gagnsókn í Kúrsk Á meðan Rússar sækja fram í austurhluta Úkraínu og reyna að ná tökum á öllu Donbas-svæðinu, hafa Úkraínumenn sótt fram í Kúrsk-héraði í Rússlandi. Hægt hefur á sóknum Rússa í Donbas en úkraínskir hermenn eru í mjög varhugaverðri stöðu þar, vegna yfirburða Rússa varðandi mannafla og skotfæri fyrir stórskotalið. Erlent 13.9.2024 06:55
Sex starfsmenn UNRWA sagðir hafa verið drepnir í árás Ísraelshers Átján eru sagðir hafa látist í árás Ísraelshers á skóla í Gasa, þar af sex starfsmenn Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA). Erlent 12.9.2024 06:55
Gætu leyft Úkraínu að nota langdræg flugskeyti gegn Rússlandi Utanríkisráðherrar Bandaríkjanna og Bretlands ræða nú við forseta Úkraínu um notkun langdrægra flugskeyta til þess að verjast árásum Rússa sem Úkraínumenn hafa kallað eftir. Biden Bandaríkjaforseti segir unnið að því að veita heimildina. Erlent 11.9.2024 10:27
Hafa fengið skotflaugar frá Íran Klerkastjórn Íran hefur sent skammdrægar skotflaugar til Rússlands, sem nota á til árása í Úkraínu. Fregnir af þessum sendingum hafa verið á kreiki undanfarna daga en ráðamenn í Evrópu og Bandaríkjunum segja að vopnasendingarnar hafi verið í undirbúningi um langt skeið. Erlent 10.9.2024 12:27
Sýrlendingar reiðir yfir árásum Ísraela Ísraelar gerðu í gærkvöldi umfangsmiklar árásir á fjölda skotmarka í Sýrlandi. Minnst fjórtán eru sagðir liggja í valnum en árásirnar eru sagðar hafa beinst að mörgum hernaðarlegum skotmörkum í landinu. Ráðamenn í Sýrlandi segja þó að óbreyttir borgarar hafi fallið í árásunum. Erlent 9.9.2024 11:34