Menning

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)

Gerðu eitthvað frækilegt í dag og láttu taka eftir þér. Ekki hlusta á það sem þú trúir ekki á og ekki láta aðra segja þér fyrir verkum.

Menning

Nautið (20.apríl - 20.maí)

Samskipti þín við annað fólk verða afar góð í dag. Félagslífið verður skemmtilegt en ef til vill svolítið kostnaðarsamt. Kvöldið verður skemmtilegt og rómantískt.

Menning

Ljónið (23.júlí - 22.ágúst)

Þú ert vinnusamur í dag og kemur frá þér verkefnum sem þú hefur trassað. Þú verður í framtíðinni að reyna að vera skipulagðari og vinna meira jafnt og þétt.

Menning

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)

Þú ert í fremur erfiðu skapi í dag og ættir því að forðast að tala mikið við fólk sem ekki þekkir þig og þín fýluköst vel. Vináttusamband gengur í gegnum erfitt tímabil.

Menning

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)

Þú þarft að halda fastar um budduna en þú hefur gert hingað til. Margar freistingar verða á vegi þínum og það gæti orðið erfitt að standast þær.

Menning

Vogin (23.sept - 23.okt)

Vinnan gengur vel í dag og þú færð hrós fyrir vel unnið starf. Kvöldið verður líflegt og þú átt ef til vill von á gestum.

Menning

Ljónið (23.júlí - 22.ágúst)

Þú ert að einhverju leyti flæktur í mál sem þér kemur ekki beint við og vilt gjarnan losna. Reyndu að aðhafast eins lítið og þér er framast unnt.

Menning

Steingeit (22.des - 19.jan)

Þú færð endurgoldinn greiða sem þú gerðir fyrir löngu og varst búinn að gleyma. Vandamál skýtur upp kollinum í vinnunni.

Menning

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)

Þú getur gert góð kaup í dag ef þú ert var um þig og gætir þess að semja ekki af þér. Þú nýtur mikillar virðingar í vinnunni þessa dagana.

Menning

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)

Gættu þess að láta ekki yfirgangssama manneskju snúa á þig. Þú hefur átt í töluverðri baráttu undanfarið og verður að standa fast á þínu.

Menning

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Reynslan sýnir þér að best er að vera nákvæmur ef þú gefur öðrum ráð. Annað gæti komið þér í koll þó að síðar verði.

Menning

Steingeit (22.des - 19.jan)

Þú verður líklega nokkuð óþolinmóður fyrri hluta dags og verður að gæta þess að halda ró þinni. Kvöldið notarðu til að slappa af.

Menning

Ljónið (23.júlí - 22.ágúst)

Þú hefur minna að gera í dag en þú bjóst við en forðastu að sitja auðum höndum. Reyndu að vera duglegur og klára það sem þú þarft að klára.

Menning

Ljónið (23.júlí - 22.ágúst)

Einhver hætta virðist á að félagar þínir lendi upp á kant og þú gætir dregist inn í deilur. Gættu þess vel að segja ekkert sem þú gætir séð eftir.

Menning

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)

Þú gætir átt í erfiðleikum í samskiptum við fólk og það gerir þér erfitt að nálgast upplýsingar sem þú þarfnast. Reyndu að eiga rólegt kvöld.

Menning

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)

Einhverrar óánægju gætir fyrri hluta dagsins í ástarsambandi þínu en þetta er líklega aðeins tímabundið ástand. Þú ert fremur viðkvæmur í lund.

Menning

Vogin (23.sept - 23.okt)

Fjölskyldan stendur þétt saman og skipuleggur framtíðina. Félagslífið tekur einnig mikið af tíma þínum en þú sérð þó alls ekki eftir þeim tíma.

Menning

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)

Félagslífið blómstrar um þessar mundir og þér gengur vel að umgangast annað fólk. Þú munt bráðlega hitta manneskju sem hefur mikil áhrif á líf þitt til hins betra.

Menning