Útsendarar GRU sagðir hafa sent eldsprengjur með flugvélum Embættismenn á Vesturlöndum segja að tvær eldsprengjur sem sendar voru með DHL, hafi verið liður í ætlun leyniþjónustu Rússa um að kveikja elda um borð í frakt- eða farþegaflugvélum á leið til Bandaríkjanna og Kanada. Fjórir menn hafa verið handteknir í Póllandi vegna málsins. Erlent 4.11.2024 22:21
Evrópusamstarf verður að Evrópuvandamáli Svið rússneska utanríkisráðuneytisins sem fer með samskipti við Evrópusambandið og NATO verður ekki lengur kennt við Evrópusamstarf heldur „Evrópuvandamál“. Talskona ráðuneytisins segir nafnbreytinguna endurspegla breytingar í stöðu alþjóðamála. Erlent 4.11.2024 11:07
Kim hafi stutt Rússa frá upphafi „heilags stríðs“ þeirra Kim Jong Un, hefur stutt við bakið á Rússum frá því þeir hófu sitt „heilaga stríð“ gegn Úkraínu. Utanríkisráðherra Norður-Kóreu segir einræðisherrann hafa skipað embættismönnum sínum og þegnum að aðstoða Rússa um leið og innrásin í Úkraínu hófst. Erlent 1.11.2024 13:15
Úkraínuforseti gagnrýnir hik vestrænna leiðtoga Forseti Úkraínu segir Rússa hafa tekist að leggja Georgíu nánast undir sig í nýafstöðnum kosningum þar og Moldóva muni falla innan tveggja ára nái Rússar sínu fram. Hann gangrýnir hik Vesturlanda varðandi heimildir á notkun langdrægra vopna á sama tíma og Putin fari yfir rauðar línur með innflutningi hermanna frá norður Kóreu. Innlent 29. október 2024 20:01
Loftvarnir Íran verulega laskaðar eftir árásir helgarinnar Loftvarnarkerfi Íran skutu niður örfáar ef einhverjar af þeim eldflaugum sem Ísraelar skutu að skotmörkum í landinu um helgina. Loftvarnarkerfin sjálf, sem Íranar fengu frá Rússlandi, voru meðal skotmarkanna. Erlent 29. október 2024 16:24
„Við getum ekki þrýst á fólk að koma til baka“ Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segist ekki geta gert þá kröfu að fólk sem flúið hefur landið vegna innrásar Rússlands snúi aftur til þess að aðstoða í baráttunni. Erlent 29. október 2024 13:58
Myndband: Ávarp Selenskíjs Volodýmýr Selenskíj, forseti Úkraínu, ávarpaði þing Norðurlandaráðs, í Smiðju Alþingis klukkan 10:40. Ávarpið má sjá hér á Vísi. Innlent 29. október 2024 10:29
Selenskíj og Halla ræða saman á Bessastöðum Volodýmýr Selenskíj, forseti Úkraínu, mætti til fundar við Höllu Tómasdóttur, forseta, á Bessastöðum á níunda tímanum í morgun. Úkraínski forsetinn ávarpar þing Norðurlandaráðs síðar í dag. Innlent 29. október 2024 09:06
Svona var dagur Selenskíjs á Íslandi Forseti Úkraínu, fundaði með Bjarna Benediktssyni forsætisráðherra í dag á Þingvöllum. Stuttu síðar funduðu þeir tveir með forsætisráðherrum Noregs, Svíþjóðar, Danmerkur og Finnlands, sem staddir eru hér á landi vegna þings Norðurlandaráðs. Á blaðamannafundi Selenskíj og ráðamanna þakkaði hann fyrir stuðning Norðurlanda við Úkraínu. Innlent 28. október 2024 20:18
Vaktin: Selenskíj heimsótti Ísland og fundaði með forsætisráðherrum Volodýmýr Selenskíj, forseti Úkraínu, kom til landsins í dag. Hér fundaði hann með norrænum forsætisráðherrum á Þingvöllum og ávarpar Norðurlandaráðsþing á morgun. Mikill öryggisviðbúnaður er vegna heimsóknar Selenskíj og annarra erlendra ráðamanna. Innlent 28. október 2024 14:18
Selenskí kemur til Íslands á morgun Vólódímír Selenskí, Úkraínuforseti, er væntanlegur til Íslands á morgun. Hér mun hann meðal annars funda með Bjarna Benediktssyni forsætisráðherra, taka þátt í leiðtogafundi með forsætisráðherrum Norðurlandanna og mun hann flytja sérstakt ávarp í tengslum við Norðurlandaráðsþing. Innlent 27. október 2024 15:00
Vannærðir hermenn Kim sagðir „fallbyssufóður“ Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir mögulegt að norðurkóreskir hermenn verði sendir á víglínuna í Úkraínu eða í Kúrsk í dag eða á morgun. Hermennirnir eru þó sagðir smávaxnir og illa búnir fyrir átök á svæðinu og varnarmálaráðherra Suður-Kóreu segir þá fallbyssufóður. Erlent 27. október 2024 10:02
Stýrivextir ná sögulegu hámarki í Rússlandi Stjórn seðlabanka Rússlands ákvað í morgun að hækka stýrivexti þar í landi um tvö prósentustig, eða úr nítján prósentum í 21 prósent. Líklegt er að þeir verði hækkaðir meira í desember. Erlent 25. október 2024 11:53
Musk sagður í reglulegum samskiptum við Pútín Elon Musk, auðugasti maður heims, hefur átt í reglulegum samskiptum við Vladimír Pútín, forseta Rússlands, á undanförnum árum. Þeir eru meðal annars sagðir hafa rætt um persónuleg málefni, viðskiptatengd mál og alþjóðleg deilumál. Erlent 25. október 2024 09:44
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: „Einstaklega blóðugur“ september Harðir bardagar eiga sér stað víðsvegar í austurhluta Úkraínu og í Kúrsk-héraði í Rússlandi þessa dagana. Þá eru hermenn frá Norður-Kóreu sagðir í Rússlandi og fleiri á leiðinni og ráðamenn í Kænugarði hafa reynt að sýna bakhjörlum sínum hvernig þeir geta í sameiningu bundið enda á stríðið og skapað frið til langs tíma. Erlent 24. október 2024 09:02
Fyrsti fundur Xi og Modi í meira en fimm ár Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hefur tekið móti leiðtogum BRICS-ríkjanna svokölluðu, auk annarra þjóðarleiðtoga og erindreka í Kazan í Rússlandi en þar fer sextándi leiðtogafundur BRICS-ríkjanna svokölluðu fram. Fundur leiðtoga Kína og Indlands á hliðarlínunum í Kazan hefur vakið mikla athygli. Erlent 23. október 2024 16:56
„Það er sprengjuviðvörun nánast á hverju kvöldi“ „Ég er staddur í Kyiv. Ástandið hér er spennuþrungið, það eru eldflaugaárásir frá Rússlandi á hverjum degi. Það er andlega erfitt að takast á við það. Ég á margar svefnlausar nætur,“ segir Serhiy Palkin, framkvæmdastjóri Shakhtar Donetsk. Hann veitir innsýn í erfiðar aðstæður sem leikmenn og starfsfólk félagsins þarf að glíma við. Fótbolti 23. október 2024 15:00
Staðfesta flutninga hermanna frá Norður-Kóreu til Rússlands Lloyd Austin, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, segir hermenn frá Norður-Kóreu hafa verið senda til Rússlands. Þar eigi þeir að aðstoða Rússa við stríðið gegn Úkraínu en óljóst sé með hvaða hætti. Erlent 23. október 2024 13:29
Íbúum Úkraínu fækkað um tíu milljónir frá innrásinni Sameinuðu þjóðirnar áætla að íbúum Úkraínu hafi fækkað um fjórðung eða tíu milljónir manna frá því að innrás Rússa í landið hófst af fullum krafti fyrir tveimur árum. Fækkunin er rakin til fólksflótta, hruni í fæðingartíðni og mannfalli í stríðinu. Erlent 23. október 2024 11:50
Menn geti komist upp með morð með því að berjast í Úkraínu Einstaklingum sem eru handteknir í Rússlandi býðst nú að berjast í Úkraínu gegn því að mál þeirra séu sett á bið og líklega felld niður. Samkvæmt BBC virðist langt gengið í að þvinga menn til að ganga að samkomulaginu. Erlent 23. október 2024 10:58
Úkraínumenn reiðir vegna fyrirhugaðs fundar Guterres og Pútín Stjórnvöld í Úkraínu eru sögð afar ósátt með fregnir þess efnis að António Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, hyggist funda með Vladimir Pútín Rússlandsforseta á fimmtudaginn. Erlent 22. október 2024 06:59
Krefjast þess að Rússar sendi hermenn Kim heim Utanríkisráðherra Suður-Kóreu kallaði sendiherra Rússlands þar í landi á teppið í morgun. Kim Hong Kyun krafðist þess við Georgy Zinoviev að hermenn frá Norður-Kóreu yrðu sendir frá Rússlandi. Erlent 21. október 2024 13:01
Vopnakaup eru landráð Vopnakaup Alþingis og þátttaka í stríði úti í heimi stangast á við Stjórnarskrá íslenska lýðveldisins, Varnarmálalög nr. 34/2008 og Almenn hegningarlög nr. 19/1940 og brýtur beinlínis gegn þeim. Ísland er nú orðið beinn þátttakandi í stríði og þar með hernaðarskotmark. Með þessum ráðstöfunum sínum hafa íslenskir ráðamenn framið landráð. Skoðun 20. október 2024 21:30
Ætlar ekki að leyfa Úkraínu að eignast kjarnorkuvopn Vladimír Pútín, forseti Rússlands, segir að hann muni ekki leyfa Úkraínumönnum að koma sér upp kjarnorkuvopnum. Líkti hann ummælum ráðamanna í Úkraínu um að slíkt kæmi til greina sem „ögrun“ og hét hann því að sigra Úkraínumenn. Erlent 18. október 2024 15:31