Úrskurðar- og kærunefndir

Fréttamynd

Neytendastofa tæklar bílastæðamálin

Neytendastofa hefur tekið ákvarðanir í fjórum málum sem varða upplýsingagjöf og viðskiptahætti fyrirtækja sem sinna bílastæðaþjónustu á gjaldskyldum bílastæðum.  Fyrirtækin verða beitt stjórnvaldssektum að upphæð tvö til fjögur hundruð þúsund krónum. 

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga raf­virkja

Starfsmannaleigu hefur verið gert að endurgreiða starfsmanni sínum 15 þúsund krónur sem dregnar voru af launum hans vegna meints brots á húsreglum, en starfsmaðurinn leigði herbergi af starfsmannaleigunni. Þá var starfsmannaleigunni einnig gert að endurgreiða starfsmanninum ofgreidda leigu.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Taldi kosningarnar ó­gildar vegna ógilds kjör­seðils

Úrskurðarnefnd kosningamála barst kæra vegna sveitarstjórnarkosninganna í Reykjavík daginn eftir þær þar sem þess var krafist að kosningarnar í heild yrðu úrskurðaðar ógildar, vegna þess að Ríkisútvarpið sýndi kjörseðil í beinni útsendingu á kosninganótt. Nefndin féllst ekki á þá kröfu.

Innlent
Fréttamynd

Icelandair hafði betur gegn ósáttum að­dáanda Oasis

Íslendingur sem skellti sér á tónleika Oasis í Manchester í pakkaferð Icelandair á ekki rétt á endurgreiðslu þrátt fyrir að afhending á tónleikamiðanum hafi farið fram síðar en boðað hafði verið. Flugfélagið bauð tónleikagestinum inneign í sárabætur en því boði var ekki svarað.

Neytendur
Fréttamynd

Salómonsdómur í deilu um pinnahælaför í parketi

Kæru­nefnd hú­samála hefur gert leigu­sala, sem vildi ráð­stafa tryggingafé til við­gerðar á parketi vegna skemmda eftir pinna­hæla, að endur­greiða fyrr­verandi leigj­endum sínum tæpan helming tryggingarinnar með vöxtum.

Innlent
Fréttamynd

Hafnar því að hafa gengið nakinn um sameignina

Kærunefnd húsamála hafnaði nýlega kröfu leigjanda um að fyrrverandi leigusali hans myndi endurgreiða honum leigu og um að hann myndi greiða honum bætur vegna muna í hans eigu sem leigusalinn fargaði. Leigusalinn fékk ítrekaðar kvartanir vegna leigjandans, meðal annars vegna hegðunar og umgengni í sameiginlegu rými. Þar á hann til dæmis að hafa gengið um nakinn. 

Innlent
Fréttamynd

Kennarasambandið mis­munaði konu

Kennarasamband Íslands mismunaði starfsmanni á grundvelli kyns þegar stjórn sambandsins neitaði að leiðrétta laun konu í samræmi við laun karls sem vann við svipað starf hjá aðildarfélagi Kennarasambandsins.

Innlent
Fréttamynd

Love, Hannah og Pia í lagi en Cur­ver ekki: Það þekkja mig allir með þessu nafni

Úrskurðarnefnd mannanafnanefndar samþykkti í vetur fjölda beiðna vegna nýrra nafna en hafnaði einnig beiðnum á borð við þá sem tónlistar- og myndlistamaðurinn Curver Thoroddsen sendi henni. Nefndin birti úrskurð í mars þar sem fram kom að eiginnafninu Curver yrði ekki bætt við mannanafnaskrá sökum þess að stafurinn „C“ finnist hvergi í íslenska stafrófinu.

Innlent
Fréttamynd

Fréttinni skylt að birta and­svar Sigur­bjargar

Netmiðlinum Fréttin.is hefur verið gert skylt að birta andsvör Sigurbjargar Erlu Egilsdóttur, bæjarfulltrúa í Kópavogi, eftir birtingu aðsendrar greinar upp úr athugasemd Sigurbjargar. Hún sendi inn kvörtun þar sem að rangt hefði verið haft eftir henni.

Innlent
Fréttamynd

Hraðlyginn leið­sögu­maður úr landi

Fertugur breskur karlmaður af kínverskum uppruna fær ekki að koma aftur til Íslands næstu tvö árin eftir að hafa starfað hér á landi sem leiðsögumaður án leyfis. Maðurinn var gripinn við eftirlit lögreglu og reyndust svör hans við spurningum lögreglu loðin í meira lagi.

Innlent
Fréttamynd

Há­skólinn lagði stúdenta

Áfrýjunarnefnd í kærumálum háskólanema hefur hafnað kröfu fyrrverandi nemanda um endurgreiðslu skráningargjalda, á þeim grundvelli að þau væru byggð á sandi.

Innlent
Fréttamynd

Á að fá endur­greidd gler eftir gallaða sjónmælingu

Fyrirtæki sem seldi konu gleraugu með glerjum sem hentuðu henni ekki þarf að endurgreiða henni glerin eftir að kærunefnd vöru- og þjónustukaupa kvað upp úrskurð um kvörtun konunnar. Deilt var um hvort að sjónmæling sem gerð var á konunni hafi verið nákvæm.

Neytendur
Fréttamynd

Sveitar­stjóra ekki heimilt að banna hunda­hald

Sveitarstjóra Grímsnes- og Grafningshrepps var ekki heimilt að taka ákvörðun um að banna íbúa að halda hund. Íbúinn hafði fengið áminningu vegna brota á samþykkt um hundahald. Kæru hans til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála var vísað frá vegna þess að sveitarstjórn hefði átt að taka ákvörðun um að svipta manninn leyfi til hundahalds. 

Innlent
Fréttamynd

Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað

Ferðamaður fær ekki skaðabætur eftir að gönguferð upp á Hvannadalshnjúk var snúið við skammt undan tindinum vegna veðurs. Hann krafðist rúmlega 400 þúsund króna en kærunefnd vöru- og þjónustukaupa féllst ekki á sjónarmið hans.

Neytendur
Fréttamynd

Fær íshellaferð ekki endur­greidda

Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa hefur hafnað kröfu ferðamanns um endurgreiðslu vegna íshellaferðar sem hann mætti ekki í vegna þess að hann taldi að ferðinni hefði verið aflýst.

Neytendur
Fréttamynd

Gert að af­henda bú­slóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu

Manni sem starfar í flutningsþjónustu hefur verið gert að afhenda viðskiptavini, konu, hluta búslóðar hennar gegn greiðslu eftirstöðva upphafslegs samnings þeirra í millum, alls 290 þúsund króna. Maðurinn hafði haldið búslóðinni gíslingu og gefið út reikning sem var þrefalt hærri en upphaflega hafði verið samið um munnlega.

Neytendur
Fréttamynd

Fá­tækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum

Tvær ástralskar ferðakonur sem voru rukkaðar um hátt í þrjátíu þúsund krónur fyrir ferð sem átti að kosta þær sjö þúsund krónur, eftir að þeim var ekið á rangan áfangastað, fá fargjaldið endurgreitt úr vasa leigubílstjórans. Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa kvað upp úrskurð þess efnis á dögunum.

Innlent
Fréttamynd

Húðflúrari fór frá hálf­kláruðum fugli á hálsi

Húðflúrara hefur verið gert að endurgreiða viðskiptavini sínum 280 þúsund krónur eftir að hann fór frá hálfkláruðu verki og sagðist hættur störfum. Viðskiptavinurinn var búinn að greiða fyrir verkið en hafði einungis fengið dökkan bakgrunn flúraðan á allan handlegginn og útlínur fugls á hálsi en bæði voru verkin ófullgerð.

Neytendur
Fréttamynd

Nú má heita Love, Tóní, Ranimosk og Draumur

Nú mega karlar heita Arin og Draumur, konur heita Love og Harne og kvár heita Ranimosk og Tóní. Þetta kemur fram í nýjum úrskurðum mannanfnanefndar, sem hafnaði þó beiðni um eiginnafnið Óðin og millinafnið Guðmundsen.

Innlent
Fréttamynd

Sektað um hundruð þúsunda fyrir nikótínauglýsingar

Neytendastofa hefur gert SH Import ehf., sem á verslunina Piknik, að greiða fjögur hundruð þúsund króna sekt fyrir að fjarlægja ekki nikótínauglýsingar innan tilskylds tíma. Fyrirtækið hefur áður verið sektað um tvö hundruð þúsund krónur fyrir nikótínauglýsingar.

Neytendur