
Stella Stefánsdóttir

Aukin samvinna við frjáls félög skilar öflugra frístundastarfi
Samfélagið þarf á þátttöku okkar allra að halda í einni eða annarri mynd og það hefur sýnt sig að fólk sem tekur þátt í frjálsu félagastarfi er líklegt til að vera virkari þátttakendur í samfélagslegri uppbyggingu á öllum sviðum og öflugir liðsmenn á vinnustöðum.

Þar sem hjartað slær – íþróttastarf í Garðabæ
Það má með sanni segja að skipulagt íþróttastarf í Garðabæ sé mikilvæg stoð í samfélaginu og hlutverk íþróttastarfs sé í raun mikið stærra en að veita „bara“ íþróttalegt uppeldi. Íþróttir hafa mikið forvarnargildi, auka samkennd og samheldni íbúa og hafa oftast jákvæð áhrif á bæjarbrag.

Þjónusta við fjölskyldur í Garðabæ er mér hjartans mál
Þjónusta við fjölskyldur og velsæld barna og ungmenna er mér hjartans mál. Ég á fjórar dætur á aldrinum 15 til 23 ára sem hafa gengið í leik- og grunnskóla í Garðabær og stundað íþróttir- og frístundir í bænum.

Hugsum vel um eldri íbúa
Það er gæfa að eldast. Flestir sem komnir eru yfir miðjan aldur taka hverju ári fagnandi. Aldur er að mörgu leyti afstæður og snýst ekki endilega um tölu heldur hvernig fólki líður.

Framfarir í Garðabær byggja á nýsköpun
Ég hef skýra framtíðarsýn fyrir Garðabæ. Hún byggir á traustum fjárhag og nýsköpun í þjónustu og rekstri – sem kristallast í framsækinni þjónustu, velsæld íbúa á öllum aldri og fjölbreyttum lífsgæðum í nærumhverfinu.