
Sund

Freyja með brons á Norðurlandameistaramótinu
Freyja Birkisdóttir gerði sér lítið fyrir og vann til bronsverðlauna á sínu fyrsta Norðurlandameistaramóti í sundi sem nú fer fram í Svíþjóð.

Kærustupar vann mestu afrekin á Íslandsmótinu um helgina
Það er óhætt að segja að SH-ingarnir Jóhanna Elín Guðmundsdóttir og Dadó Fenrir Jasminuson hafi uppskorið vel á Íslandsmótinu í sundi um helgina.

Snæfríður Sól í undanúrslit
Snæfríður Sól Jórunnardóttir er komin áfram í undanúrslit á EM 25 í sundi sem fram fer í Kazan, Rússlandi þessa dagana.

Anton Sveinn í tíunda sæti
Anton Sveinn Mckee kom 10. í mark í 200 metra bringusundi í undanúrslitum Evrópumótsins í sundi sem nú fer fram í Kazan í Rússlandi.

Anton af öryggi í undanúrslit á EM
Anton Sveinn McKee synti af öryggi inn í undanúrslit í 200 metra bringusundi á Evrópumótinu í 25 metra laug í Kazan í Rússlandi í morgun.

Snæfríður hálfri sekúndu frá Íslandsmeti og Steingerður stórbætti sinn tíma
Snæfríður Sól Jórunnardóttir og Steingerður Hauksdóttir héldu í morgun áfram keppni á Evrópumótinu í sundi í 25 metra laug, sem fram fer í Kazan í Rússlandi.

Kom sextándi í mark
Anton Sveinn McKee kom 16. í mark í 100 metra bringusundi á Evrópumótinu sem fram fer í Kazan í Rússlandi þessa dagana.

Anton Sveinn í undanúrslit á EM
Anton Sveinn McKee synti sig inn í undanúrslit 100 metra bringusunds á Evrópumeistaramótinu í 25 metra laug í Kazan í Rússlandi í morgun.

Snæfríður og Steingerður enduðu í samliggjandi sætum í fyrstu grein
Snæfríður Sól Jórunnardóttir og Steingerður Hauksdóttir voru fyrstar til að keppa fyrir Íslands hönd á Evrópumeistaramótið í 25 metra laug sem hófst í dag í Kazan í Rússlandi.

Biðst afsökunar á eineltinu
Sundkonan Jeanette Ottesen viðurkennir í nýútkominni bók sinni að hafa tekið þátt í því að leggja liðsfélaga sinn í danska landsliðinu, Lotte Friis, í einelti um árabil.

Sögulegur leikur í Laugardalslaug
Tímamót urðu í Laugardalslaug í gær þegar í fyrsta sinn fór fram leikur tveggja kvennaliða í sundknattleik hér á landi.

Synti þvert yfir Kollafjörð á þrjóskunni
Sigurgeir Svanbergsson vann mikið þrekvirki á dögunum þegar hann synti frá Kjalarnesi að Bryggjuhverfi í Grafarvogi. Verkefnið var til styrktar Einstökum börnum – stuðningsfélagi barna og ungmenna með sjaldgæfa sjúkdóma eða sjaldgæf heilkenni. Leiðin var 11,6 km og tók um níu klukkustundir.

Lokaorð Más frá Tókýó: „Ísland er land þitt“
Sundmaðurinn Már Gunnarsson hefur skilað frá sér sínu síðasta myndbandi frá Tókýó í Japan þar sem hann tók þátt í Ólympíumóti fatlaðra.

Thelma Björg lauk leik á Ólympíumótinu í nótt
Sundkonan Thelma Björg Björnsdóttir lauk í nótt leik á Ólympíumótinu í Tókýó er hún synti í undanrásum 400 metra skriðsundsins. Var það hennar seinni grein á mótinu.

Róbert Ísak stórbætti Íslandsmetið
Róbert Ísak Jónsson endaði í 6. sæti í 200 metra fjórsundi í flokki S 14 á Ólympíumóti fatlaðra í Tókýó. Synti hann á nýju Íslandsmeti.

Róbert Ísak í úrslit í 200 metra fjórsundi
Sundmaðurinn Róbert Ísak Jónsson synti í undanrásum 200 metra fjórsunds í morgun. Þar er synt 50 metra skriðsund, 50 metra bringusund, 50 metra baksund og 50 metra flugsund.

Már endaði í 8. sæti í úrslitasundinu
Már Gunnarsson synti til úrslita í 200 metra fjórsundi blindra á Ólympíumóti fatlaðra í Tókýó nú rétt í þessu. Már endaði í 8. sæti.

Már fjórði í sínum riðli og komst í úrslit: Gaf mótherja undir fótinn í miðju sundi
Sundmaðurinn Már Gunnarsson frá ÍRB í Reykjanesbæ er kominn í úrslit í 200 metra fjórsundi á Ólympíumóti fatlaðra sem nú fer fram í Tókýó í Japan.

Róbert hjó nálægt Íslandsmetinu sínu
Róbert Ísak Jónsson var nálægt því að bæta eigið Íslandsmet í 100 metra bringusundi í flokki S14 á Ólympíumóti fatlaðra í Tókýó í nótt.

Thelma Björg áttunda í Tókýó
Thelma Björg Björnsdóttir varð áttunda í 100 metra bringusundi í flokki SB5, hreyfihamlaðra, á Ólympíumóti fatlaðra í Tókýó í morgun. Hún hefur stórbætt tíma sinn frá síðasta Ólympíumóti í Ríó fyrir fimm árum.

Már fimmti á nýju Íslandsmeti
Sundkappinn Már Gunnarsson kom fimmti í bakkann í 100 metra baksundi í flokki S11 blindra og sjónskertra á Ólympíumóti fatlaðra í Tókýó í morgun. Hann bætti eigið Íslandsmet í greininni.

Már getur ekki andað með nefinu en lætur það ekki stöðva sig
„Nákvæmlega það sem við vorum að leitast eftir, að fara fyrsta sundið hratt og öruggt. Ekki skera mig neinstaðar, ekki meiða mig á línunum, ekki synda á veginn,“ sagði sundmaðurinn Már Gunnarsson að loknu fyrsta sundi sínu á Ólympíumóti fatlaðra í Tókýó.

Már sjöundi í sínum riðli og komst ekki í úrslit
Sundmaðurinn Már Gunnarsson keppti í sinni fyrstu grein á Ólympíumóti fatlaðra, Paralympics, í nótt. Már keppti í 50 metra skriðsundi og komst ekki í úrslit.

Már og helgiathöfn sundmanna: „Ekki gert í þeim tilgangi að líta betur út“
„Í dag rignir hárum yfir höfuðborg Japans,“ segir sundmaðurinn Már Gunnarsson, léttur í bragði, í undirbúningi sínum fyrir stóru stundina þegar hann hefur keppni á Ólympíumóti fatlaðra í Tókýó.

Róbert Ísak bætti Íslandsmet sitt enn á ný og endaði í sjötta sæti
Róbert Ísak Jónsson sló eigið Íslandsmet í 100 metra flugsundi á Ólympíumóti fatlaðra í morgun. Hann endaði 6. sæti í úrslitum í flokki S14, þroskahamlaðra.

Róbert Ísak bætti eigið Íslandsmet og synti örugglega inn í úrslit
Róbert Ísak Jónsson bætti eigið Íslandsmet í 100 metra flugsundi á Ólympíumóti fatlaðra, Paralympics, í nótt. Róbert Ísak synti í undanrásum S14 flokksins í nótt og tryggði sér sæti í úrslitum með frammistöðu sinni.

Stefnir á að bæta eigin Íslandsmet í Tókýó
Róbert Ísak Jónsson verður fyrstur Íslendinga til að keppa á Ólympíumóti fatlaðra, Paralympics, sem fram fara í Tókýó í Japan. Róbert Ísak keppir í flokki S14 og stingur sér til sunds í nótt, aðfaranótt fimmtudags.

„Ímynd ákveðins himnaríkis“
Sundmaðurinn Már Gunnarsson heldur áfram að veita fylgjendum sínum á samfélagsmiðlum skemmtilega innsýn inn í lífið í Tókýó þar sem ólympíumót fatlaðra er nú að hefjast.

Már hrökk upp af værum svefni: „Nei, ekki í dag. Ekki í dag!“
Sundkappinn Már Gunnarsson hefur staðið í ströngu í undirbúningi fyrir keppni á Ólympíumóti fatlaðra en hugðist nýta langþráð tækifæri til að sofa út í morgun. Honum varð hins vegar ekki að ósk sinni.

Már Gunnars skoraði á Patrek í pílukastkeppni blindra
Ólympíufarinn Már Gunnarsson heldur áfram að skemmta sér og öðrum með stórskemmtilegum innslögum sínum frá æfingabúðum íslenska hópsins sem keppir á Ólympíumóti fatlaðra.