Skotárás á Silfratjörn

Dæmdur fyrir árásina í Úlfarsárdal
Shokri Keryo hefur hlotið þriggja og hálfs árs fangelsidóm fyrir skotárás sem átti sér stað í Úlfarsárdal í nóvember í fyrra, þegar hann skaut fjórum skotum að fjórum mönnum.

Hvorki sakborningur né fórnarlamb kannast við skotárásina
Ungur karlmaður sem sætir ákæru fyrir tilraun til manndráps við Silfratjörn í Úlfarsárdal í nóvember síðasta árs þvertók fyrir að hafa beitt skotvopni í árásinni. Sá sem varð fyrir skoti í árásinni kvaðst ekkert muna eftir árásinni.

Neitar að hafa reynt að drepa fólk í Silfratjörn
Shokri Keryo, tvítugur karlmaður, neitaði sök þegar ákæra á hendur honum fyrir tilraun til manndráps við Silfratjörn í Úlfarsárdal var þingfest í dag.

Lykilsönnunargagn ófundið í lífshættulegri skotárás
Héraðssaksóknari hefur ákært Shokri Keryo, karlmann á 21. aldursári, fyrir tilraun til manndráps við Silfratjörn í Úlfarsárdal í nóvember síðastliðnum. Miskabótakrafa fimm einstaklinga sem ýmist urðu fyrir skoti eða stóð ógn af skotunum hljóðar upp á samanlagt níu milljónir króna. Skotvopnið er ófundið.

Grunaður skotmaður í Silfratjörn segist hafa mátað hanska útataða púðri
Maður hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 23. febrúar næstkomandi vegna skotárásarinnar sem framin var í Silfratjörn í Úlfarsárdal í byrjun nóvembermánaðar. Landsréttur hefur staðfest úrskurð héraðsdóms þess efnis og birt hann á vef sínum.

Þremur sleppt en gæsluvarðhald tveggja framlengt
Tveir hafa verið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald í tengslum við skotárásina í Silfratjörn í Úlfarsárdal í byrjun mánaðar. Þremur var sleppt úr haldi.

Áfram í gæsluvarðhaldi vegna skotárásar í Úlfarsárdal
Fimm menn voru í dag úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald í þágu rannsóknar lögreglu á skotárás í Úlfarsárdal í Reykjavík í byrjun mánaðarins.

Krefjast áframhaldandi gæsluvarðhalds yfir öllum fimm
Gæsluvarðhald yfir fimm mönnum, sem grunaðir eru um aðild að skotárásinni að Silfratjörn í Úlfarsárdal þann 2. nóvember síðastliðinn, rennur út í dag. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun krefjast áframhaldandi gæsluvarðhalds yfir öllum fimm.

Slepptu einum úr haldi en vilja halda fimm lengur
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sleppti einum, sem handtekinn var í tengslum við skotárás í Úlfarsárdal, úr gæsluvarðhaldi í gær. Eftir hádegi verður gerð krafa um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir fimm sem grunaðir eru um aðild að árásinni.

Losnaði úr fangelsi fjórum mánuðum eftir tveggja ára dóm
Karlmaðurinn sem særðist í skotárás við Silfratjörn í Úlfarsárdal í síðustu viku losnaði úr fangelsi í sumar. Hann hlaut tveggja ára fangelsisdóm í mars fyrir sérlega hættulega líkamsárás, en losnaði úr fangelsi í júlí. Ástæðan mun vera sú að hann hafði þegar afplánað stóran hluta refsingar sinnar í gæsluvarðhaldi.

Skotin höfnuðu á fjórum stöðum
Sex hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald í tengslum við skotárás í Úlfarsárdal í fyrrinótt á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Tveir særðust í árásinni. Annar þeirra er þekktur ofbeldismaður með nokkra dóma á bakinu. Dómsmálaráðherra er gríðarlega brugðið yfir málinu. Nauðsynlegt sé að bregðast við.

Vilja sex í varðhald vegna skotárásar
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu gerir kröfu um að sex einstaklingar sæti gæsluvarðhaldi í allt að eina viku í tengslum við rannsókn embættisins á skotárás í Úlfarsárdal aðfaranótt fimmtudag.

„Gríðarlega brugðið eins og allri þjóðinni“
Dómsmálaráðherra segist slegin vegna skotárásar sem átti sér stað í Úlfársárdal í gærnótt. Ofbeldisárásir virðist vera að færast upp á næsta stig og nauðsynlegt sé að bregðast við. Frumvarp um breytingar á lögreglulögum sé tilraun til þess.

Tveir urðu fyrir skoti í árásinni við Silfratjörn
Tveir ungir menn urðu fyrir skotum í skotárásinni í Úlfarsáradal í gær, annar særðist en hinn fékk skrámu. Um er að ræða deilur milli tveggja hópa sem ólíklegt er að sjái fyrir endann á. Lögregla kannar hvort auka þurfi viðbúnað í höfuðborginni vegna málsins.

Yfirheyrslur yfir sjömenningum framundan
Yfirheyrslur yfir mönnunum sjö sem handteknir voru vegna skotárásar í fjölbýli á Silfratjörn í Úlfarsárdal munu fara fram í dag. Lögregla hyggst ekki veita frekari upplýsingar um mennina að svo stöddu.

Hafa handtekið alla sjö sem taldir eru tengjast árásinni
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur handtekið sjö í tengslum við skotárásina í fjölbýli á Silfratjörn í Úlfarsárdal í Reykjavík í nótt. Það eru allir sem taldir eru hafa komið að árásinni

„Allt starfsfólk meðvitað um þennan harmleik“
Mikill viðbúnaður hefur verið hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu vegna leitar að manni sem er grunaður um skotárás við fjölbýlishús í nótt þar sem einn særðist. Líðan hins særða er sögð góð eftir atvikum en hann er ekki í lífshættu. Í árásinni var einnig skotið á nærliggjandi hús og bíl. Lögreglan telur atlöguna tengjast útistöðum tveggja hópa.

Lögregla gefur ekkert upp um þá handteknu
Þrír hafa verið handteknir vegna skotárásar í fjölbýli í Úlfarsárdal í nótt. Einn særðist en líðan hans er sögð góð eftir atvikum. Mikill viðbúnaður var hjá lögreglu í dag vegna málsins. Lögregla gefur ekki upp hver aðild þeirra handteknu að málinu er.

Stendur ekki til að lýsa eftir byssumanni
Grímur Grímsson segir alvarlegt mál að maður sem hafi hleypt af skotum í íbúðarhverfi gangi laus. Hann telur almenning þó ekki í mikilli hættu. Allt kapp sé lagt á að hafa hendur í hári mannsins. Ekki standi þó til að lýsa eftir honum.

Fjögurra og átta ára vöknuðu við lögreglu í heimsókn
Kona sem býr í íbúðinni sem skotið var á í skotárás í Úlfarsárdal í morgun, segist í áfalli og enn vera að melta það sem hafi gerst. Skotið var á vegg við hliðina á barnaherbergi þar sem átta og fjögurra ára dætur hennar voru sofandi.

Vaktin: Lögregla leitar logandi ljósi að byssumanni
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar byssumanns eftir að maður var skotinn fyrir utan fjölbýlishús í Silfratjörn í Úlfarsárdal í Reykjavík í nótt. Vísir fylgist með nýjustu vendingum í málinu.

Áhyggjufullur nágranni lýsir stöðugu partýstandi
Íbúi í fjölbýlishúsi við Silfratjörn í Úlfarsárdal segir mikið partýstand hafa verið í íbúð á þriðju hæð fjölbýlishúss þar sem maður var skotinn um fimmleytið í nótt. Íbúðin er í eigu Félagsbústaða.

Leita byssumanns eftir skotárás í Úlfarsárdal
Lögregla leitar byssumanns sem grunaður er um að hafa skotið karlmann við fjölbýlishús í Úlfarsárdal í nótt. Hinn særði er ekki í lífshættu. Mörg börn vöknuðu upp við skothvelli. Yfirlögregluþjónn segir vettvang árásarinnar hafa verið utandyra. Lögregla sé með aukið viðbragð vegna málsins til að tryggja öryggi almennings um borgina.

Íbúar heyrðu skothvelli í Úlfarsárdal
Lögregla verst allra frétta af meiriháttar líkamsárás í Úlfarsárdal í nótt. Að sögn íbúa heyrðust skothvellir í hverfinu. Sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð út vegna málsins.

Meiriháttar líkamsárás og fjórir handteknir fyrir húsbrot
Lögreglu barst tilkynning um meiriháttar líkamsárás í póstnúmerinu 113 rétt fyrir klukkan fimm í morgun. Í yfirliti lögreglu yfir verkefni næturinnar segir að málið sé í rannsókn.