Erlent
259 260 261 262 263 264 265 266 267 … 334 ›
Rannsaka skotárásina í Osló sem mögulegt hryðjuverk Norska lögreglan segist rannsaka hvort að mannskæð skotárás við skemmtistað hinsegin fólks í miðborg Oslóar í nótt hafi verið hryðjuverkaárás. Gleðigöngu Oslóar sem átti að fara fram í dag hefur verið aflýst vegna árásarinnar. Erlent 25.6.2022 07:50
Tveir látnir eftir skotárás í miðbæ Oslóar Tveir eru látnir og að minnsta kosti 19 særðir eftir skotárás á skemmtistaðnum London Pub í miðbæ Oslóar. Lögreglan hefur handtekið einn mann vegna árásarinnar og talið er að hann sé einn að verki. London Pub er vinsæll hinsegin-bar en á laugardaginn verður gleðiganga Oslo Pride gengin. Erlent 25.6.2022 03:28
Lofa starfsfólki að þau muni greiða fyrir þungunarrof Fjöldi bandarískra fyrirtækja býðst nú til þess að greiða fyrir ferðakostnað starfsmanna sem þurfi að sækja sér þungunarrofsþjónustu utan eigin ríkismarka. Erlent 24.6.2022 23:59
Betra sé að bjarga hvölum en planta trjám Stórir hvalir taka til sín um það bil 33 tonn kolefnis hver yfir ævina á meðan hvert tré getur ekki tekið til sín meira en 48 pund af kolefni á ári. Þetta kemur fram í skýrslu sem birt var af Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Erlent 24.6.2022 23:36
Zelensky ávarpar gesti Glastonbury Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu ávarpaði gesti Glastonbury fyrr í dag. Zelensky birtist í formi upptöku áður en hljómsveitin The Libertines hóf flutning sinn. Hann hvatti áhorfendur til þess að beita stjórnmálafólk þrýstingi. Erlent 24.6.2022 19:11
Biden segir þetta sorglegan dag fyrir bandarísku þjóðina Joe Biden Bandaríkjaforseti ávarpaði þjóð sína rétt í þessu vegna ákvörðunar Hæstaréttar um að hafna rétti kvenna til þungunarrofs. Hann segir daginn vera sorglegan fyrir Hæstarétt og þjóðina alla. Erlent 24.6.2022 17:30
Tímamótadómi ýmist lýst sem „sigri lífsins“ eða „grimmilegum“ Viðbrögð eftir tímamótadóm Hæstaréttar Bandaríkjanna um að konur hafi ekki rétt til þungunarrofs hafa streymt inn í dag. Fyrrverandi varaforseti segir dóminn „sigur lífsins“ en einn leiðtoga demókrata segir hann „grimmilegan“. Erlent 24.6.2022 15:47
Úkraínski herinn hörfar frá Sieveródonetsk Eftir margra vikna hernaðarátök hefur úkraínski herinn ákveðið að hörfa frá Sieveródonetsk í Lúhansk-héraði til að forða því að verða umkringdur af Rússum. Héraðsstjóri Lúhansk-héraðs segir ekkert þýða að að halda kyrru fyrir í borginni og því hafi úkraínska hernum verið skipað að hörfa. Erlent 24.6.2022 15:25
Hafnaði rétti kvenna til þungunarrofs Hæstiréttur Bandaríkjanna sneri við fordæmi sínu sem hefur tryggt konum rétt til þungunarrofs í dag. Eftir dóminn hafa ríki frjálsari hendur til þess að setja verulegar takmarkanir á þungunarrof eða banna það alfarið. Erlent 24.6.2022 14:23
Fjöldamorðinginn í Kongsberg dæmdur til vistunar á geðdeild Dómstóll í Noregi sakfelldi 38 ára gamlan danskan karlmann fyrir morð og tilraun til manndráps í bænum Kongsberg í fyrra. Maðurinn, sem myrti fimm og særði fjóra, var dæmdur til vistunar á geðdeild. Erlent 24.6.2022 13:42
Varar við hamförum vegna matvælaskorts Heimsbyggðin stendur frammi fyrir hamförum af völdum vaxandi matvælaskorts, að sögn Antonios Guterres, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna. Stríðið í Úkraínu, uppskerubrestur vegna loftslagsbreytinga, kórónuveirufaraldurinn og ójöfnuðu leggist á eitt um að skapa fordæmalausan matvælavanda í heiminum. Erlent 24.6.2022 12:35
Útdeila peningum til eldri borgara vegna verðbólgu Danska þingið samþykkti að gefa tekjulágum eldri borgara fimm þúsund danskar krónur skattfrjálsar hverjum til að vega upp á móti verðbólgu og háu orkuverði. Aðgerðin á ekki að ýta undir verðbólgu. Erlent 24.6.2022 11:36
Vildi að dómsmálaráðuneytið segði kosningarnar spilltar Donald Trump Bandaríkjaforseti þrýsti á æðstu embættismenn dómsmálaráðuneytisins um að lýsa því yfir að forsetakosningarnar árið 2020 hefðu verið „spilltar“. Hann og þingmenn repúblikana tækju svo við. Forsetinn lét ekki segjast fyrr en hann var varaður við þetta gæti leitt til hundraða afsagna. Erlent 24.6.2022 09:38
Vaktin: Úkraínska hernum skipað að hörfa úr Sieveródonetsk Stjórnvöld í Úkraínu hafa ákveðið að láta hersveitirnar sem barist hafa í Sieverodonetsk hörfa og segja ekkert vit í því að láta þær sæta mannfalli í langan tíma til að verja svæðið. Ríkisstjórinn segir 90 prósent allra heimila í borginni skemmd eða eyðilögð. Erlent 24.6.2022 08:26
Almennt ekki hugað að kynjasjónarmiðum í Covid-viðbrögðum ríkja heims Aðeins þrettán af 226 ríkjum eða ríkissvæðum heims gerðu aðgerðir gegn kynbundnu ofbeldi að ríkjandi stefnu í aðgerðaráætlunum sínum vegna Covid-19 faraldursins. Erlent 24.6.2022 08:01
Flaug til Mallorca eftir að hafa verið neitað um þungunarrof á Möltu Bandarísk kona sem hefur ekki fengið að gangast undir þungunarrof á Möltu þrátt fyrir að hún sé að missa fóstur og að heilsa hennar sé í hættu, fékk í gær grænt ljós frá tryggingafélaginu sínu til að ferðast til Spánar til að fá nauðsynlega heilbrigðisþjónustu. Erlent 24.6.2022 07:46
Fimm látnir og tugir særðir eftir eldsvoða í háhýsi í Buenos Aires Fimm eru látnir og 35 slasaðir eftir mikinn eldsvoða í háhýsi í argentínsku Buenos Aires í gær. Erlent 24.6.2022 07:39
Fimmtán repúblikanar greiddu atkvæði með nýrri skotvopnalöggjöf Bandaríska öldungadeildin samþykkti í nótt lög um takmörkun á skotvopnaeign en um er að ræða mestu breytingu á slíkum lögum í fjölda ára. Erlent 24.6.2022 07:07
„Þetta er sigur“ Volodímir Selenskí, forseti Úkraínu, fagnaði þeim tíðindum sem bárust í dag um að Úkraína væri formlega orðið umsóknarríki að aðild að Evrópusambandinu. Erlent 23.6.2022 21:27
Úkraína og Moldóva formlega orðin umsóknarríki Leiðtogaráð Evrópusambandsins hefur samþykkt að veita Úkraínu og Moldóvu formlega stöðu umsóknarríkja um aðild að Evrópusambandinu. Erlent 23.6.2022 18:58
Aðstandendur hljóti meira en milljarð Bandaríkjadala í bætur Degi áður en eitt ár er liðið frá hruni hluta tólf hæða íbúðarhúss við ströndina í Miami er bótaupphæð til fjölskyldna fórnarlamba slyssins ákveðin. Heildarupphæð bótanna nemur 1,02 milljarði Bandaríkjadala. Erlent 23.6.2022 18:30
Mega ekki setja takmörk á vopnaburð á almannafæri Hæstiréttur Bandaríkjanna ógilti lög sem settu takmarkanir við skotvopnaburði í New York sem þýðir að mun fleiri geta gengið um vopnaðir í stærstu borgum landsins í dag. Dómurinn kemur á sama tíma og Bandaríkjaþing er nálægt því að samþykkja nýjar takmarkanir á skotvopn í fyrsta skipti í áratugi. Erlent 23.6.2022 15:13
Réttað verður yfir læknaliði Maradona Dómari í Argentínu hefur ákveðið að réttað skuli yfir læknaliði Diego Maradona vegna manndráp af gáleysi. Sérfræðinganefnd komst að þeirri niðurstöðu að meðferðin sem Maradona fékk hafi einkennst af vanrækslu og óreglu. Erlent 23.6.2022 14:37
Úkraína og Moldóva fái stöðu umsóknarríkis tafarlaust Þingsályktunartillaga um að ráðherraráð Evrópusambandsins veiti Úkraínu og Moldóvu stöðu umsóknarríkis án tafar var samþykkt á Evrópuþinginu í dag. Erlent 23.6.2022 14:30
Húsleitir og stefnur vegna falskra kjörmanna Trump Alríkislögreglumenn gerðu húsleit og birtu hópi stuðningsmanna Donalds Trump stefnur víðsvegar um Bandaríkin í gær. Aðgerðirnar eru sagðar tengjast rannsókn á fölskum kjörmönnum sem stuðningsmenn Trump reyndu að tefla fram til þess að halda honum við völd í fyrra. Erlent 23.6.2022 11:49
Settu af dómsmálaráðherra sem varð manni að bana Öldungadeild ríkisþings Suður-Dakóta í Bandaríkjunum sakfelldi dómsmálaráðherra ríkisins fyrir embættisbrot sem tengjast banaslysi sem hann átti aðild að á þriðjudag. Ráðherranum var vikið úr embætti og honum bannað að gegna opinberu embætti aftur. Erlent 23.6.2022 09:33
Vaktin: íhuga að hörfa frá Lysychansk Besta öryggistrygging Úkraínu liggur í aðild að Evrópusambandinu, sem myndi gera Vladimir Pútín Rússlandsforseta erfiðara fyrir að ráðast aftur inn í landið. Þetta segir Jonathan Powell, fyrrverandi starfsmannastjóri Tony Blair og samningamaður Breta í málefnum Norður-Írlands. Erlent 23.6.2022 08:36
Dæmd í rúmlega fjögurra ára fangelsi vegna peningaþvættis Danske bank Dómstóll í Kaupmannahöfn dæmdi litháska konu í fjögurra ára og eins mánaðar fangelsi vegna margmilljarða peningaþvættis í gegnum útibú Danske bank í Eistlandi. Konan afplánar fyrir hátt í fjögurra ára fangelsisdóm vegna annars peningsþvættismáls. Erlent 23.6.2022 08:34
Inger Støjberg stofnar Danmerkurdemókrata Inger Støjberg, fyrrverandi ráðherra innflytjendamála og varaformaður Venstre, hefur tilkynnt að hún hafi stofnað nýjan flokk – Danmerkurdemókrata. Erlent 23.6.2022 08:12
Bíður þess að hjartað hætti að slá eða að hún fái sýkingu Óttast er um líf bandarískrar konu sem er að missa fóstur á spítala á Möltu en fær ekki að gangast undir þungunarrof þar sem slíkar aðgerðir eru bannaðar með öllu í landinu. „Ég vil bara komast héðan lifandi,“ sagði konan við Guardian í gær. Erlent 23.6.2022 07:49