Fréttir
261 262 263 264 265 266 267 268 269 … 334 ›
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Úkraínuforseti hvatti í dag þjóð sína til að halda áfram að berjast í stríðinu við Rússa, sem nú hefur staðið yfir í nákvæmlega tvö ár. Úkraínumenn eru í afar erfiðri stöðu í upphafi þriðja árs frá innrás; vopn eru af skornum skammti og forsetinn berst fyrir framtíðarfjármögnun að utan Innlent 24.2.2024 18:24
Funda aftur í hádeginu á morgun Fundi breiðfylkingar stéttarfélaga innan ASÍ og Samtaka atvinnulífsins lauk nú um klukkan hálf sex. Boðað hefur verið til annars fundar klukkan tólf á morgun. Innlent 24.2.2024 17:40
Lík Navalní afhent móður hans Lík rússneska andspyrnuleiðtogans Alexej Navalní hefur verið afhent Ljúdmílu Navalnaja móður hans. Hann lést í fangelsi í Síberíu á dögunum. Erlent 24.2.2024 17:15
Ný lögn í gegnum hraunið Lokað er fyrir heitt vatn á Grindavík meðan unnið er að því að tengja hjáveitulögn í bæinn. Með lögninni tapast minna af heitu vatni og hægt er að auka þrýstinginn. Um 25 manns vinna að verkinu, sem gengur vel. Innlent 24.2.2024 16:32
Unga konan sem kærði Albert muni eyða ævinni í að vinna úr málinu Lögmaður konunnar sem kærði knattspyrnumanninn Albert Guðmundsson fyrir kynferðisbrot skoðar nú hvort kæra skuli ákvörðun héraðssaksóknara um að láta málið niður falla til ríkissaksóknara. Málið hafi verið afar erfitt fyrir ungu konuna, sem muni eyða ævinni í að vinna úr því. Innlent 24.2.2024 15:30
Forsetahjónin miður sín vegna hundsins sem bítur ítrekað Commander Biden, fjölskylduhundur Joe Biden Bandaríkjaforseta, er til sífelldra vandræða en 24 atvik hafa verið tilkynnt þar sem hann hefur bitið starfsfólk bandarísku leyniþjónustunnar. Erlent 24.2.2024 15:26
Árásarmaðurinn fannst í Thames Maðurinn sem skvetti sýru eða öðrum eiturefnum í mæðgur í London í lok janúarmánaðar fannst látinn í Thames-ánni sem liggur í gegnum borgina. Erlent 24.2.2024 14:15
Bílstjórinn tekinn úr umferð hjá Pant Bílstjóri Hreyfils sem skildi fatlaðan dreng eftir við Víkingsheimilið á fimmtudag í stað þess að aka honum heim ekur ekki lengur fyrir Pant, akstursþjónustu fatlaðs fólks. Það staðfestir Haraldur Axel Gunnarsson framkvæmdastjóri Hreyfils. Innlent 24.2.2024 14:01
Mikil uppbygging framundan í Fjarðabyggð Bæjaryfirvöld í Fjarðabyggð undirbúa sig nú undir mikla fjölgun íbúa í sveitarfélaginu en samkvæmt spá Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar er gert ráð fyrir að íbúunum fjölgi um tæp 10 prósent næstu fimm árin, eða um 520 íbúa. Í dag eru íbúarnir um 5.400 talsins. Innlent 24.2.2024 14:01
Mál Alberts látið niður falla Héraðssaksóknari hefur fellt niður kynferðisbrotamál gegn knattspyrnumanninum Alberti Guðmundssyni. Síðasta sumar var hann kærður fyrir kynferðisbrot. Innlent 24.2.2024 13:18
„Við fylgjumst bara með stöðunni í kringum okkur“ Samninganefndir breiðfylkingar og Samtaka atvinnulífsins funda nú hjá Ríkissáttasemjara, en VR sagði sig úr fylkingunni í gær. Á sama tíma undirbúa Fagfélögin verkfallsaðgerðir. Formaðurinn fylgist vel með en gefur ekki upp hvort VR sláist í för með þeim. Innlent 24.2.2024 11:59
Fatlaður drengur fannst illa haldinn fjarri heimili sínu Móðir fatlaðs drengs sem skilaði sér ekki heim úr akstursþjónustu segir heppni að ekki fór verr. Sonur hennar fannst í Víkingsheimilinu um hálftíma eftir að hann fór úr leigubíl frá Pant, akstursþjónustu fatlaðs fólks. Bílstjórinn keyrir ekki lengur fyrir Pant. Innlent 24.2.2024 11:58
Hádegisfréttir Bylgjunnar Samninganefndir Breiðfylkingar og Samtaka atvinnulífsins funda nú hjá Ríkissáttasemjara, en VR sagði sig úr fylkingunni í gær. Á sama tíma undirbúa Fagfélögin verkfallsaðgerðir. Við fjöllum um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu 12. Innlent 24.2.2024 11:57
Kalli í Pelsinum látinn Athafnamaðurinn Karl J. Steingrímsson er látinn. Karl, sem var gjarnan kenndur við verslunina Pelsinn, lést síðastliðinn fimmtudag, 22. febrúar, 76 ára að aldri. Innlent 24.2.2024 10:43
Almannavarnir boða til íbúafundar fyrir Grindvíkinga Almannavarnir hafa boðað til upplýsingafundar í Laugardalshöll fyrir íbúa Grindavíkur næstkomandi mánudag. Markmiðið er að upplýsa íbúa um stöðu jarðhræringa og innviða í og við Grindavík. Innlent 24.2.2024 10:39
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Úkraínumenn í slæmri stöðu eftir tveggja ára átök Eftir tveggja ára stríðsrekstur hefur Rússum vaxið ásmegin í átökunum í Úkraínu. Þeir hafa sótt fram í austurhluta landsins og eru byrjaðir á umfangsmiklum árásum í suðri. Ólíklegt er þó að þeir hafi burði til að leggja umfangsmikil landsvæði undir sig, að svo stöddu. Erlent 24.2.2024 08:01
Víða vindur á landinu Hæð yfir Grænlandi og lægð við Noreg beina norðlægri átt að Íslandi í dag. Þetta kemur fram í textalýsingu Veðurstofunnar. Veður 24.2.2024 07:35
Maður vopnaður skotvopni reyndist vera að þrífa bílinn Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk í gærkvöldi tilkynningu um einstakling vopnaðan skotvopni í miðbæ Reykjavíkur. Maðurinn reyndist ekki vera með skotvopn heldur ryksugu og er sagður hafa verið að gera helgarþrifin á bílnum sínum. Innlent 24.2.2024 07:17
Djúpfölsuð sjálfsfróun hlaðvarpsstjörnu afhjúpar brotalamir á Twitter Hlaðvarpsstjörnunni Bobbi Althoff brá í brún þegar hún sá hvers vegna nafn sitt hafði verið að trend-a á samfélagsmiðlinum X. Djúpfalsað myndband (e. deep fake) af Althoff að fróa sér var þá búið að vera í dreifingu á miðlinum og fengið margar milljónir áhorfs. Erlent 24.2.2024 00:17
Gerðist svo ógnarhratt að þau gátu ekki tekið neitt með sér Minnst tíu fórust í gríðarlegum eldsvoða í fjölbýlishúsi í Valencia á Spáni í gær. Íslendingur búsettur í borginni segir íbúa í algjöru áfalli. Fjölskylda sem hún þekkir missti heimili sitt í brunanum. Erlent 23.2.2024 21:01
Hissa og sorgmædd yfir ákvörðun VR Framkvæmdastjóri SA segir það miður að VR hafi slitið viðræðum í ljósi þess að félagið var búið að samþykkja launaliðinn og að horft væri til verðbólguviðmiða. Það væri sorglegt að 0,2 prósentustiga munur hafi gert útslagið. Innlent 23.2.2024 20:22
Sérsveitin sprengdi úti á Granda Sérsveit ríkislögreglustjóra efndi til reglubundinnar æfingar við hafnarsvæðið á Granda í Reykjavík í dag. Viðfangsefni æfingarinnar var yfirtaka á skipum og öðrum sjóförum. Tökumaður Stöðvar 2 myndaði æfinguna í dag, þar sem notast var við sprengiefni og sprengjuvélmenni. Innlent 23.2.2024 20:04
Telur sig geta náð betri samningi utan breiðfylkingarinnar Formaður VR telur sig geta náð betri samningi við Samtök atvinnulífsins með því að slíta félagið frá samstarfi við breiðfylkingu stéttarfélaga. Það gerði hann í dag vegna ágreinings innan fylkingarinnar um forsenduákvæði sem snýr að verðbólgu. Innlent 23.2.2024 19:22
Hefja viðræður um uppgjör á skuldabréfum ÍL-sjóðs Fjármála- og efnahagsráðherra, fyrir hönd ÍL-sjóðs og íslenska ríkisins, og fulltrúar átján lífeyrissjóða hafa ákveðið að hefja viðræður um uppgjör á skuldabréfum sjóðsins. Innlent 23.2.2024 18:54
Sífellt erfiðara að sjá fyrir upphaf eldgoss Fyrirvarinn á næsta eldgosi á Reykjanesi gæti orðið innan við hálftími að mati jarðeðlisfræðings. Merkin sem fylgst er með í aðdraganda eldgosa verði sífellt veikari eftir því sem atburðunum á svæðinu fjölgar. Innlent 23.2.2024 18:36
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Formaður VR telur sig geta náð betri samningi við Samtök atvinnulífsins með því að slíta félagið frá samstarfi við Breiðfylkingu stéttarfélaga. Það gerði hann í dag vegna ágreinings innan fylkingarinnar um forsenduákvæði sem snýr að verðbólgu. Innlent 23.2.2024 18:01
Nauðgaði stúlku sem féll í yfirlið á göngustíg Rúmlega tvítugur karlmaður á Suðurlandi hefur verið dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir að nauðga kunningjastúlku sem mælti sér mót við hann til að fá vökva í veipið sitt. DNA-sýni var lykilgagn í málinu. Innlent 23.2.2024 17:36
Fagfélögin undirbúa verkfallsaðgerðir Fagfélögin, sem innihalda Rafiðnaðarsamband Íslands, Félag vélstjóra og málmtæknimanna og MATVÍS, samþykktu á fjölmennum fundi í dag að stofna aðgerðahóp til að undirbúa verkfallsaðgerðir. Innlent 23.2.2024 16:18
„Nammið í rútunni vont“ Lítið fer fyrir þingmönnum í ræðupúlti Alþingishússins því nú fer í hönd kjördæmavika. Brynjar Níelsson, fyrrverandi alþingismaður, fær ekki að fara með Sjálfstæðisflokknum hringferð um landið. Innlent 23.2.2024 16:06
Spókuðu sig í nýja hrauninu við Svartsengi Hópur ferðamanna kíkti á hraunið við Svartsengi í dag. Túristarnir, sem voru með síma sína á lofti, gengu um Grindavíkurveg sem varð illa úti í síðasta gosi. Innlent 23.2.2024 16:05