Menning

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Fólk gæti reynt að nýta sér góðvild þína og þú verður að beita kænsku til að koma í veg fyrir það án þess að valda deilum.

Menning

Vogin (23.sept - 23.okt)

Þér bjóðast ný tækifæri í dag og hittir mikið af áhugaverðu og skemmtilegu fólki. Ákveðin persóna kemur þér á óvart.

Menning

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)

Fjölskyldan ætti að sameinast um að hrinda í framkvæmd breytingum sem hafa beðið allt of lengi. Kvöldið verður afar ánægjulegt.

Menning

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)

Þínir nánustu eru uppteknir af einhverju öðru en þér í dag og það pirrar þig að fá ekki næga athygli. Gættu þess þó að kalla ekki fram neikvæða athygli.

Menning

Vogin (23.sept - 23.okt)

Þú átt mjög annríkt og þér veitist ekki auðvelt að sinna öllu sem þér finnst þú þurfa að gera. Ekki hika við að leita eftir aðstoð.

Menning

Vogin (23.sept - 23.okt)

Þú átt góðan dag fyrir höndum og ert afar sáttur við lífið og tilveruna. Gættu þess að vekja ekki öfund hjá vinum þínum.

Menning

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Þú þarft að einbeita þér að einkamálunum og rækta samband þitt við ákveðna manneskju sem þú ert að fjarlægjast. Rómantíkin kemur við sögu í dag.

Menning

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)

Það gengur ekki allt upp sem þú tekur þér fyrir hendur í dag. Viðskiptin ættu þó að ganga óvenjulega vel. Gagnrýni fer fyrir brjóstið á mörgum.

Menning

Nautið (20.apríl - 20.maí)

Einhver vina þinn er óvenju uppstökkur í dag. Þess vegna er nauðsynlegt að þú haldir ró þinn svo að allt fari ekki í háaloft.

Menning

Nautið (20.apríl - 20.maí)

Nýjar hugmyndir fá byr undir báða vængi í dag. Passaðu peningana þína, þeir eru fljótir að hverfa ef þú gætir þeirra ekki vel.

Menning

Steingeit (22.des - 19.jan)

Þú ert eitthvað eirðarlaus þessa dagana og átt í erfiðleikum með að finna þér skemmtileg verkefni. Fjölskyldan er afar samhent í dag.

Menning

Vogin (23.sept - 23.okt)

Þetta verður mjög óvenjulegur dagur hjá þér og einhver kemur þér rækilega á óvart. Mikil spenna er í loftinu og óvissa fram undan.

Menning

Bogamaður (22.nóv - 21.des)

Varastu að baktala þá sem þú þekkir því að það kemur þér í koll síðar. Ekki segja neitt um einhvern sem þú treystir þér ekki til að segja við hann.

Menning

Bogamaður (22.nóv - 21.des)

Vinskapur þinn við ákveðna manneskju blómstrar um þessar mundir. Það er nóg að gera hjá þér um þessar mundir og þú nýtur þess að vera til.

Menning

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)

Ekki vera að reyna að sýna fram á yfirburði þína í tíma og ótíma, lítillæti er líklegra til að vekja aðdáun. Ekki er ólíklegt að þú farir í óvænt ferðalag.

Menning

Vogin (23.sept - 23.okt)

Þú ert að skipuleggja ferðalag og hlakkar afar mikið til. Það er í mörg horn að líta og töluverður tími fer í að ræða við fólk.

Menning

Nautið (20.apríl - 20.maí)

Það er skynsamlegt að láta hendur standa fram úr ermum fyrri hluta dagsins. Þú verður ekki í skapi til að vinna mikið þegar líður á daginn.

Menning

Nautið (20.apríl - 20.maí)

Þér leiðast þessi hefðbundnu verkefni og langar til þess að eitthvað nýtt og spennandi gerist. Mundu að tækifærin skapast ekki af sjálfu sér.

Menning

Steingeit (22.des - 19.jan)

Ekki halda að aðrir geti bjargað þér úr vandræðum þó að það geti auðvitað komið sér vel að fá hjálp frá góðum vinum.

Menning

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Þú ert eitthvað niðurdreginn en það virðist með öllu ástæðulaust. Reyndu að gera eitthvað sem þú hefur sérstakan áhuga á.

Menning

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Spáin gildir fyrir föstudaginn 4. september Viðskipti þín ganga mjög vel um þessar mundir og trúlega græðir þú á einhverju sem þig grunaði ekki að væri arðvænlegt.

Menning

Bogamaður (22.nóv - 21.des)

Þú ert eitthvað niðurdreginn þessa dagana. Þú ættir að hrista af þér slenið og reyna að horfa á björtu hliðarnar á tilverunni. Þær eru til staðar.

Menning