Ferðaþjónusta

Ferðamenn ráfa um og týnast á Þingvöllum
Algengt er að ferðamenn skili sér ekki í rútur á Þingvöllum. Fræðslustjóri hefur áhyggjur af öryggi ferðamannana.

Fjögur þúsund ferðamenn væntanlegir með skemmtiferðaskipum vegna sólmyrkvans
Azores, Magellan, Marco Polo og Voyager.

Kanarnir í Jökulsárlóni höfðu engan áhuga á Darwin-verðlaununum
Áminning um þróunarkenninguna, hitastig og dýpt vatnsins í lóninu varð til þess að ferðamennirnir komu sér á fast land.

Fækkuðu fötum og fífluðust við Jökulsárlón
"Það er bara þannig. Heimskingjar verða alltaf til,“ segir íslenskur leiðsögumaður.

Ferðamenn í óveðursferðir: „Þeir eru bæði forvitnir og líka smá smeykir“
Roksala er í óveðursferðum. Fyrirtæki, sem tengist björgunarsveitunum, hefur í tvö ár skipulagt óveðursferðir fyrir ferðamenn.

Breytingar gerðar á lokunarsvæðinu umhverfis Holuhraun
Nýja lokunarsvæðið nær nú um tuttugu metra út fá jaðri nýja hraunsins, Dyngjujökli í suðri, farvegi Jökulsár á Fjöllum í austri og vestustu kvíslar Jökulsár á Fjöllum í vestri.

34 prósent aukning ferðamanna
Rúmlega 70 þúsund ferðamenn fóru frá Íslandi í febrúar.

Stýra álagi í miðbænum með kvótum
Eftirspurn eftir hótelherbergjum í miðborg Reykjavíkur heldur áfram að aukast, þrátt fyrir að ný bætist við árlega.

Stjórnvöld hafa ekki brugðist við auknum fjölda ferðamanna
„Fyrst og fremst er áhyggjuefni innviðauppbygging sem hefur ekki fylgt þessum mikla vexti.“

Ferðaþjónustan stærsta útflutningsgreinin
Ferðaþjónustan er fyrsta útflutningsgreinin til að rjúfa þrjú hundruð milljarða múrinn í útflutningstekjum á ári.

Norðurljósadýrð á Klaustri
Ferðamenn voru orðlausir.

Öldur hrifsuðu ferðamenn út í sjó: „Þau voru náttúrulega í sjokki“
Ferðamenn voru í bráðri hættu á Djúpalónssandi á Snæfellsnesi í dag vegna mikils öldugangs.

„Það er komin heilmikil þreyta í björgunarsveitirnar“
Sveinn Kristján Rúnarsson, yfirlögregluþjónn á Suðurlandi, segist finna fyrir því hjá björgunarsveitarmönnum á svæðinu að starf sveitanna sé að ná ákveðnum þolmörkum.

Spá 1,6 milljónum gesta á Þingvöllum eftir tíu ár
Ferðamálastofa reiknar með að á bilinu 970 þúsund til 1,6 milljónir manna heimsæki Þingvöll á árinu 2025. Þingvallanefnd hugar að stækkun þjónustuhúss á Hakinu og uppbyggingu veitingaaðstöðu. Engin áform eru um að reisa nýtt hótel.

Fundu þrjá ferðamenn á hálendinu innan af Eyjafirði
Þrír ferðamenn sem leitað hefur verið að á hálendinu innan af Eyjafirði eru fundnir, heilir á húfi.

Neyðarboð bárust frá ferðamönnum
Björgunarsveitin Dalbjörg í Eyjafirði og Súlur, björgunarsveitin á Akureyri voru kallaðar út á fimmta tímanum í dag eftir að boð bárust frá SPOT sendi á eða við Urðarvötn.

Hrasaði og missti meðvitund á Þingvöllum
"Íslensk náttúra er hörð og hrjóstrug. Ef menn fara út af sandræmunni eða stíga út á hraunið þá geta þeir dottið,“ segir þjóðgarðsvörður á Þingvöllum.

SA leggjast gegn frumvarpi um náttúrupassa
Samtökin segja alls óvíst hvort tekjur af náttúrupassa muni skila sér til uppbyggingar innviða ferðaþjónustunnar.

Íbúar og ferðamenn á Kötlusvæði án farsímasambands í tvo sólarhringa
"Ég vil ekki gera lítið úr öðrum svæðum en það er algjört lykilatriði að farsímasamband sé á þessu svæði,“ segir Elín Einarsdóttir.

„Ekki eins og fólk sé ekki varað við hættunum“
Upplýsingafulltrúi Landsbjargar og forstöðumaður skrifstofu Ferðamálastofu á Akureyri segja að gera þurfi betur í því að auka öryggi ferðamanna hér á landi.

Ítrekað uppselt í Bláa lónið
Stefnir í að heimsóknir í Bláa lóninu ári 2015 slagi hátt í milljón manns.

Rúður sprungu í flestum bifreiðum
Ofsaveður gekk yfir landið um helgina. Björgunarsveitir áttu fullt í fangi með björgunarstörf á Suðurlandi. Björgunarsveitarmenn fá skemmdir á eigin bílum ekki bættar. Átta bílar voru skildir eftir á milli Péturseyjar og Skóga.

Ferðamenn urðu illa úti í Öræfasveit
„Núna er bara orðið svo mikið af túristum sem vaða bara út í veðrið,“ segir starfsmaður á Hótel Skaftafelli.

Tók leigubíl fyrir 37 þúsund kall þegar það byrjaði að gjósa
Leigubílstjórinn í Rangárvallasýslu er alvanur að keyra ferðamenn langar vegalengdir en hafði ekki áður þurft að bruna með vísindamenn í bæinn vegna náttúruhamfara.

Íslenskur leiðsögumaður: „Sumir hlusta bara ekki“
Svo virðist sem erlendir ljósmyndarar hunsi aðvaranir reyndra íslenskra leiðsögumanna hér á landi í leit að hinni fullkomnu ljósmynd.

Eftirlitslaus börn hlaupandi á ísnum við Jökulsárlón
"Þetta er algjörlega galið. Fólk virðist ekki sjá hættuna í þessu og er hlæjandi á ísnum,“ segir leiðsögumaðurinn Owen Hunt sem var með hóp fólks við Jökulsárlón í gær.

Fífldjarfur ferðamaður í Reynisfjöru: „Tímaspursmál hvenær verður stórslys þarna“
Dæmi eru um banaslys í Reynisfjöru undanfarin ár en svo virðist sem ferðamenn geri sér engan veginn grein fyrir hættunni af briminu.

Ferðaþjónustan komin að þolmörkum: „Hvernig verður sumarið ef þetta er svona núna?“
Fjöldi ferðamanna á Íslandi í janúar síðastliðnum var álíka og á háannatíma, í júlí og ágúst árið 2006 og árin þar á undan.

Ferðamanns leitað á Reynisfjalli
Björgunarsveitir kallaðar út vegna mannsins, sem skilaði sér ekki á hótel á réttum tíma.

Túristar sem virtu ekki lokanir látnir bíða til morguns
Tveir erlendir ferðamenn hafa setið í föstum bíl sínum efst í Norðurárdal síðan á ellefta tímanum í gærkvöldi. Þeir óku framhjá lokunarskilti sem gaf ótvírætt til kynna að framundan væri ófærð og festu bílinn brátt.