

Dave Chisnall hélt að hann hefði unnið legg gegn Ricky Evans á heimsmeistaramótinu í pílukasti en misreiknaði sig.
Stjórnarmenn Manchester United leita sífellt nýrra leiða til að afla tekna og skoða nú að fara með liðið í æfingaferð um leið og tímabilið klárast.
Í janúar ætlar Aston Villa að kalla framherjann Louie Barry aftur úr láni hjá Stockport County. Hann mun skilja eftir sig stórt skarð sem aðrir leikmenn liðsins, líkt og Benóný Breki Andrésson, þurfa að fylla.
Inter Milan tók á móti Como og vann 2-0 sigur í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Mílanó-menn eru nú þremur stigum frá efsta sæti deildarinnar og eiga einn leik til góða á liðin fyrir ofan.
João Pereira tók við starfi Rubens Amorim sem aðalþjálfari Sporting þegar sá síðarnefndi fór til Manchester United. Hann hefur ekki fagnað góðu gengi og er sagður á útleið eftir rúman mánuð í starfi.
Eftir að hafa jafnað sig af fótbroti í fyrra og skotárás í vor hefur Tank Dell orðið fyrir öðrum slæmum meiðslum. Leikmaðurinn mun brátt gangast undir aðgerð og verður frá út tímabilið hið minnsta eftir að hnéskel hans fór úr lið og krossband slitnaði.
Melsungen er í efsta sæti þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta eftir 31-23 sigur í toppslag gegn Burgdorf.
Fiorentina tapaði öðrum deildarleiknum í röð, 2-1 gegn Udinese. Albert Guðmundsson byrjaði á bekknum en var settur inn á þegar liðið lenti undir.
Nottingham Forest hefur ráðið nýjan forstjóra, eftir tæp tvö ár án slíks. Lina Soulouko mun taka við starfinu en henni var bolað burt af mikilli reiði úr framkvæmdastjórastarfi hjá Roma í haust.
Alessandro Nesta hefur verið sagt upp störfum hjá ítalska úrvalsdeildarfélaginu Monza eftir að hafa aðeins unnið einn af sautján leikjum við stjórnvölinn.
Fótboltamaðurinn ungi Romano Floriani Mussolini skoraði sitt fyrsta mark á fótboltaferlinum er lið hans Juve Stabia vann 1-0 sigur á Cesena í ítölsku B-deildinni. Fagnaðarlæti stuðningsmanna liðsins hafa vakið athygli.
Taktar félaganna Jared Goff og Jahmyr Gibbs í liði Detroit Lions í öruggum sigri liðsins á Chicago Bears í NFL-deildinni í gær hafa vakið töluverða lukku. Báðir féllu þeir viljandi við til að slá vörn Bjarnanna út af laginu, sem skilaði snertimarki.
Ange Postecoglou, stjóri Tottenham, var bersýnilega pirraður þegar hann sat fyrir svörum á blaðamannafundi í gærkvöld, eftir 6-3 tapið gegn Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.
Bukayo Saka, einn besti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta, verður ekki með Arsenal á næstunni vegna meiðsla.
Birkir Bjarnason stefnir á það að koma liði sínu Brescia í umspil um laust sæti í efstu deild á Ítalíu.
Þýska handknattleiksdeildin hefur nú samþykkt að heimaleik Magdeburgar við Erlangen, sem fara átti fram annan í jólum, verði frestað um ótilgreindan tíma vegna grimmdarverkanna á jólamarkaðnum í Magdeburg.
Stuðningsmenn spænska knattspyrnufélagsins Real Betis hafa skapað fallega jólahefð sem felst í því að gleðja bágstödd börn með gjöfum.
Ástralski tenniskappinn Max Purcell, sem tvívegis hefur unnið risamót í tvíliðaleik, er kominn í ótímabundið bann eftir að hafa sjálfur látið vita af broti á lyfjareglum.
Skotinn Charlie Adam hefur verið látinn taka poka sinn hjá Fleetwood Town í ensku D-deildinni. Liðinu var ætlað upp um deild en á í töluverðum vandræðum.
„Sem stendur er allt svo erfitt,“ sagði Portúgalinn Rúben Amorim eftir 3-0 tap Manchester United fyrir Bournemouth á Old Trafford í Manchester í gær. Þetta sagði Portúgalinn á blaðamannafundi sem þurfti að slíta vegna leka í blaðamannaherberginu á Old Trafford.
Stjörnurnar í Englandsmeistaraliði Manchester City þurfa að mæta til vinnu á jóladag, á fótboltaæfingu, öfugt við það sem þeir eru vanir, eftir skelfilegt gengi liðsins undanfarna tvo mánuði.
Sandro Eric Sosing varð óvænt að draga sig úr keppni rétt áður en hann átti að stíga á svið á föstudaginn, á HM í pílukasti. Nú er orðið ljóst hve alvarleg ástæðan var.
Albert Guðmundsson verður á ferðinni með Fiorentina gegn Udinese í kvöld, í síðasta heimaleik Fiorentina á þessu ári. Búast má við að vel verði klappað fyrir Edoardo Bove sem snýr aftur á Artemio Franchi leikvanginn eftir að hafa farið í hjartastopp.
Logi Hrafn Róbertsson, miðjumaður FH og U21-landsliðs Íslands, var í gær kynntur sem nýjasti leikmaður króatíska knattspyrnufélagsins NK Istra.
Það á ekki af Marcus Rashford að ganga þessa dagana. Ekki nóg með að það sé búið að dömpa honum úr hópnum hjá Manchester United þá er kærastan búin að gera slíkt hið sama.
Nú er orðið ljóst hver voru besta íþróttafólk ársins á Íslandi á árinu 2024 að mati Samtaka íþróttafréttamanna. Vísir birtir í dag topp tíu listann yfir besta íþróttafólk ársins á Íslandi að mati meðlima SÍ en þetta er í 69. sinn sem samtökin kjósa Íþróttamann ársins.
Það eru ekki margir viðburðir á dagskrá á rásum Stöðvar 2 Sport í dag en það er þó nóg um að vera þar sem heimsmeistaramótið í pílukasti heldur áfram. Þetta er síðasti keppnisdagur fyrir jólafrí, en mótið heldur svo áfram 27. desember.
Jordan Turnbull, varnarmaður Tranmere Rovers í ensku D-deildinni lenti í frekar vandræðalegu atviki í leik liðsins gegn Doncaster í gær þegar sóknarmaður togaði niður um hann stuttbuxurnar.
Óvænustu úrslitin hingað til á heimsmeistaramótinu í pílukasti litu dagsins ljós í kvöld þegar hinn sænski Jeffrey de Graaf sló Skotann Gary Anderson úr leik 3-0. Anderson er 14. á heimslistanum um þessar mundir en de Graaf er í 81. sæti.
Hinn 15 ára Charlie Woods fór holu í höggi á PNC meistaramótinu í dag þar sem hann og faðir hans, Tiger Woods, freista þess að vinna mótið í fyrst sinn en þar keppa kylfingar og börn þeirra saman í liðakeppni.