Erlent
198 199 200 201 202 203 204 205 206 … 334 ›
Nýtt lyf við alzheimers-sjúkdómnum lofar góðu Rannsóknir hafa leitt í ljós að mótefnalyfið lecanemab hjálpar líkamanum við að hreinsa burtu uppsöfnuð niðurbrotsefni prótínsins APP (e. amyloid beta A4 precursor protein) úr heilavef. Erlent 30.11.2022 07:09
Pyntingar á pyntingar ofan Rúmum tveimur vikum eftir að Rússar hörfuðu frá Kherson-borg og vesturbakka Dniproár fer frásögnum af pyntingum og öðrum ódæðum rússneskra hermanna í héraðinu fjölgandi. Minnst fimm staðir hafa fundist í borginni og fjórir aðrir á svæðinu þar sem íbúar segja að þeir hafi verið yfirheyrðir, pyntaðir, þeim hafi verið misþyrmt og hótað lífláti. Erlent 29.11.2022 23:00
Vilja þrívíddarprenta híbýli á tunglinu og Mars Geimvísindastofnun Bandaríkjanna (NASA) hefur veitt bandarísku fyrirtæki 57 milljónir dala til að þróa tækni til að prenta híbýli manna á tunglinu og jafnvel öðrum reikistjörnum. Fyrirtækið ICON frá Texas mun einnig þróa leiðir til að byggja innviði eins og vegi og lendingarpalla úr jarðvegi á tunglinu og Mars. Erlent 29.11.2022 15:01
Fjölskylda borgarstjóra ákærð fyrir umfangsmikið eiturlyfjasmygl Áttræður eiginmaður borgarstjórans í Marbella á Spáni og stjúpsonur hennar, hafa verið ákærðir fyrir umfangsmikið eiturlyfjasmygl frá Spáni til Norðurlanda, peningaþvætti og skattsvik. Þá er borgarstjórinn sökuð um að hafa viðað að sér umtalsverðum auðæfum með vafasömum hætti í krafti embættisins. Erlent 29.11.2022 15:00
Mótmæla því að Kóralrifið verði sett á hættulista Ástralska ríkisstjórnin ætlar að þrýsta á menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðananna að setja Kóralrifið mikla ekki á lista yfir heimsminjar í hættu. Stofnunin varaði við því að rifið væri í hættu yrði ekki gripið til róttækra aðgerða til þess að vernda það í gær. Erlent 29.11.2022 13:49
Falsa ásakanir gegn eigin njósnara Þegar 36 ára gamall maður undir nafninu Victor Muller Ferreira lenti á flugvelli í Sao Paulo í apríl var hann fljótt handtekinn. Yfirvöld í Brasilíu höfðu verið vöruð við því að maðurinn héti í raun Sergey Cherkasov og væri rússneskur njósnari sem hefði skömmu áður reynt að verða starfsnemi hjá Alþjóðlega sakamáladómstólnum í Hag. Erlent 29.11.2022 13:12
Rjúfa þögnina um rasistafund Trumps Mike Pence, fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna, og hópur þingmanna Repúblikanaflokksins rufu þögnina og gagnrýndu Donald Trump, fyrrverandi forseta, fyrir fund sem hann átti með Kanye West og þekktum kynþáttahatara. Pence hvatti Trump til þess að biðjast afsökunar. Erlent 29.11.2022 11:53
Japanir ætla í hernaðaruppbyggingu Fumio Kishida, forsætisráðherra Japans, hefur skipað varnarmála- og fjármálaráðherrum sínum um að auka fjárútlát til varnarmála í tvö prósent af vergri landsframleiðslu. Þetta á að gera fyrir 2027 en þetta er í fyrsta sinn í langan tíma sem upphæðin verður svo há. Erlent 29.11.2022 10:56
Fella niður 33 þúsund Covid-sektir í kjölfar dómsmála Yfirvöld í Nýju Suður-Wales í Ástralíu hafa fellt niður yfir 33 þúsund sektir sem gefnar voru út vegna brota á sóttvarnareglum í kórónuveirufaraldrinum. Ákvörðunin var tekin í kjölfar þess að dómsmál voru höfðuð á hendur yfirvöldum, sem gengust við því að sektirnar hefðu verið óljósar. Erlent 29.11.2022 08:38
Mótmælin í Kína kæfð í fæðingu Mikill viðbúnaður lögreglu var í nokkrum stórum borgum Kína og svo virðist sem að mótmæli sem brutust út víða um helgina hafi nú fjarað út. Stjórnvöld eru sögð byrjuð að leita uppi fólk sem tók þátt í þeim. Erlent 29.11.2022 08:31
„Við getum ekki leyft Pútín að stela jólunum okkar“ Borgaryfirvöld í Kænugarði hyggjast reisa jólatré út um alla borg til að sýna að Rússum takist ekki að berja niður jólaanda borgarbúa, þrátt fyrir sprengjuárásir og orkuskort. Erlent 29.11.2022 07:45
Fjölskyldum leikmanna Írans hótað pyndingum Fjölskyldum leikmanna karlalandsliðs Írans í knattspyrnu hefur verið hótað pyndingum og fangelsisvist ef leikmennirnir haga sér ekki á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu. Erlent 28.11.2022 20:50
Þögn eftir að Trump fundaði með þekktum rasistum Leiðtogar og þingmenn Repúblikanaflokksins hafa að mestu þagað þunnu hljóði eftir að í ljós kom að Donald Trump, fyrrverandi forseti, hitti tvo þekkta rasista og gyðingahatara heima hjá sér í Flórída á dögunum. Trump vísar gagnrýni annarra á fundinn á bug. Erlent 28.11.2022 15:20
Stærsta eldfjall jarðar byrjað að gjósa Eldgos hófst í Mauna Loa, stærsta virka eldfjalli jarðar, á Havaí í nótt. Hraunrennsli er enn bundið við tind fjallsins og ógnar það ekki nærliggjandi byggð. Erlent 28.11.2022 14:04
Aurskriða varð fjórtán jarðarfarargestum að bana Að minnsta kosti fjórtán eru látnir eftir að aurskriða fór yfir fótboltavöll í borginni Yaounde í Kamerún í gær. Er aurskriðan fór yfir var jarðarför í gangi á vellinum. Erlent 28.11.2022 13:11
Lögreglumaður dæmdur fyrir manndráp í Svíþjóð Lögreglumaður á fertugsaldri hefur verið sakfelldur fyrir að valda dauða manns í bænum Lidingö í Svíþjóð í fyrra en þetta er í fyrsta sinn í sögu Svíþjóðar sem lögreglumaður hefur verið ákærður og sakfelldur fyrir slíkt. Lögreglumaðurinn fær þó að halda starfi sínu þrátt fyrir dóminn. Erlent 28.11.2022 12:41
Útbreiddustu mótmæli í Kína í rúmlega þrjátíu ár Mótmæli sem brutust út í fjölda kínverskra borga um helgina eru sögð þau mestu frá því í stúdentauppreisninni sem var barin niður í blóðbaði á Torgi hins himneska friðar árið 1989. Reiði vegna strangra og langvarandi sóttvarnaaðgerða var kveikjan að mótmælunum. Erlent 28.11.2022 09:40
Sátu fastir í flugvélinni í sjö tíma Flugmanni og farþega lítillar flugvélar sem flogið var á raflínumastur í Bandaríkjunum í gær var bjargað eftir þeir höfðu setið fastir í flugvélinni í sjö tíma. Flugvélin skorðaðist af í mastrinu og sat þar föst. Erlent 28.11.2022 09:08
Fjörutíu og níu handteknir og hald lagt á 30 tonn af kókaíni Lögregluyfirvöld í fjórum Evrópuríkjum og Sameinuðu arabísku furstadæmunum réðust í aðgerðir dagana 8. til 19. nóvember síðastliðinn, þar sem 49 voru handteknir í tengslum við umfangsmikinn innflutning á kókaíni til Evrópu. Erlent 28.11.2022 08:00
Sjö fundist látnir eftir aurskriðuna á Ischia Sjö hafa nú fundist látnir og fimm er enn saknað eftir að aurskriða féll á ítölsku eyjunni Ischiaum helgina. Björgunarstarf stendur enn yfir og segir talsmaður yfirvalda að börn séu í hópi þeirra sem sé saknað. Erlent 28.11.2022 07:51
Mótmælt með auðum blaðsíðum Mótmæli í mörgum af helstu borgum Kína héldu áfram í nótt og virðist sem aðeins sé að bæta í frekar en hitt. Erlent 28.11.2022 07:51
Bandaríkin og Rússland hafi leiðir til að höndla kjarnorkuógnina Það eru til staðar úrræði fyrir Bandaríkin og Rússland að draga úr áhættunni á kjarnorkustríði, hefur ríkisfréttastofan Ria Novosti eftir fulltrúa sendiherra Bandaríkjanna í Moskvu. Engir fundir um ógnina eru á dagskrá, segir hún. Erlent 28.11.2022 06:52
Rottur og kakkalakkar herja á stórborgir Spánar Rottur og kakkalakkar herja nú á margar borgir Spánar. Gríðarlega aukningu þessara skaðræðisskepna má fyrst og fremst rekja til ómuna veðurblíðu í haust, en einnig til Covid farsóttarinnar. Erlent 27.11.2022 16:47
Segja Rússa ætla að ræna rúmlega tíu þúsund börnum Yfirvöld í Úkraínu segja að Rússar ætli sér að ræna rúmlega tíu þúsund börnum af hernumdum svæðum þeirra í Luhansk-héraði í austurhluta landsins og reyna að þvinga foreldra þeirra til að fylgja þeim eftir. Þegar eru Rússar sakaðir um að hafa rænt minnst tólf þúsund úkraínskum börnum en líklegt er að þau séu mun fleiri. Erlent 27.11.2022 11:21
Karlmaður skotinn til bana í Osló Karlmaður á þrítugsaldri var skotinn til bana nálægt miðbæ Oslóar á fimmta tímanum í nótt. Einn hefur verið handtekinn grunaður um morðið. Erlent 27.11.2022 10:17
Kim talinn vera að undirbúa fjórðu kynslóðina Ríkismiðlar Norður-Kóreu birtu í morgun nýjar myndir af dóttur Kim Jong Un, einræðisherra ríkisins. Vika er síðan fyrstu myndirnar af Ju Ae voru birtar en nýju myndirnar munu hafa verið teknar um svipað leyti. Erlent 27.11.2022 10:12
Umfangsmikil mótmæli vegna strangra sóttvarnaraðgerða Umfangsmikil mótmæli áttu sér stað víðsvegar um Kína í gærkvöldi og í nótt vegna strangra sóttvarnaraðgerða í Kína. Meðal annars var mótmælt í Sjanghæ þar sem mótmælendur kölluðu eftir því að Xi Jinping, forseti Kína, stigi til hliðar. Erlent 27.11.2022 08:07
Rýma hús vegna gróðurelda í Noregi Íbúum minnst þrjátíu húsa í Åfjord í Þrændalögum í Noregi hefur verið skipað að yfirgefa heimili sín vegna gróðurelda á svæðinu sem kviknuðu í gær. Eldarnir hafa breitt úr sér en slökkvilið á svæðinu telur sig hafa náð þokkalegum tökum á þeim. Fleiri gróðureldar brutust út í Noregi í dag. Erlent 26.11.2022 23:56
Kona fannst látin og tíu enn saknað Yfirvöld á Ítalíu hafa staðfest að kona hafi fundist látin eftir stóra aurskriðu sem féll yfir hluta bæjarins Casamicciola á eyjunni Ischia í morgun. Tíu er enn saknað. Erlent 26.11.2022 22:47
Utanríkisráðherra Hvíta-Rússlands bráðkvaddur Vladimir Makei, utanríkisráðherra Hvíta-Rússlands, er látinn. Frá þessu greindi hvítrússneski ríkismiðillinn Belta í dag. Erlent 26.11.2022 18:41