Allvíða skúrir og lægð nálgast Veðurstofan gerir ráð fyrir suðvestan golu eða kalda og að það verði allvíða skúrir í dag. Veður 26.6.2026 07:08
Víða rigning en hiti að átján stigum Það mun ganga í suðvestan – fimm til þrettán metra á sekúndu – í dag, fyrst sunnantil. Veður 25.6.2026 06:58
Úrkoma í flestum landshlutum í dag Í dag má búast við hægri breytilegri átt og rigningu með köflum í flestum landshlutum samkvæmt Veðurstofu Íslands. Þurrt verði á norðvestur hluta landsins. Hiti verður á bilinu 10 til 17 stig. Veður 24.6.2026 06:46
Viðrar vel til hátíðarhalda á höfuðborgarsvæðinu Búast má við hvössum vindstrengjum og varasömum aðstæðum fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind, svo sem húsvagna, við suðausturströndina. Það er lægð suður af landinu sem veldur stífri norðaustanátt og henni fylgja skúrir og svalt veður um landið austanvert en víða má reikna með 8 til 15 metrum á sekúndu. Veður 17.6.2026 07:36
Hiti að átján stigum norðan og vestantil Veðurstofan gerir ráð fyrir austan- og norðaustanátt í dag með strekkings vindi syðst en annars yfirleitt hægari. Veður 16.6.2026 06:58
Austlæg átt og víða líkur á vætu Veðurstofan gerir ráð fyrir austlægri átt í dag, fremur hægri, skýjuðu og eru líkur á vætu. Norðaustan- og austanlands ætti að létta til og verður hlýjast á Norðausturlandi í dag. Veður 15.6.2026 07:15
250 skjálftar en enginn gosórói að svo stöddu Jarðskjálftahrinu sem hófst í gærkvöldi upp úr klukkan 22:00 í kjölfar skjálfta, sem mældist um 4,8 að stærð, fylgir enginn gosórói að svo stöddu. Ríflega tvö hundruð og fimmtíu skjálftar voru mældir frá klukkan 22:00 og til klukkan 02:00 en þar af voru ellefu skjálftar yfir þremur að stærð. Veður 14.6.2026 07:40
Áfram rólegheitaveður en líkur á síðdegisskúrum Hiti gæti farið í tuttugu gráður á Suðvesturlandi í dag og líkur á síðdegisskúrum en aðeins svalara verður í þokulofti við norður- og austurströndina. Hæg breytileg átt eða hafgola og almennt mjög rólegt veður í dag. Hiti fer lægst niður í um sex gráður á norðausturhorninu. Veður 14.6.2026 07:22
Sólin sleikir landsmenn Víðast á landinu ætti að sjást til sólar í dag. Útlit er fyrir þokkalega hlýju en hitatölurnar eru á bilinu 11 til 18 stig. Veðurfræðingur segir fólk eiga að njóta blíðviðrisins meðan það er. Veður 13.6.2026 09:57
Áfram bongó í kortunum og nú um allt land Líkt og flestir á suðvesturhorninu hafa líklegast orðið varir við hefur blíðviðri leikið um landshlutann. Nú stefnir í að sólin teygi sig yfir allt land og þrátt fyrir þoku á norður- og austurströndinni spáir björtu og hægu veðri, en hiti fer mest upp í um átján stig í dag en nær tuttugu stigum á morgun og þá er spáð hlýjasta veðrinu á suðvestanverðu landinu. Veður 13.6.2026 07:32
„Gegnumgangandi bongó um helgina“ Það stefnir í að veðurblíðan haldi áfram að leika við landann um helgina. Ekki nóg með það að sólin haldi áfram að skína á sunnan- og vestanverðu landinu heldur lætur hún einnig sjá sig norðan- og austanlands á morgun. Veður 12.6.2026 20:09
Hitinn náði yfir tuttugu stig Hitinn mældist yfir tuttugu stig á Korpu í Reykjavík og Tálknafirði í dag. Veður 12.6.2026 16:32
Möguleiki á að hiti fari yfir tuttugu stig í höfuðborginni Útlit er fyrir norðaustan og norðan fimm til þrettán metrum á sekúndu í dag. Það hefur verið rigning á köflum sunnan- og vestanlands í nótt, en þegar kemur fram á daginn á að létta til með hita 13 til 20 stig. Veður 12.6.2026 06:59
Möguleiki á tuttugu stiga hita Í dag er útlit fyrir fremur hæga austlæga eða breytilega átt. Léttskýjað að mestu sunnan- og vestanlands og nokkuð hlýtt, hiti yfirleitt á bilinu 13 til 19 stig og möguleiki á að 20 stig geti mælst á stöku veðurstöð. Veður 11.6.2026 07:14
Útlit fyrir besta dag sumarsins á föstudaginn Það lítur út fyrir að besta veður sumarsins gæti leikið um höfuðborgarbúa á föstudaginn. Útlit er fyrir 20 stiga hita og veðurfræðingur segir það nokkuð pottþétt. Veður 10.6.2026 13:21
Skúrir víða um land og lægð nálgast austurströnd Í dag er spáð fremur hægri austlægri eða breytilegri átt og stöku skúrum víða um land, en strekkingi norðvestanlands þegar líða fer á daginn. Í veðurspá kemur fram að lægð norðaustur af landinu nálgist síðan austurströndina síðdegis og taki þá að hvessa með rigningu eða súld norðaustan- og austanlands þegar skilin ganga á land. Veður 10.6.2026 07:15
„Mjög venjulegt sumarveður“ Úrkomuna, sem hefur leikið íbúa á suðvesturhorninu grátt síðustu daga, segir Birgir Örn Höskuldsson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, vera „mjög venjulegt sumarveður“ í samtali við Vísi. Veður 9.6.2026 16:23
Þónokkrar lægðir stýra veðrinu næstu daga Í dag er spáð suðaustlægri eða breytileg átt, fimm til 13 metrum á sekúndu, en hægari suðvestantil. Víða rigning með köflum eða skúrir, en úrkomulítið norðaustanlands. Veður 9.6.2026 07:17
Rigning öðru hverju Veðurstofan gerir ráð fyrir suðaustan átta til þrettán metrum á sekúndu í dag, en hægari breytilegri átt á vestanverðu landinu. Veður 8.6.2026 07:16
Hitinn gæti náð fimmtán stigum á Sjómannadaginn Í dag, Sjómannadaginn, verður austlæg átt, þrír til átta metrar á sekúndu, og stöku skúrir eða rigning. Hiti gæti náð fimmtán stigum. Veður 7.6.2026 07:25
Milt veður um helgina Veðurspár gera ráð fyrir hægum vindum, rigningu eða skúrum og fremur mildu veðri í dag og á morgun. Veður 6.6.2026 08:38
Nokkuð vætusamt og þungbúið en milt veður Næstu daga verða smálægðir á sveimi við landið og verður vindátt því breytileg. Lengst af verður þó fremur hægur vindur. Veður 5.6.2026 07:17
Allnokkrar smálægðir að hringsóla í grennd við landið Næstu daga verður vindur lengst af hægur og verða allnokkrar smálægðir að hringsóla í nágrenni við landið og vindátt breytileg. Veður 4.6.2026 07:09
Skýjað og víða skúrir Veðurstofan gerir ráð fyrir hægri norðaustlægri eða breytilegri átt í dag. Skýjað verður að mestu á landinu og víða skúrir, en þokuloft lætur líklega á sér kræla með norður- og austurströndinni. Veður 3.6.2026 07:08