Fréttir
218 219 220 221 222 223 224 225 226 … 334 ›
Aðstoðarmaður AfD-leiðtoga í fangelsi fyrir njósnir Dómstóll í Dresen dæmdi aðstoðarmann fyrrverandi Evrópuþingmanns öfgahægriflokksins Valkosts fyrir Þýskaland í tæplega fimm ára fangelsi fyrir njósnir í þágu Kínverja. Þingmaðurinn segist hafa verið grunlaus um njósnir aðstoðarmannsins þótt hann hafi sjálfur verið rannsakaður fyrir að þiggja mútur frá Kína og Rússlandi. Erlent 30.9.2025 14:20
Strandaglópar slaga í tuttugu þúsund Um það bil 9.300 Íslendingar sem áttu bókað flug heim að utan á næstu sjö dögum sitja fastir vegna gjaldþrots Play. Um 9.000 ferðamenn eru í sömu sporum hér á landi. Óskað hefur verið eftir því að flugfélög sem fljúga til Íslands bjóði upp á björgunarfargjöld. Innlent 30.9.2025 14:00
Sultuslakir strandaglópar eftir heilsuferð til Split Nú þegar rúmur sólarhringur er liðinn frá því að forsvarsmenn Play sögðu félagið fallið eru fjölmargir farþegar í vanda og reyna eftir fremsta megni að finna annað flug heim með hraði. Tvær konur í heilsuferð í Króatíu taka þó þessu verkefni með miklu æðruleysi enda var tilgangur ferðarinnar að efla líkamlega og andlega heilsu. Innlent 30.9.2025 13:14
Stefnir í fyrstu ríkisstöðvunina í sjö ár Ekkert virðist geta komið í veg fyrir stöðvun reksturs alríkis Bandaríkjanna í nótt. Repúblikanar og Demókratar, sem deila um fjárútlát til heilbrigðismála, keppast við að kenna hvor öðrum um en þetta verður í fyrsta sinn í sjö ár sem deilur um fjárlög leiða til að stöðvunar. Erlent 30.9.2025 13:04
Kallar þjóðaröryggisráð saman Þjóðaröryggisráð kemur saman á föstudag vegna drónaumferðar við flugvelli, bæði hér á Íslandi og í nágrannalöndum okkar. Forsætisráðherra segir grannt fylgst með, en mikilvægt sé að halda ró sinni. Innlent 30.9.2025 12:12
Verulegt högg fyrir ferðaþjónustuna Gjaldþrot Play er verulegt högg fyrir ferðaþjónustu hér á landi að minnsta kosti næstu mánuðina. Þetta segir Jóhannes Þór Skúlason framkvæmdastjóri samtaka ferðaþjónustunnar og jafnframt að því fylgi nokkur óvissa þegar kemur að bókunum hjá ferðaþjónustufyrirtækjum í vetur. Innlent 30.9.2025 11:58
Eftirköstin af gjaldþroti Play og friðaráætlun á Gasa Í hádegisfréttum fjöllum við áfram um þau tíðindi sem bárust í gær þess efnis að flugfélagið Play væri hætt starfsemi. Innlent 30.9.2025 11:38
Læknir í Kópavogi blekkti fjölskyldu sína með lygasögu um krabbamein Íslensk móðir sem starfar sem læknir gerði sér upp banvænt krabbamein og skrifaði upp á lyf fyrir foreldra sína og systur en neytti sjálf. Þá sendi hún karlmenn til að hafa í hótunum við barnsföður sinn sem fyrir vikið flúði heimilið um tíma með ungar dætur þeirra. Skipulögð brúðkaupsveisla fór út um þúfur og barnavernd skarst í leikinn. Innlent 30.9.2025 11:08
Ná ekki að leika árangur Wagner eftir Rúmum tveimur árum eftir dauða Jevgenís Prígósjín, rússnesks auðjöfurs og eiganda málaliðahópsins Wagner, hefur staða Rússa í Afríku versnað töluvert. Nýi málaliðahópur Rússa, Afríkudeildin, sem rekinn er af varnarmálaráðuneytinu hefur ekki skilað sama árangri og Wagner gerði á sínum tíma, hvorki með tilliti til hagnaðar eða áhrifa. Erlent 30.9.2025 10:37
Vilja Diddy í ellefu ára fangelsi Saksóknarar í máli bandaríska tónlistarmannsins Sean „Diddy“ Combs hafa farið fram á að honum verði gert að sæta ellefu ára fangelsisvist. Tónlistarmaðurinn hefur verið sakfelldur í tveimur ákæruliðum af fimm og mun dómari kveða upp refsingu næstkomandi föstudag 3. október. Erlent 30.9.2025 09:46
Áhyggjur landsmanna af útbreiðslu hernaðarátaka í Evrópu aukast Ríflega sjö af hverjum tíu svarendum í skoðanakönnun Gallup segjast nú telja líklegt að hernaður Rússa í Úkraínu leiði til átaka í fleiri löndum. Hlutfallið hefur aukist en nýlega hefur lofthelgi nokkurra evrópskra ríkja verið rofin af rússneskum loftförum. Innlent 30.9.2025 09:42
Hættir sem þingflokksformaður Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, hyggst hætta sem þingflokksformaður Miðflokksins. Innlent 30.9.2025 08:53
„Við erum ekki í stríði en við búum ekki við frið“ „Við erum ekki í stríði en við búum ekki við frið,“ sagði Friedrich Merz, kanslari Þýskalands, á viðburði í Dusseldorf í gær og vísaði þar til sambýlis Evrópu við Rússland. Erlent 30.9.2025 08:52
Um þúsund manns teknir af lífi í Íran það sem af er ári Sérfræðingar Sameinuðu þjóðanna hafa harðlega gagnrýnt mikla fjölgun aftaka í Íran en yfir þúsund manns hafa verið teknir af lífi í landinu það sem af er ári. Erlent 30.9.2025 07:44
Sundlaugar borgarinnar verði bættar fyrir ungbarnafjölskyldur Menningar- og íþróttaráð Reykjavíkurborgar hefur samþykkt að skipa sérstakan spretthóp til að móta tillögur hvernig megi bæta aðstöðu, búnað og umhverfi fyrir ung börn og fjölskyldur þeirra í sundlaugum borgarinnar. Innlent 30.9.2025 07:36
Sunnan strekkingur og vætusamt Veðurstofan gerir ráð fyrir sunnan strekkingi víða um land með vætusömu veðri í dag, ýmist skúraklökkum eða stærri úrkomusvæðum með samfelldri rigningu um tíma. Veður 30.9.2025 07:13
Tugir drengja fastir í rústum skóla sem hrundi til grunna Björgunarmenn leita nú að tugum nemenda sem eru fastir í rústum skólabyggingar sem hrundi til grunna á eyjunni Austur Jövu í Indónesíu í gærkvöldi. Erlent 30.9.2025 07:05
Leiðtogar fagna áætluninni en bíða svara frá Hamas Leiðtogar í Evrópu og Mið-Austurlöndum virðast almennt jákvæðir í garð 20 punkta áætlunar Bandaríkjanna um endalok átaka á Gasa. Aðrir vara við því að hún sé óraunhæf. Erlent 30.9.2025 06:50
Hópslagsmál og hundaárás Alls voru 58 mál bókuð á vaktinni hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt. Lögreglu bárust meðal annars aðstoðarbeiðnir vegna ógnandi manna í miðborginni og hópslagsmála í póstnúmerinu 104. Innlent 30.9.2025 06:27
Vonsviknir ferðamenn og reiði út í Icelandair vegna hækkunar fargjalda Fréttir af gjaldþroti Play komu ferðamönnum á Keflavíkurflugvelli í opna skjöldu í morgun. Íslendingar sem eru strandaglópar á Tenerife þurftu að reiða fram rúma milljón vegna aukakostnaðar sem af hlýst vegna gjaldþrotsins. Innlent 29.9.2025 23:02
Arnarflug lifað lengst í samkeppni við Icelandair Allt frá sameiningu Flugfélags Íslands og Loftleiða fyrir ríflega hálfri öld hafa minnst fimm íslensk félög verið stofnuð til að keppa við Icelandair í farþegaflugi til og frá Íslandi. Öll hafa þau farið á hausinn. Innlent 29.9.2025 22:22
Misstu allt samband við Internetið Íbúar í Afganistan misstu samband við Internetið í dag. Sambandsleysið kemur í kjölfar þess að Talíbanarnir sem eru við stjórnvölinn lokuðu fyrir aðgang að Internetinu fyrir tveimur vikum. Erlent 29.9.2025 22:00
Erlendir miðlar fjalla um gjaldþrot Play Erlendir fjölmiðlar, þá sérstaklega breskir, hafa fjallað um gjaldþrot flugfélagsins Play. Einn þeirra segir að gjaldþrotið hafi áhrif á tólf þúsund farþega. Erlent 29.9.2025 20:28
Ísraelar samþykkja friðaráætlun Trumps Donald Trump Bandaríkjaforseti og Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, hafa sammældust um tuttugu punkta áætlun sem binda á enda á stríðið á Gasa á fundi þeirra í dag. Í áætluninni er krafist að Gasa verði svæði sem ógni ekki nágrönnunum sínum og að framkvæmd verði fanga- og gíslaskipti. Samþykki Hamas ekki áætlunina segist Netanjahú ætla að „ljúka því sem þeir hófu.“ Erlent 29.9.2025 19:41
Fall Play frá öllum hliðum Flugfélagið Play er gjaldþrota og hætti starfsemi í morgun. Fjögur hundruð manns misstu vinnuna og þúsundir ferðamanna hafa verið strandaglópar í dag. Forstjóri félagsins telur óvægna umræðu og deilur við starfsfólk meðal þess sem varð félaginu af falli. Innlent 29.9.2025 18:19
Tilkynnt um dróna yfir Keflavíkurflugvelli Lögreglan hefur að minnsta kosti tvisvar á síðustu tveimur vikum brugðist við tilkynningu um dróna á sveimi við Keflavíkurflugvöll, annars vegar innan haftasvæðisins og hins vegar utan þess. Í báðum tilfellum fann lögreglan ekki meinta dróna. Lögreglustjóri segist samt ekki merkja nokkra fjölgun á slíkum atvikum. Innlent 29.9.2025 18:16
Þriggja ára fangelsi: Tók ekki mark á lygilegri frásögn Fertugur Spánverji, Kendry Ariel Agramonte Moreta, hefur verið dæmdur til þriggja ára fangelsisvistar fyrir tilraun til innflutnings á tæpum þremur kílóum af kókaíni. Fyrir dómi sagðist hann ekkert hafa vitað af innflutningnum en dómari taldi frásögn hans ótrúverðuga og að engu hafandi við úrlausn málsins. Innlent 29.9.2025 17:13
Neyðast til að millilenda, tapaður peningur og rándýr flug heim Fjöldi fólks er nú strandaglópar víða um heim eftir að tilkynnt var um gjaldþrot flugfélagsins Play í morgun. Þáttastjórnendur Reykjavík síðdegis tóku nokkra af tali. Innlent 29.9.2025 17:08
Mafíósar dæmdir til dauða Ellefu meðlimir hinnar kínversku Ming-fjölskyldu hafa verið dæmdir til dauða í heimalandinu. 28 aðrir fjölskyldumeðlimir hlutu vægari dóma en fjölskyldan framdi ýmsa glæpi í gegnum samtök sín í Mjanmar, skammt frá landamærunum við Kína. Erlent 29.9.2025 16:48
Öruggur um að brátt ríki friður á Gasa Forseti Bandaríkjanna og forsætisráðherra Ísraels sitja nú á fundi í Hvíta húsinu í Bandaríkjunum. Umræðuefnið er tillaga ríkisstjórnar forsetans að friði á Gasa. Erlent 29.9.2025 16:22