Sveitarstjórnarkosningar 2026

Fréttamynd

Bjarni Guð­jóns hættir hjá VÍS

Bjarni Guðjónsson hefur sagt upp störfum sem forstöðumaður fyrirtækjaviðskipta hjá VÍS samkvæmt heimildum fréttastofu. Hann hefur verið orðaður við sæti á lista Sjálfstæðismanna í komandi borgarstjórnarkosningum sem fram fara í maí og er talið að hann muni þar skipa annað sætið.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Geti átt í sam­starfi við nær alla flokka

Prófkjör Pírata hefst á morgun en tveir frambjóðendur hafa boðið fram krafta sína í oddvitasætið, Alexandra Briem, núverandi oddviti, og Kristinn Jón Ólafsson, varaborgarfulltrúi. Þau segjast bæði tilbúin að leita að samstarfsflokkum í allar áttir en sá flokkur þurfi að samræmast þeirra grunngildum. Að mati Alexöndru geti það ekki allir.

Innlent
Fréttamynd

Trausti vill snúa aftur

Trausti Hjaltason vill leiða lista Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum í næstu sveitarstjórnarkosningunum. Hann var bæjarfulltrúi flokksins í tvö kjörtímabil og hefur áður verið varaþingmaður fyrir Suðurkjördæmi. Prófkjör flokksins fer fram 13. mars.

Innlent
Fréttamynd

Ellefu í fram­boði í próf­kjöri Pírata

Ellefu eru í framboði í prófkjöri Pírata í Reykjavík. Prófkjör fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor hefst á morgun. Tveir sækjast eftir fyrsta sæti, fjórir eftir öðru til fimmta sæti og fjöldi eftir neðri sætum. 

Innlent
Fréttamynd

Miklar hreinsanir fyrir­hugaðar í borgar­stjórnar­liði xD

Brynjar Níelsson, lögmaður og fyrrverandi þingmaður, er á leið í borgarstjórn. Hann ætlar að gefa kost á sér og mun væntanlega skipa þriðja sæti á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Morgunblaðið boðar miklar hreinsanir á núverandi borgarstjórnarfulltrúum.

Innlent
Fréttamynd

Líf bar sigur úr býtum

Líf Magneudóttir, núverandi oddviti Vinstri grænna í Reykjavík, sigraði í forvali flokksins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Hún mun vera í öðru sæti á sameiginlegum lista VG og Vors til Vinstri. Sanna Magdalena Mörtudóttir mun hins vegar leiða listann.

Innlent
Fréttamynd

Fjölgaði í flokknum vikurnar fyrir forvalið

Forval Vinstri grænna í Reykjavík fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor stendur nú yfir og lýkur klukkan fimm á morgun. Í morgun höfðu 27 prósent á kjörskrá greitt atkvæði en fjölgað hefur töluvert í flokknum undanfarnar vikur.

Innlent
Fréttamynd

„Ég held ég hafi migið í saltan sjó“

Tveir frambjóðendur vilja oddvitasætið í forvali Vinstri grænna fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Sitjandi oddviti segir vinstrið þurfa á reynslu að halda en mótframbjóðandinn boðar meiri róttækni í húsnæðis- og samgöngumálum.

Innlent
Fréttamynd

Regína lætur staðar numið í Mosó

Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri í Mosfellsbæ hefur ákveðið að hætta störfum að loknum sveitarstjórnarkosningum í vor hver sem útkomin verði. Ákvörðunin sé ekki léttvæg en hún vilji að framboð viti að hverju þau gangi nú þegar kosningabaráttan fer í hönd.

Innlent
Fréttamynd

Bráða­birgðaákvæði um kosningar í Grinda­vík sam­þykkt á þingi

Alþingi hefur samþykkt bráðabirgðaákvæði í lögum um sveitarstjórnarkosningar vegna kosninga í Grindavík. Lögin gera það að verkum að þeir Grindvíkingar, sem fluttu lögheimili sín í kjölfar rýmingar þann 10. nóvember 2023, geta nú valið hvort þeir kjósi í nýju sveitarfélagi í kosningum í vor eða í Grindavík.

Innlent
Fréttamynd

Hætta að rukka for­eldra fyrir leik­skóla­pláss í Ölfusi

Leikskólar í Ölfusi verða gjaldfrjálsir frá og með næstu mánaðamótum. Á fundi bæjarráðs í dag var samþykkt að öllum börnum verði boðin 36 tíma vistun á viku án endurgjalds, óháð tekjum foreldra. Með þessu fellur tekjutenging niður og sama fyrirkomulag gildir um öll börn. 

Innlent
Fréttamynd

Guð­mundi Inga hafnað

Björk Vilhelmsdóttir formaður uppstillinganefndar Samfylkingarinnar segir að ekki hafi tekist að myndast traust milli flokksins og Guðmundar Inga Þóroddssonar frambjóðanda.

Innlent
Fréttamynd

Fyrr­verandi mark­vörður vill fram fyrir Miðflokk

Beitir Ólafsson, fyrrverandi markvörður KR og HK, hefur óskað eftir sæti á lista Miðflokksins í Kópavogi í sveitarstjórnarkosningum í vor. Í tilkynningu frá Beiti segir hann að flokkurinn hafi skapað sér sess með orðræðu sem hann tengi við.

Innlent
Fréttamynd

Brynja Dan vill leiða lista Fram­sóknar í Garða­bæ

Brynja Dan Gunnarsdóttir, bæjarfulltrúi og eigandi Extraloppunnar, vill áfram leiða lista Framsóknar í Garðabæ í komandi sveitarstjórnarkosningum. Hún var oddviti flokksins í kosningunum 2022 og tók í kjölfarið sæti í bæjarstjórn.

Innlent
Fréttamynd

For­maður Pírata sækist eftir öðru til fjórða sæti

Ellefu einstaklingar vilja vera á lista Pírata í Reykjavík fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Fram kom í fyrr í dag að Kristinn Jón Ólafsson, fyrsti varaborgarfulltrúi Pírata, sækist eftir því að leiða listann ásamt Alexöndru Briem borgarfulltrúa.

Innlent
Fréttamynd

Kristinn Jón tekur slaginn við Alexöndru

Kristinn Jón Ólafsson, fyrsti varaborgarfulltrúi Pírata, gefur kost á sér til þess að leiða lista flokksins í komandi kosningum. Til þessa hefur Alexandra Briem ein gefið kost á sér en prófkjör Pírata í Reykjavík fer fram rafrænt dagana 26. febrúar til 6. mars.

Innlent
Fréttamynd

Stillir sér upp á miðjunni

Nýkjörinn formaður Framsóknarflokksins segist ekki hafa áhuga á að færa flokkinn til hægri líkt og hann telur klofningsflokkinn Miðflokkinn hafa gert. Hann segist ætla að efla flokkinn á miðjunni þar sem hann hafi sögulega verið.

Innlent
Fréttamynd

„Eins og knatt­spyrnuþjálfari sem er á bekknum“

Lilja Alfreðsdóttir, nýr formaður, Framsóknarflokksins segist ætla að vinna náið með þingflokknum þrátt fyrir að eiga ekki sæti þar sjálf. Hún líkir því að vera knattspyrnuþjálfari. Þingflokksformaðurinn laut í lægra haldi í formannskjörinu.

Innlent