Menning

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Ástvinir ættu að eiga saman skemmtilegan dag þar sem margt óvænt gæti gerst. Þú færð fréttir langt að og ef til vill er ferðalag í nánd.

Menning

Bogamaður (22.nóv - 21.des)

Þér var farið að leiðast tilbreytingarleysi hversdagslífsins og eru þessir dagar því mjög til að kæta þig þar sem þeir eru harla óvenjulegir. Kvöldið verður notalegt í faðmi fjölskyldunnar.

Menning

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Þú kynnist nýjum hugmyndum og það ýtir þér kannski út í framkvæmdir. Þú ert fullur af orku í dag og ættir að geta afkastað miklu.

Menning

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)

Þú sýnir góðvild í garð fólks sem kann vel að meta það. Greiðvikni þín aflar þér vináttu persónu sem þér er mikið í mun að vingast við.

Menning

Vogin (23.sept - 23.okt)

Það verður mikið um að vera í dag og þú átt fullt í fangi með að valda þeirri ábyrgð sem á þér hvílir.

Menning

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)

Dagurinn verður viðburðarríkur og þú ættir að fara varlega í öllum fjármálum. Það gætu komið upp aðstæður sem virðast réttlæta fjárútlát.

Menning

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Þú færð kjörið tækifæri til að sýna væntumþykju þína í verki í dag. Einnig mætirðu góðvild frá öðrum og færð hjálp sem þú þarfnast.

Menning

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)

Það er spenna í loftinu og það má lítið út af bera til að allt fari í bál og brand. Þegar uppi er staðið og málin skoðuð kemstu að því að um var að ræða storm í vatnsglasi.

Menning

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)

Deilur í fjölskyldunni hafa mikil áhrif á þig. Deilurnar eru þó ekki eins alvarlegar og á horfðist og í kvöld verður allt fallið í ljúfa löð.

Menning

Nautið (20.apríl - 20.maí)

Áhersla verður á framtíðarplön en ekki það sem er nálægt í tíma. Ef þú hefur breytingar í huga er gott að skipuleggja þær.

Menning

Bogamaður (22.nóv - 21.des)

Þú ert vinsæll um þessar mundir og kunningjar þínir og samstarfsmenn leita gjarnan til þín. Gættu þess samt sem áður að hafa tíma fyrir sjálfan þig.

Menning

Steingeit (22.des - 19.jan)

Gættu vel að hvað þú segir, það gæti verið rekið ofan í þig síðar á neyðarlegan hátt. Eitthvað reynir verulega á þolinmæði þína.

Menning

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)

Fréttir sem þér berast verða eins og krydd í tilveruna. Gættu þess þó að láta þær ekki trufla þig við skyldustörf þín. Ekki er víst að áætlun standist.

Menning

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)

Náinn vinur þarf á þér að halda og þú getur hjálpað honum að leysa ákveðið vandamál ef þú aðeins sýnir honum athygli. Kvöldið verður rólegt.

Menning

Bogamaður (22.nóv - 21.des)

Þú hefur mjög mikið að gera og hefur minni tíma fyrir sjálfan þig en þú hefur haft. Hafðu gætur á buddunni. Þú færð uppörvandi fréttir af vini þínum.

Menning