Umfjöllun, viðtöl, myndir og einkunnir: Valur - FH 2-0 | Sigurður Egill afgreiddi FH-inga Haraldur Hróðmarsson á Vodafone-vellinum skrifar 17. maí 2015 21:15 Valsmenn fagna. vísir/stefán
Valsarar sigruðu FH óvænt á Vodafone vellinum í kvöld.Liðin voru í ólíkri stöðu fyrir leikinn. FH með fullt hús stiga en Valsarar með eitt stig eftir slæma útreið gegn nýliðum Leiknis í 1. umferð og töpuðu niður tveggja marka forystu gegn Víkingi um síðustu helgi. Leikurinn hófst fjörlega, Atli Guðnason átti skalla úr ágætu færi fyrir FH-inga á 6. mínútu og tveimur mínútum síðar átti Andri Adolpsson gott skot af vítateigslínunni sem sleikti stöngina á leiðinni framhjá en Róbert örn Óskarsson stóð stjarfur á línunni. Liðin skiptust á að sækja en sóknaruppbygging FH-inga var mun betri en í fyrstu tveimur leikjum tímabilsins og greinilegt að leikmenn eru búnir að venjast 4-4-2 kerfinu.Stefán Karlsson, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, var á Hlíðarenda í kvöld og tók myndirnar sem fylgja umfjölluninni. Vörn Valsara hélt ágætlega með þá Orra Sigurð og Thomas Guldborg í miðvarðarstöðunum og möguleikar FH-inga komu frá Atla Guðnasyni sem var skeinuhættur á vinstri kantinum í byrjun leiks. Valsarar fengu besta færið í fyrri hálfleik á 35. mínútu þegar aukaspyrna Kristins Freys hitti ennið á Patrick Pedersen en hann skallaði yfir markið. Skömmu áður hafði Haukur Páll skallað samskonar aukaspyrnu Kristins yfir. Síðari hálfleikurinn byrjaði ekki fjörlega en þegar Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, tók Jeremy Serwy útaf fyrir Bjarna Þór Viðarsson. Serwy hafði átt fremur bragðdaufan leik fram að því en við skiptinguna galopnaðist hægri vængur FH-inga og Valsmenn fundu leið fram völlinn. Andri Adolphsson átti góða fyrirgjöf frá þeim kanti sem Sigurður Egill Lárusson skallaði inn 5 mínútum eftir skiptinguna. 1-0 fyrir Val með marki sem kom upp úr engu. Skömmu síðar átti Andri aðra fyrirgjöf á Sigurð en þá brást honum bogalistin og skotið flaug framhjá markinu. Markið kom upp um FH-inga sem höfðu ekki spilað vel og Hafnfirðingar brugðust illa við að lenda undir og á 66. mínútu skoruðu Valsarar aftur. Haukur Páll Sigurðsson var aleinn og yfirgefinn á miðjum vellinum með endalausa sendingamöguleika. Haukur veðjaði á réttan hest, sendi á Patrick Pedersen sem framlengdi boltann á Sigurð Egil sem sneri á varnarmann og skaut hnitmiðuðu skoti í hornið, óverjandi fyrir Róbert. Heimir gerði tvöfalda skiptingu og inná kom Atli Viðar Björnsson en allt kom fyrir ekki. Atli sást varla en kom sér þó í eitt færi og reyndi að vippa yfir Ingvar Kale en boltinn lyftist varla af jörðinni og rúllaði í fangið á Ingvari. Valsarar voru líklegri til að bæta við en FH að minnka muninn, Patrick Pedersen skaut í slá meðal annars eftir hornspyrnu, og sigurinn að lokum sanngjarn. FH-ingar voru ólíkir sjálfum sér, enginn andi virtist í mönnum, hreyfing án bolta var engin og allar aðgerðir hægar og fyrirsjáanlegar. Valsmenn, aftur á móti, voru sterkir varnarlega og sóknarleikurinn óx þegar leið á leikinn. Gríðarlega sterkur sigur hjá Hlíðarendapiltum eftir slaka byrjun. Sigurður Egill Lárusson var kampakátur í leikslok: "Þetta var mjög flottur sigur, það var kominn tími á sigur. Við spiluðum vel í síðasta leik og ætluðum að reyna að byggja ofan á þá frammistöðu og mér fannst þetta frábær leikur hjá okkur." Sigurður er vanur að gefa frábærar fyrirgjafir en í þessum leik tók hann á móti einni slíkri frá Andra Adolphssyni: "Þetta var frábær bolti hjá Andra, beint á pönnuna og boltinn söng inni" sagði glaðbeittur Sigurður Egill.Heimir Guðjónsson svekktur á hliðarlínunni í kvöld.vísir/stefánHeimir: Vorum teknir í bakaríið Heimir Guðjónsson var ómyrkur í máli að leik loknum. "Mér fannst við ekki byrja leikinn vel, enduðum illa og miðjan var einnig slök. Við vorum teknir í bakaríið af góðu Valsliði,“ sagði Heimir. En hvað var vandamálið? „Við vörðumst ekki sem lið og það var engin hreyfing á okkur sóknarlega. Við getum prísað okkur sæla að hafa ekki tapað stærra en 2-0". Heimir vildi ekkert segja um hvort breytingar yrðu á liðinu fyrir næsta leik.Kristinn Freyr Sigurðsson með takta í kvöld.vísir/stefánÓlafur: Áttum frábæran leik Ólafur Jóhannesson, þjálfari Vals, var ánægður með sigurinn. „Við áttum frábæran leik og unnum sanngjarnt, Við svöruðum fyrir okkur eftir fyrstu tvo leikina," sagði hann. Ólafur vildi ekki meina að hann hefði kent Heimi Guðjónssyni allt sem hann kann og sagði það ekki auðveldara að vinna Heimi en aðra þjálfara. „Það er hinsvegar gaman að vinna FH-liðið, atvinnumannalið að þeirra sögn og frábært lið,“ saagði maðurinn með 10/11 húfuna, Ólafur Jóhannesson.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Gagnrýnd af forsetanum fyrir að vilja sofa hjá strákunum á EM Sport Ákvað að fara þegar faðir hans var rekinn Handbolti Banna trans konum að keppa á Ólympíuleikunum Sport Ballið ekki búið hjá Breiðabliki Fótbolti „Meiri áhrif frá Arnari Gunnlaugssyni heldur en Svíþjóð“ Fótbolti Hetja Englands á EM: „Fyrir fjórum árum var ég krakki að kasta boltum til þeirra“ Fótbolti Þorsteinn líklega áfram með landsliðið Fótbolti Sjáðu rauða spjaldið og vítin fjögur úr slátrun Lech á Blikum Fótbolti Hefur trú á að Rashford láti ljós sitt skína í Katalóníu Enski boltinn Uppgjörið: Lech Poznan - Breiðablik 7-1 | Afhroð í Póllandi Fótbolti Fleiri fréttir Uppbótartíminn: „Þetta tók níu sekúndur“ KR í markmannsleit eftir meiðsli „Við erum ekki á góðum stað“ Enn leikmaður KR en nú lánaður til Lyngby Íþróttamaður HK til liðs við ÍA Snýr heim í toppliðið sem dreymir um Bestu Fékk útrás fyrir keppnisskapið við heimilisstörfin „Gerir þetta skemmtilegt fyrir deildina“ „Búnir að bíða í 1435 daga eftir að komast á toppinn“ Uppgjörið: Víkingur - Valur 1-2 | Valsmenn tóku toppsætið af tíu Víkingum Sjáðu sigurmark Viktors og takta Hallgríms fyrir norðan Hnéð gott og getur spilað meira: „Ég er tilbúinn“ Fór úr ökklalið og fótbrotnaði í Lengjudeildarleik Uppgjörið: KA - ÍA 2-0 | KA sendi KR í fallsæti Uppgjörið: Breiðablik-Vestri 1-0 | Blikar náðu Víkingum á toppnum Cosic skaut Njarðvík á toppinn áður en hann fer til KR Afturelding að styrkja sig fyrir seinni hlutann Víkingur afturkallar Daða Berg: Fær ekki að spila bikarúrslitaleikinn Birnir Snær genginn til liðs við KA „Bikarleikurinn sat aðeins í mönnum“ „Skemmtilegt og erfitt að spila á móti Fram“ Uppgjörið: Afturelding - Fram 1-1| Allt jafnt í Mosó Jón Páll aðstoðar Einar Leikur Grindavíkur færður vegna gossins Nýir erlendir leikmenn halda áfram að streyma í botnliðið Elvis snúinn aftur KR-ingar hafa enn ekki unnið útileik í sumar Sjáðu mörkin úr Bestu: Hetjudáðir fyrirliðans og alvöru innkoma Uppgjörið: ÍA - KR 1-0 | Skagamenn náðu fram hefndum Uppgjörið: ÍBV - Stjarnan | Nauðsynlegur sigur fyrir Eyjamenn Sjá meira