Stj.mál
109 110 111 112 113 114 115 116 117 … 187 ›
Vilja sjá um Spegilinn Hafsteinn Þór Hauksson, formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna, hefur sent útvarpsráði erindi og boðið fram starfskrafta ungra sjálfstæðismanna við dagskrárgerð hjá stofnuninni. Fréttaskýringaþátturinn <em>Spegillinn</em> er þáttur sem ungir sjálfstæðismenn vildu gjarnan taka að sér og segir í erindinu að það yrði gert án endurgjalds og gæti því stuðlað að sparnaði í rekstri. Innlent 13.10.2005 19:09
Sögðu Blair hryðjverkamann Íraksstríðið tröllríður umræðunni síðustu stundirnar fyrir kosningarnar og gæti því haft áhrif á þessa óákveðnu og óvissu kjósendur. Það skapaðist uppnám í breskum smábæ þegar Brynhildur Ólafsdóttir, fréttamaður Stöðvar 2 ræddi Íraksmálið við reiða og herskáa breska múslíma, sem lýstu Blair sem morðóðum hryðjuverkamanni. Erlent 13.10.2005 19:09
Stimpilgjöld ekki afnumin í vor Ekki er vilji hjá stjórnarflokkunum til að afgreiða frumvarp um afnám stimpilgjalda og endurfjármögnum lána á þessu þingi. Formaður efnahags- og viðskiptanefndar hafði þó lýst stuðningi við málið. Þingmaður Samfylkingarinnar segir sárt að þetta stóra hagsmunamál fjölskyldna náist ekki. Innlent 13.10.2005 19:09
Greiða ber fyrir sálfræðiþjónustu Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir þingmaður Samfylkingarinnar kveðst fagna því að heilbrigðsráðherra ætli að láta athuga nánar hvort mikil notkun Ritalins og skyldra lyfja við ofvirkni og athyglisbresti barna tengist á einhvern hátt oflækningum. Innlent 13.10.2005 19:09
Ríkisstjórnin sór embættiseið Fyrsta lýðræðislega kjörna ríkisstjórnin í Írak í hálfa öld sór embættiseið í dag. Þrjá mánuði tók að mynda stjórnina eftir kosningarnar sem fram fóru í janúar. Innlent 13.10.2005 19:09
Bilið í Bretlandi virðist minnka Kosningabaráttan í Bretlandi er komin á síðustu metrana og bilið milli flokkanna virðist minnka.Samkvæmt meðaltali kannana dagsins skilja átta prósentustig Verkamannaflokkinn og Íhaldsflokkinn að en sumar kannanir benda til þess að bilið sé einungis tvö til þrjú prósent, sem þýddi að Tony Blair sæti uppi með nánast óstarfhæft þing. Erlent 13.10.2005 19:09
Andstaða við RÚV-frumvarpið Stjórn BSRB lýsir eindreginni andstöðu við frumvarp ríkisstjórnarinnar um Ríkisútvarpið. BSRB telur að verði frumvarpið að lögum komi það til með að skerða kjör og réttindi starfsmanna og einboðið sé að upp komi mál sem nauðsynlegt verði að útkljá fyrir dómstólum. Innlent 13.10.2005 19:09
Enn þarf að bæta skattaumhverfið Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra sagði í ræðu sinni á aðalfundi Samtaka atvinnulífsins í dag að halda bæri áfram að laga skattaumhverfið til að styrkja samkeppnisstöðu atvinnulífsins og bæta lífskjörin. Innlent 13.10.2005 19:09
Strangar reglur um innflytjendur Enn hafa Tony Blair og Verkamannaflokkurinn forskot á keppinauta sína samkvæmt könnunum en harkan eykst núna á lokasprettinum.Breski Íhaldsflokkurinn hefur sett strangari reglur um innflytjendur á oddinn í sinni kosningabaráttu. Þetta er sérstakt hitamál í Bradford þar sem Brynhildur Ólafsdóttir, fréttamaður Stöðvar 2 og Bylgjunnar, var á ferð í dag. Innlent 13.10.2005 19:09
Rofar til hjá stuðningsmönnum ESB Það rofar til hjá stuðningsmönnum Evrópusambandsins í Frakklandi. Þrjár af síðustu fimm skoðanakönnunum benda til þess að naumur meirihluti kjósenda ætli að samþykkja stjórnarskrá sambandsins. Erlent 13.10.2005 19:09
Stimpilgjöldin hortittur Sama dag og fulltrúar ríkisstjórnarflokkanna höfnuðu því að afgreiða þingmál um afnám stimpilgjalda af endurfjármögnun lána, kallaði forsætisráðherra þau hortitt í íslensku skattakerfi. Það sagði hann í ræðu á aðalfundi Samtaka atvinnulífsins sem fram fór í dag. Innlent 13.10.2005 19:09
36% Breta enn óákveðin Þrjátíu og sex prósent Breta segjast ekki enn hafa ákveðið hvað þeir ætla að kjósa þegar þeir koma inn í kjörklefann á fimmtudaginn. Þetta er svo hátt hlutfall að það gæti haft áhrif á annars örugga stöðu Blairs í kosningunum. Erlent 13.10.2005 19:09
Bankarnir gengið of langt Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra, telur að umsvif íslenskra banka á fjármálamarkaðnum og útrás þeirra á erlendum grundum hafi gengið of langt. Finnst honum sá ljóður vera á viðskiptalífinu að þar sé of mikið um átök og þar gangi bankarnir of hart fram. Innlent 13.10.2005 19:09
Samstaða um umsókn í Öryggisráðinu Forsætisráðherra segir fulla samstöðu hafa verið milli stjórnar og stjórnarandstöðu um að sækjast eftir sæti í Öryggisráðinu. Það hafi ekki verið mistök. Verið er að skoða kostnað við framboðið en endanleg ákvörðun liggur ekki fyrir. Hann segir utanríkisþjónustuna skrifa meira á reikning framboðsins en efni séu til. Innlent 13.10.2005 19:09
Thatcher umbylti bresku samfélagi Sá stjórnmálamaður sem á hvað mestan þátt í því hvernig breskt samfélag lítur út núna er ekki einu sinni í framboði. Hann heitir Margaret Thatcher. Erlent 13.10.2005 19:09
Uppsagnir án rökstuðnings? Hægt verður að segja starfsmönnum Ríkisútvarpsins upp án áminningar og málefnalegs rökstuðnings, ef fyrirtækið verður sameignarstofnun, eins og nýtt frumvarp um Ríkisútvarpið gerir ráð fyrir. Þá missa þeir rétt til biðlauna. Þetta segir lögfræðingur BSRB. Innlent 13.10.2005 19:09
70 milljóna halli á borgarsjóði Rúmlega 70 milljóna króna halli varð á rekstri borgarsjóðs, svokölluðum A-hluta, sem er sú starfsemi borgarinnar sem fjármögnuð er með skatttekjum. 5,1 milljarðs króna hagnaður varð aftur á móti af heildarrekstri Reykjavíkurborgar, eða af fyrirtækjum sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu borgarinnar. Innlent 13.10.2005 19:09
Ríkisstjórnin tapar meirihlutanum Ríkisstjórnin heldur ekki meirihluta sínum í nýjustu skoðanakönnun Gallups en Samfylkingin vinnur á. Sjálfstæðisflokkurinn mælist nú með 37 prósenta fylgi og tapar einu prósentustigi frá fyrra mánuði. Framsóknarflokkur mælist með tíu prósent og tapar tveimur prósentustigum. Innlent 13.10.2005 19:09
Sendiráðið í Hollandi flutt Bandaríkjamenn hyggjast flytja sendiráð sitt í Haag í Hollandi út í úthverfi þar sem öryggisráðstafanir angra ekki nágrannana eins og nú er. Það eru því greinilega fleiri Laufásvegir í heiminum en nágrannar bandaríska sendiráðsins í Reykjavík hafa einmitt kvartað undan auknum öryggisráðstöfunum sem hafa áhrif á íbúa við götuna. Innlent 13.10.2005 19:09
Íslenskar jeppasveitir á förum Þegar síðustu starfsmenn íslensku friðargæslunnar fara frá alþjóðaflugvellinum í Kabúl eftir rúman mánuð hefst þátttaka Íslendinga í endurreisnarstarfi í norður- og vesturhluta Afganistans. Davíð Oddsson utanríkisráðherra sagði á Alþingi að gert væri ráð fyrir að á hvorum staðnum yrðu tveir sérútbúnir jeppar og átta til níu manna lið. Innlent 13.10.2005 19:09
Vilja taka við af Blair Tveir menn vilja flytja föggur sínar inn í Downing-stræti 10 eftir kosningarnar, Michael Howard Íhaldsflokki og Skotinn Charles Kennedy, frjálslyndum demókrötum. Erlent 13.10.2005 19:09
Kjarnorkuráðstefna í uppnámi Ráðstefna utanríkisráðherra aðildarlanda NPT-sáttmálans um kjarnorkuafvopnun sigldi eiginlega í strand áður en hún hófst. Deilt er um hvort sé mikilvægara: að koma í veg fyrir að fleiri ríki eignist kjarnavopn eða að fækka þeim vopnum sem til eru. Erlent 13.10.2005 19:09
Orkustofnun í dekri hjá ríkinu Umhverfisstofnun gagnrýnir frumvarp iðnaðarráðherra til vatnalaga. Óánægja er meðal starfsmanna stofnunarinnar með lítið vægi sem hún virðist hafa gagnvart öðrum stofnunum. Sigurjón Þórðarson þingmaður Frjálslyndra segir Orkustofnun í dekri ríkisstjórnarinnar. Innlent 13.10.2005 19:09
Á móti frumvarpi um ný vatnalög Umhverfisstofnun leggst gegn frumvarpi Valgerðar Sverrisdóttur iðnaðarráðherra um ný vatnalög. Iðnaðarnefnd afgreiddi frumvarpið úr nefnd fyrir helgina og er önnur umræða um það fyrirhuguð á Alþingi. Innlent 13.10.2005 19:09
Þarf 10 prósentum meira fylgi Sjálft kosningakerfið er líka flókið og undarlegt. Íhaldsflokkurinn þarf til að mynda tíu prósentustigum meira fylgi en Verkamannaflokkurinn til að bera sigur úr býtum í kosningunum. Erlent 13.10.2005 19:08
Segir samráð haft við íbúa Þétting byggðar í Reykjavík veldur víða óánægju þar sem íbúar vilja yfirleitt fremur útsýni og græn svæði en að það sé þrengt að húsum þeirra. Formaður skipulagsnefndar borgarinnar segir unnið að málum í samráði við íbúa. Innlent 13.10.2005 19:08
Vilja einn rétt og ekkert svindl Einn réttur - ekkert svindl er yfirskrift 1. maí í Reykjavík. Þar er vísað til ólöglegs innflutts vinnuafls og réttinda sem tryggð eiga vera í samningum. Innlent 13.10.2005 19:08
Efast um að nefnd vilji fá tilboð Talsmenn félagsins Almennings, sem stefnir að kaupum á Landssímanum, fengu engin svör á stuttum fundi í dag með starfsmönnum einkavæðingarnefndar ríkisstjórnarinnar. Agnes Bragadóttir, talsmaður félagsins, stórefast um að einkavæðingarnefnd vilji fá tilboð frá félaginu. Innlent 13.10.2005 19:08
Þorgerður Katrín vinsælust Minni ánægja ríkir meðal landsmanna með störf allra ráðherra Framsóknarflokksins nú en síðasta haust, samkvæmt nýrri könnun frá Þjóðarpúlsi Gallups. Innlent 13.10.2005 19:08
Stimpilgjald verði afnumið Formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis, Pétur Blöndal, hyggst freista þess að ná samstöðu meðal þingflokka um að frumvarp Margrétar Frímannsdóttur um afnám stimpilgjalds við endurfjármögnun lána verði lögfest fyrir sumarfrí Alþingis. Innlent 13.10.2005 19:08