Fótbolti

Óttast að Róbert Frosti sé al­var­lega meiddur

Róbert Frosti Þorkelsson, miðjumaður sænska úrvalsdeildarfélagsins GAIS, gæti verið lengi frá eftir að hafa meiðst á hné á æfingu með liðinu í gær. Beðið er eftir niðurstöðum rannsókna til að úrskurða um það hversu alvarleg meiðslin séu.

Fótbolti

Mikael beittur kynþáttaníði

Stuðningsmenn Silkeborg beittu íslenska landsliðsmanninn Mikael Anderson, leikmann AGF í Árósum, kynþáttaníði með hrópum úr stúkunni þegar liðin mættust í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Fótbolti

Frysta egg frítt fyrir landsliðskonur

Heimsmeistarar Spánar í fótbolta kvenna geta nú með stuðningi spænska knattspyrnusambandsins fengið að frysta egg úr sér og fara í frjósemismeðferð ókeypis. Ákvörðunin er umdeild og óttast sumir að með þessu sé verið að pressa á leikmenn að fresta barneignum.

Fótbolti

Sögu­leg stund fyrir Viking í kvöld

Viking frá Noregi mætir Stuttgart í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Norskum liðum í fótbolta hefur gengið vel og eru tvö norsk lið í Meistaradeildinni í ár auk þess sem landsliðið stóð sig vel á heimsmeistaramótinu í sumar.

Fótbolti

Ó­sam­mála Einari sem lét gamminn geisa í gær

Sérfræðingar Bestu markanna á Sýn Sport voru sammála gagnrýni Einars Guðnasonar, þjálfara Víkings Reykjavíkur á leikjaniðurröðun og leiktíma í lokaumferð Bestu deildar kvenna fyrir skiptingu en Katrín Ásbjörnsdóttir vildi ekki kvitta upp á mat hans á leikstaðnum í leik Stjörnunnar og Víkings í gær.

Íslenski boltinn

Mourinho fékk úðara að gjöf

Jose Mourinho, þjálfari Real Madrid, fékk úðara að gjöf sem tákn um velvild frá ítölskum blaðamanni. Það er vitnun í þegar Inter Milan sló út Barcelona í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu árið 2010 þegar hann var þjálfari Inter.

Fótbolti

Ó­sann­gjörn bar­átta um Gullskóinn

Lokaumferð Bestu deildar kvenna fyrir skiptingu kláraðist í gær og er hörð barátta um Gullskóinn. Baráttan er þó ekki sanngjörn þar sem leikmenn í neðri hluta deildarinnar spila færri leiki en liðin í efri hlutanum og fá þá sumir leikmenn fleiri leiki til að skora mörk.

Íslenski boltinn

Treyjur Liverpool taka breytingum

Liverpool hefur gert fimm ára samning við flugfélagið Turkish Airlines um að merki félagsins verði framan á treyjum Liverpool á næsta tímabili. Turkish Airlines mun koma í stað Standard Chartered sem mun vera á treyjum Liverpool út tímabilið.

Enski boltinn

Ancelotti dásamar Hákon fyrir stórt kvöld

Hákon Arnar Haraldsson hefur svo sannarlega heillað nýja þjálfarann sinn hjá Lille og er eflaust ætlað stórt hlutverk í kvöld þegar franska liðið tekur á móti Real Betis í fyrsta leik í Meistaradeild Evrópu.

Fótbolti

Furðu lostinn og reiður Nökkvi laus við bann

Nökkvi Þeyr Þórisson trúði ekki sínum eigin augum þegar hann sá rauða spjaldið fara á loft og var rekinn af velli, í leik með liði sínu í hollensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Nú hefur rauða spjaldið verið dregið til baka.

Fótbolti