Sánchez tryggði Arsenal stig í París | Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 13. september 2016 20:45 Cavani fagnar marki sínu. vísir/getty
Paris Saint-Germain og Arsenal skildu jöfn, 1-1, í A-riðli Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Leikurinn var aðeins 42 sekúndna gamall þegar Edinson Cavani skallaði boltann í netið eftir fyrirgjöf Serge Aurier og kom PSG í 1-0. Cavani hefði hæglega getað skorað þrennu en hann klúðraði dauðafæri í hvorum hálfleik. David Ospina varði einnig vel frá Ángel Di María í seinni hálfleik en Kólumbíumaðurinn átti flottan leik í marki Arsenal. PSG hefndist fyrir að nýta ekki færin því Alexis Sánchez jafnaði metin á 77. mínútu. Hann fylgdi þá eftir skoti Alex Iwobi sem Alphonse Aréola varði. Skömmu síðar slapp Cavani í þriðja sinn einn í gegn en Ospina bjargaði vel. Iwobi fékk svo gott færi til að tryggja Arsenal sigurinn en Aréola varði frá Nígeríumanninum. Í uppbótartíma fóru svo tvö rauð spjöld á loft. PSG-maðurinn Marco Veratti fauk af velli og Oliver Giroud, framherji Arsenal, fór sömu leið. Skömmu síðar flautaði ungverski dómarinn Viktor Kassai til leiksloka. Lokatölur 1-1.PSG 1-0 Arsenal PSG 1-1 Arsenal Rauðu spjöldin
Fótbolti Tengdar fréttir Birkir og félagar björguðu stigi Birkir Bjarnason lék sinn fyrsta leik í Meistaradeild Evrópu þegar Basel gerði 1-1 jafntefli við Ludogorets í A-riðli. 13. september 2016 20:45 Mest lesið Rassinn út og Netflix í rugli er Paul lagði Tyson Sport Kom heim með skjalatösku fulla af seðlum frá Rússlandi Fótbolti Árekstur í beinni er hitað var upp fyrir leik Íslands Fótbolti Vildi ekki rota og meiða Tyson Sport Messi: Þú ert hugleysingi Fótbolti Sóley Margrét heimsmeistari Sport Reynslubolti skilin eftir heima: „Niðurbrotin“ Handbolti Steig á tána á Mike Tyson Sport Scott McTominay sér ekki eftir neinu Enski boltinn Dagskráin í dag: Íslenska karlalandsliðið í eldlínunni í Svartfjallalandi Sport Fleiri fréttir Sveindís og stöllur með fimm stiga forskot á toppnum Sædís skoraði annan deildarleikinn í röð Sjálfsmark skildi að og strákarnir komnir á næsta stig Van Nistelrooy sækir um stjórastarfið hjá Coventry Árekstur í beinni er hitað var upp fyrir leik Íslands Sárafáir Íslendingar á meðal 4.000 áhorfenda á leik dagsins „Þeir hafa bætt sig frá því síðast en við einnig“ „Menn verða betri með hverju verkefninu sýnist mér“ Hafa lagt extra mikið í greiningu á ákveðnum þætti í leik Íslands Scott McTominay sér ekki eftir neinu Kom heim með skjalatösku fulla af seðlum frá Rússlandi Infantino lét grafa nafnið sitt tvisvar á nýja bikarinn fyrir HM félagsliða Messi: Þú ert hugleysingi Ronaldo skoraði tvö í markaveislu Portúgala í lokin Evrópumeistararnir fögnuðu sigri á Parken Amorim gerir lítið úr pressunni: Ég er mjög afslappaður Ekki ástæða til að hafa áhyggjur af Sveindísi ennþá Óljóst hvar landsleikir í apríl fara fram Plan Arons gekk upp: „Gott að geta gefið af mér“ Stærsta stjarna Svartfellinga ekki með gegn Íslandi: „Erum mjög særðir“ Svona var blaðamannafundur KSÍ í Podgorica Áslaug Munda kemur inn í landsliðið Enn kvarnast úr liði Vestra Langlíklegast að Ísland fari í umspil í mars og lítinn HM-riðil Amorim hitti heppna stuðningsmenn United í klefanum Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Kom til handalögmála í París Coote skipulagði dóppartí rétt fyrir leik sem hann dæmdi United gæti skorið niður framlög til fatlaðra stuðningsmanna Fyrsta stóra fótboltafélagið sem yfirgefur X-ið: „Hatursvél“ Sjá meira
Birkir og félagar björguðu stigi Birkir Bjarnason lék sinn fyrsta leik í Meistaradeild Evrópu þegar Basel gerði 1-1 jafntefli við Ludogorets í A-riðli. 13. september 2016 20:45