Sport

Böðvar: Drullu mikil­vægur sigur

Fyrirliði ÍA, Böðvar Böðvarsson, fannst sigur sinna manna á sínum gömlu félögum gífurlega mikilvægur. ÍA lagði FH að velli 0-1 í leik þar sem marktækifærin létu ekki mikið á sér kræla.

Fótbolti

Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari

Tryggvi Snær Hlinason átti frábæran leik fyrir Bilbao Basket í lokaumferð spænsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta. Með sigrinum tryggði liðið sig í úrslitakeppni deildarinnar.

Körfubolti

Hörku­leikur í Ung­verja­landi

Lið Bjarka Más Stefánssonar og Janusar Daða Smárasonar mættust í fyrsta úrslitaleik ungversku úrvalsdeildarinnar í handbolta. Þeir eru leikmenn Vezprem og Pick Szeged.

Handbolti

Kristianstad er sænskur meistari

Einar Bragi Aðalsteinsson er sænskur meistari í handbolta eftir að hafa unnið Malmö 41-38. Þetta var fjórði leikur liðanna í úrslitaleik úrslitakeppni sænsku úrvalsdeildarinnar.

Handbolti

Bjóða tónleikamiða í skiptum við Yamal

Atletico Madrid deildi á samfélagsmiðlum sínum að félagið hafi gert tilboð í þrjá leikmenn Barcelona. Leikmennirnir voru settir í treyjur Atletico Madrid og undir myndinni stóð textinn „Here we go“ sem er setning sem félagaskiptafréttamaðurinn Fabrizio Romano er þekktur fyrir.

Fótbolti

Upp­gjörið: Valur - Þróttur 0-1 | Sigra manni færri á úti­velli

Þróttur náði í mikilvægan sigur í Bestu deild kvenna þegar liðið lagði Val að velli, 1-0, á Hlíðarenda í kvöld. Eina mark leiksins skoraði Unnur Dóra Bergsdóttir í fyrri hálfleik og dugði það Þrótti til sigurs þrátt fyrir að hafa leikið manni færri síðasta hálftímann. Með sigrinum styrkti Þróttur stöðu sína í fjórða sæti deildarinnar og er nú komið með tólf stig eftir sjö umferðir. Valur situr hins vegar áfram í sjöunda sæti með sjö stig.

Íslenski boltinn

Alcaraz fann til með Sinner

Carlos Alcaraz fann til með Jannik Sinner þegar hann tapaði í annarri umferð Opna franska mótsins í tennis. Jannik Sinner fékk hitaslag og féll úr keppni en fyrir mótið var hann sigurstranglegastur. Alcaraz, sem er hans aðalkeppinautur, er meiddur og ekki með á mótinu.

Sport

Óskar Hrafn á hælana?

Það er risa helgi fram undan í boltanum hér heima og úti. Heil umferð fer fram í bæði Bestu deild karla og kvenna. Úrslit eru í Meistaradeild Evrópu og landsleikur í Japan.

Sport

Brann kveður Jón Dag

Íslenski landsliðsmaðurinn Jón Dagur Þorsteinsson mun í kvöld spila sinn síðasta leik fyrir Brann. Félagið greinir frá þessu í tilkynningu í dag.

Fótbolti

Þurfti að yfir­gefa liðið fyrir úr­slita­leikinn

Ali Abdi þurfti að yfirgefa herbúðir franska liðsins OGC Nice nokkrum dögum fyrir úrslitaleik umspilsins gegn Saint-Étienne upp á sæti í frönsku úrvalsdeildinni. Félagið hefur komið honum til varna og sagt stuðningsmönnum að hætta öllum hótunum.

Fótbolti

Tottenham bætir í vörnina

Tottenham bætir við vörn liðsins eftir að liðið bjargaði sér frá falli á lokadegi ensku úrvalsdeildarinnar. Útlit er fyrir að tveir reynsluboltar úr ensku úrvalsdeildinni komi frítt til liðsins.

Enski boltinn

And­leysi í upp­eldis­félaginu komið Böðvari á ó­vart

Böðvar Böðvars­son, leikmaður ÍA, mun í kvöld í fyrsta sinn mæta upp­eldis­félagi sínu FH í Kapla­krika. Krafta Böðvars var ekki lengur óskað í Hafnarfirði og hefur honum frá fyrstu viku liðið eins og heima hjá sér á Skaganum. And­leysi FH liðsins oft á tíðum hefur komið honum á óvart í byrjun tíma­bils.

Íslenski boltinn

Árangurinn vinnur gegn kvíðanum

Andrea Kolbeinsdóttir náði frábærum árangri í sterku fjallahlaupi á Ítalíu síðustu helgi og mætir með seglin þanin á komandi Evrópumót.

Sport

Hjalti stýrir Skaga­mönnum

Hjalti Þór Vilhjálmsson hefur verið ráðinn til starfa sem þjálfari karlaliðs ÍA í körfubolta og mun stýra liðinu í 1. deildinni á næsta tímabili.

Körfubolti