Ferðaþjónusta

Fréttamynd

Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hvera­gerðis og Sel­foss

Eigendur Hótels Hjarðarbóls í Ölfusi leita nú að meðfjárfestum og samstarfsaðilum fyrir umfangsmikla uppbyggingu ferðaþjónustu á jörðinni Hjarðarbóli, sem staðsett er á milli Hveragerðis og Selfoss. Nú þegar hafa verið teiknaðar upp hugmyndir að nýju hóteli og frekari uppbyggingu á svæðinu þar sem lögð verður áhersla á sjálfbærni og vistvænar lausnir.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Von­brigði ef ballið er búið á Hótel Flat­ey

Hótel Flat­ey hefur verið ákveðinn mið­punktur þess lífs sem iðar í Flat­ey á Breiðafirði á sumrin. Nú eru þó blikur á lofti og óvissa um hvort hótelið verði yfir­leitt opið í sumar er lík­leg til að hafa tölu­verð áhrif á menningarástandið á þessum rómaða áfangastað.

Innlent
Fréttamynd

Galin skatt­heimta ríkis­stjórnarinnar

Í fyrradag átti ég fund með þýskum samstarfsaðila okkar, sem við höfum unnið með árum saman. Viðkomandi selur pakkaferðir frá Þýskalandi til Íslands. Fundarefnið var upphaf framleiðslu- og sölutímabilsins fyrir árið 2027. Hann er orðinn ýmsu vanur þegar kemur að ófyrirsjáanleikanum sem hér ríkir, bæði hvað varðar gengi krónu og breytingar á rekstrarumhverfi ferðaþjónustu á Íslandi.

Skoðun
Fréttamynd

„Þetta hjól er næstum alltaf tómt“

Íbúi skammt frá Miðbakka segir það fullreynt að hafa parísarhjól á svæðinu og kallar eftir því að borgarbúar endurheimti útivistarsvæði. Undirskriftarlisti hefur verið stofnaður til að mótmæla áformunum. 

Innlent
Fréttamynd

Voni að allir fái starfið aftur

Forsvarsmenn Berjaya segjast hafa þurft að grípa til erfiðra aðgerða og segja upp starfsfólki á Hilton Reykjavík Nordica og Berjaya Reykjavík Natura Hotel eftir að ekki náðust samningar við Reiti um leigu á hótelunum. Þau voni að Íslandshótel, sem taka við hótelunum, bjóði öllum starf.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Vildi að betur hefði verið staðið að upp­sögnum hótelstarfsfólks

Forstjóri Íslandshótela segir að hann hefði viljað standa betur að þeirri hópuppsögn hátt í þrjú hundruð starfsfólks Hilton og Natura hótela sem Berjaya stóð að og tilkynnt var um í gær. Hann hefði viljað halda starfsfólkinu betur upplýstu og fyrr. Þá gerir hann ekki ráð fyrir öðru en að ráða allt fólkið aftur til starfa.

Innlent
Fréttamynd

Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya

Öllu starfsfólki Hilton Nordica og Natura-hótelanna verður sagt upp á þriðjudag í næstu viku. Starfsfólk Hilton Nordica var boðað á fund klukkan tvö síðdegis þar sem tilkynnt var um hópuppsögnina. Hótelin tilheyra í dag keðju Iceland Hotel Collection by Berjaya en uppsagnirnar eru liður í tilfærslu hótelanna tveggja yfir til Íslandshótela.

Innlent
Fréttamynd

Ís­land sé orðið dýrasta land í heimi

„Ísland er orðið dýrasta land heims í dag. Það er orðið nær tvöfalt dýrara en Evrópa að meðaltali og hefur aldrei verið eins dýrt og akkúrat núna. Við erum orðin miklu dýrari heldur en dýrustu lönd heims sem við berum okkur iðulega saman við.“

Innlent
Fréttamynd

Sí­fellt fleiri telja Ís­lands­ferð ekki þess virði

Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir sífellt fleiri ferðamenn hafa ekki fundist ferðalagið sitt þess virði vegna hás verðlags. Hann kallar eftir því að stjórnvöld hætti að líta á ferðaþjónustuna sem „einhvers konar tunnu sem hægt sé að moka peningum í ríkissjóð“.

Innlent
Fréttamynd

Ís­land verð­leggur sig út af markaði

Það vekur ugg að sjá niðurstöður landamærakönnunar Ferðamálastofu fyrir árið 2025 sem stofnunin birti í síðustu viku. Þar sem sífellt fleiri ferðamenn sem sækja landið heim svara því til að Íslandsferðin hafi ekki verið peninganna virði.

Skoðun
Fréttamynd

Hefur „nær engar á­hyggjur“ af eldsneytisskorti

Michael O'Leary forstjóri írska lággjaldaflugfélagsins Ryanair segist hafa „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti félagsins í sumar þrátt fyrir viðvarandi eldsneytisskort margra flugfélaga vegna Íransstríðsins. Hann varar þó við því að flugfargjöld geti hækkað síðar á árinu.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Varar við „al­var­legri stöðu“ sem geti haft ófyrir­sjáan­legar af­leiðingar fyrir fé­lagið

Forstjóri Icelandair fer hörðum orðum um „ólögmætar […] samstilltar aðgerðir“ flugmanna félagsins síðustu vikur, sem hafa orðið þess valdandi að aflýsa hefur þurft fjölda flugferða, og segir alvarlega stöðu vera að teiknast upp sem geti haft „ófyrirsjáanlegar afleiðingar“ með tjóni sem hluthafar hafi engan áhuga á að taka á sig. Þá fullyrðir hann að þrátt fyrir bætta nýtingu undanfarin ár þá sé flugmannakostnaður Icelandair orðinn ósamkeppnishæfur.

Innherji
Fréttamynd

Hafna því að hanta­veiran hafi borist frá hjara veraldar

Yfirvöld í ferðamannabænum Ushuaia á syðsta odda Suður-Ameríku þræta fyrir að hópsýking hantaveiru eigi upptök sín í borginni. Argentínskir sérfræðingar telja mögulegt að veiran hafi borist í ferðamenn á vinsælum fuglaskoðunarstað í Ushuaia.

Erlent
Fréttamynd

Bláa lónið fær sér­leyfi og lóð í Þjórs­ár­dal

Í dag voru sérleyfis- og lóðaleigusamningar á milli íslenska ríkisins og Bláa Lónsins hf. um uppbyggingu og rekstur þjónustumiðstöðvar og annarrar atvinnustarfsemi í ferðaþjónustu í Þjórsárdal undirritaðir. Samningarnir eru fyrsta skrefið í uppbyggingu gestastofu í mynni Þjórsárdals þar sem fjölbreytt þjónusta verður í boði fyrir ferðamenn en dalurinn er sagður eitt merkasta náttúru- og sögusvæði Íslands.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Ætla að draga enn úr fram­boði Icelandair í haust

Stefnt er að því að Icelandair dragi úr framboði sínu á flugferðum um fimm prósent í haust til þess að bregðast við snörpum verðhækkunum á eldsneyti. Flugfélagið hefur þegar dregið úr framboði, hækkað fargjöld og kostnaðaraðhaldi vegna hækkananna.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Gull­grafaraæði magnast upp í tengslum við sól­myrkvann

Eins og Íslendingar, sem flestir þykjast þrælskipulagðir ef þeir vita hvað þeir eru að fara að gera á morgun, eru smám saman að átta sig á verður almyrkvi 12. ágúst. Hundrað dagar í dag. Öll gisting er fyrir löngu uppbókuð og verðið er að sigla upp úr öllu valdi.

Innlent
Fréttamynd

Shakira söng fyrir milljónir á Copacabana

Söngkonan Shakira kom í gær fram á ókeypis tónleikum á Copacabana-ströndinni í Rio de Janeiro. Milljónir voru viðstaddar en borgaryfirvöld greiddu fyrir tónleikana. Áður hafa Madonna og Lady Gaga komið fram á ókeypis tónleikum í borginni.

Tónlist
Fréttamynd

Telja „tíma­spursmál“ hve­nær Icelandair fer í frekari niður­skurð á flug­fram­boði

Óveðurskýin í rekstrarumhverfi flugfélaga hrannast upp núna þegar verð á þotueldsneyti hefur meira en tvöfaldast frá því að stríðsátökin brutust út við Persaflóa í lok febrúar og að óbreyttu er útlit fyrir, að mati sumra greinenda, að Icelandair þurfi að grípa til sömu aðgerða og aðrir keppinautar með því að skerða enn meira framboð flugsæta til Keflavíkur. Það mun „óhjákvæmilega“ setja mark sitt á innlenda ferðaþjónustu.

Innherji
Fréttamynd

Vasaþjófnaður aukist að undan­förnu

Tilkynningum til lögreglunnar á Suðurlandi um vasaþjófnað hefur fjölgað að undanförnu. Aðalvarðstjóri segir hópa sem komi til landsins í þeim eina tilgangi að stunda vasaþjófnað mögulega skýringu.

Innlent
Fréttamynd

Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heims­vísu

Snorklferð DIVE í Silfru hefur verið valin besta upplifun ferðamanna í heiminum af notendum og starfsmönnum Tripadvisor, fyrir árið 2026. Ferðin í Silfru er í efsta sæti yfir það besta sem hægt er að gera í heiminum í árlegum verðlaunum fyrirtækisins en verðlaunin byggja á umsögnum ferðamanna.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Ó­vissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfs­menn

Íslandshótel munu hefja hótelrekstur í húsnæði við Suðurlandsbraut og Nauthólsveg sem hefur hýst Hilton Reykjavík Nordica og Reykjavík Natura Hotel. Samhliða því lætur Berjaya Hotels Iceland af rekstri hótelanna en malasíska fyrirtækið keypti hann af Icelandair Group árið 2019. Stjórnendur Íslandshótela hyggjast taka yfir ráðningarsamninga starfsfólks.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hvernig kveikjum við neistann?

Ísland er einstakt land þar sem 400.000 manna þjóð tekur á móti tveimur milljónum gesta á ári hverju. Þessi blómlegi iðnaður, ferðaþjónustan, er drifkraftur efnahagsins, en hann er líka sá vettvangur þar sem reynir mest á varðveislu íslenskrar tungu.

Skoðun
Fréttamynd

Af­koman yfir væntingum en horfur „ekki góðar“ vegna hærri elds­neytis­kostnaðar

Afkoma Icelandair á fyrsta fjórðungi var nokkuð yfir væntingum greinenda, meðal annars vegna eignasölu og lægri eldsneytiskostnaður en óttast var, og batamerki er að sjá í rekstri félagsins. Áframhaldandi hátt raungengi og vaxandi kostnaður vegna olíuverðshækkana setur hins vegar mark sitt á horfurnar inn í árið og útlit er fyrir lakari afkomu á öðrum fjórðungi en á sama tíma í fyrra þótt einingatekjur muni enn aukast.

Innherji
Fréttamynd

Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna

Flugfélagið Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna eftir skatta á fyrsta ársfjórðungi 2026. Þetta er minna tap í krónum talið en á sama tímabili í fyrra þegar tapið nam 6,1 milljarði króna. Jákvæð gengisáhrif komu til lækkunar á tapi síðasta árs en Icelandair gerir upp í bandaríkjadölum. Ef horft er til þess þá eykst tap milli ára og fer úr 44,1 milljón dala í 45,3 milljónir dala í ár.

Viðskipti innlent