Menning

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)

Þú finnur þér nýtt áhugamál og það á einstaklega vel við þig. Þú átt mun fleiri frístundir en þú hefur haft undanfarið og unir hag þínum vel.

Menning

Vogin (23.sept - 23.okt)

Það er lítið að gera í félagslífinu um þessar mundir og það er gott þar sem kominn er tími til að þú takir þig á í námi eða starfi. Forðastu kæruleysi.

Menning

Vogin (23.sept - 23.okt)

Þú hefur um nóg að hugsa á næstunni og ættir að einbeita þér að sjálfum þér. Láttu ekki undan þó einhver beiti þig þrýstingi.

Menning

Steingeit (22.des - 19.jan)

Viðkvæmni gætir í fari vinar þíns og þú þarft að sýna varkárni í umgengni við hann. Þú ættir að eyða deginum í friði og ró.

Menning

Steingeit (22.des - 19.jan)

Þetta verður fremur rólegur dagur hjá þér og þú lætur hugann reika til gamalla og góðra tíma. Kvöldið verður notalegt í góðra vina hópi.

Menning

Vogin (23.sept - 23.okt)

Vinir þínir koma þér á óvart á einhvern hátt og þú hefur í nógu að snúast í sambandi við fjölskylduna fyrri hluta dagsins.

Menning

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)

Þú finnur þér nýtt áhugamál sem mun eiga einstaklega vel við þig. Þú átt fleiri frístundir en þú hefur átt undanfarið og unir hag þínum vel.

Menning

Nautið (20.apríl - 20.maí)

Vinur þinn leitar til þín með vandamál sem kemur þér ekki síður við en honum. Lausn vandans veltur þó aðallega á þriðja aðila.

Menning

Vogin (23.sept - 23.okt)

Ágreiningur kemur upp á milli þín og einhvers þér nákomins. Stattu á þínu þar sem dómgreind þín er mjög góð um þessar mundir.

Menning

Steingeit (22.des - 19.jan)

Þú lítur yfir farinn veg og íhugar hvort þú sért á réttri leið. Mundu að það ert fyrst og fremst þú sjálfur sem leggur grunninn að hamingju þinni.

Menning

Bogamaður (22.nóv - 21.des)

Eitthvað sem þú hefur beðið eftir lengi verður að veruleika í dag. Þú þarft að taka mikilvæga ákvörðun og veist ekki alveg í hvorn fótinn þú átt að stíga.

Menning

Bogamaður (22.nóv - 21.des)

Þér mun ganga greiðlega að leysa úr ágreiningi sem kemur upp í vinnunni og varðar þig að nokkru leyti. Niðurstaðan verður þér í hag.

Menning

Vogin (23.sept - 23.okt)

Þessi dagur er ekki góður fyrir samvinnu og það lítur út fyrir að vinir þínir vilji ekki þiggja frá þér ráð. Fjármálin standa vel.

Menning

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)

Þú átt erfitt með að taka ákvörðun í sambandi við mikilvægt mál. Einhver bíður þess að þú ákveðir þig. Hugsaði málið vel áður en þú anar að neinu.

Menning

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)

Þú ert í góðu jafnvægi þessa dagana. Þér gengur vel að vinna úr því sem þú hefur og ert fljótur að vinna þau verkefni sem þú tekur þér fyrir hendur.

Menning

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)

Dagurinn verður rólegur í vinnunni og þú gætir mætt einhverri andstöðu við hugmyndir þínar sem þú ættir ef til vill að endurskoða.

Menning

Steingeit (22.des - 19.jan)

Rómantíkin kemur við sögu í dag og þú átt mjög ánægjulegan dag með ástvini. Vinir þínir eru þér ofarlega í huga í kvöld.

Menning

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Láttu það ekki fara í taugarnar á þér þó að vinur þinn sé ekki sammála þér. Einhver spenna liggur í loftinu en hún hverfur fljótt.

Menning