Tónlist
179 180 181 182 183 184 185 186 187 … 226 ›
Stóns loks á Íslandi Fyrstu tónleikar Stóns eru í kvöld á Players í Kópavogi. Þetta er tökulagasveit sem sérhæfir sig í Rolling Stones-lögum. Stóns eru valinkunnir menn úr íslenska rokkinu, Frosti Júníor í Esju er Charlie Watts, Kalli í Lights on the Highway er Bill Wyman, Biggi í Motion Boys er Brian Jones og Bjarni og Bjössi í Mínus eru Keith og Mick. Tónlist 28.11.2008 02:00
Stórbók og fleiri gersemar Viðhafnarútgáfur af ýmsu tagi hafa verið algengar í tónlistarútgáfu undanfarin ár og verða sífellt íburðarmeiri. Trausti Júlíusson spáði í þróunina og skoðaði nýja spariútgáfu Sigur Rósar-plötunnar Með suð í eyrum við spilum endalaust. Viðhafnarútgáfur hafa verið algengar í tónlistarútgáfu undanfarin ár. Tónlist 27.11.2008 08:00
Skítatúr Spocks í spinningsal Hljómsveitin Dr. Spock var á framandlegum slóðum í hádeginu í gær þegar hún hélt útgáfutónleikana sína í spinningsal Sporthússins í Kópavogi. Múgur og margmenni svitnuðu við grjóthart rokkið með gula hanska á höndunum. Voru gestir ekki bara aumir í afturendanum eins og vanalega eftir spinningtíma heldur flestir með hvínandi són í eyrunum líka. Tónlist 27.11.2008 07:00
Fórnaði mottunni fyrir nýju plötuna Brandon Flowers, söngvari hljómsveitarinnar The Killers, rakaði nýlega af sér yfirvaraskeggið sem hann hefur skartað síðustu ár. Ástæðuna segir hann vera að mottan hafi ekki samræmst nýrri stefnu sveitarinnar. Tónlist 27.11.2008 06:45
Gaman á Græna hattinum Það verður gaman á Græna hattinum um helgina: á föstudagskvöld er það Margrét Guðrúnar og Bandið hans pabba en þá sveit skipa ekki ómerkari menn en: Ásgeir Óskarsson (Pelican, Stuðmenn, Þursaflokkurinn) trommur, Björgvin Gíslason (Náttúra, Pelican), gítar, Tómas Tómasson (Stuðmenn, Þursaflokkurinn) bassi og Margrét Guðrúnar píanó og söngur. Tónlist 27.11.2008 06:00
Rockville í fjórða sinn Tónlistarhátíðin Rockville er nú haldin fjórða árið í röð á Paddy's í Keflavík. Stuðið hefst í kvöld og stendur fram á sunnudagsmorgun. Mikill fjöldi hljómsveita kemur fram, þar á meðal Dr. Spock, Retro Stefson, Mammút, Agent Fresco, Fm Belfast, Slugs, Æla, Hellvar, Dark Harvest, Andrúm, Klaus, Miri, DLX ATX, Morðingjarnir og Sudden Weather Change. Miðaverði er haldið niðri sem kostur er, passi á kvöldin þrjú kostar 2.300 kr., en þúsund kall á stök kvöld. Tónlist 27.11.2008 04:00
Megas kyssir jólasvein Megas & Senuþjófarnir blása til jólatónleika í Salnum í Kópavogi fimmtudagskvöldið 18. desember. Meiningin er að leika lög úr hnausþykkum lagasarpi meistarans og krydda pakkann með sérstaklega uppæfðum jólalögum, meðal annars smellinn „Ég sá mömmu kyssa jólasvein“. Mun sá jólasveinn væntanlega gera ýmislegt fleira en að kyssa mömmuna. Miðasala á þetta einstaka tækifæri til að láta sjálfan Megas koma sér endanlega í jólafílinginn er hafin á midi.is. Tónlist 27.11.2008 04:00
Sjúklegt basl og dálítið stress Rapparinn Addi Intro úr hljómsveitinni Forgotten Lores er að gefa út sína fyrstu sólóplötu, Tivoli Chillout. Platan átti að koma út hjá Geimsteini en vegna kreppunnar og vandræða með gjaldeyri ákvað fyrirtækið að fresta útgáfunni fram í apríl. Það hugnaðist Adda ekki og ákvað hann að gefa hana út sjálfur með öllu því veseni sem því tilheyrir. Tónlist 27.11.2008 03:30
Hálf öld aðskilur nafnana 52 ár, eða rúmlega hálf öld, skilur að nafnana Ragnar Bjarnason og Ragnar Sólberg sem eru báðir að gefa út sólóplötur núna fyrir jólin. Tónlist 27.11.2008 02:45
Blender gerir upp árið Plata rapparans Lil" Wayne, Tha Carter III, hefur verið kjörin plata ársins af bandaríska tónlistartímaritinu Blender. Listar yfir plötur ársins fara smám saman að birtast og ríður Blender á vaðið með þessum nýja lista. Tónlist 27.11.2008 02:30
Coxon kallaður til æfinga með Blur Damon Albarn hefur staðfest að Blur ætli að koma aftur saman á næsta ári með gítarleikarann Graham Coxon innanborðs. „Blur ætlar að æfa saman og síðan kemur í ljós hvort við erum til í tuskið,“ sagði Albarn, skömmu áður en hann flutti óperu sína Monkey: Journey to the West í London. Tónlist 27.11.2008 02:00
Mamma og pabbi hjálpa „Ég er búin að vera að syngja í þrjú fjögur ár,“ segir Elín Eyþórsdóttir átján ára sem hefur gefið út sína fyrstu plötu, See you in dreamland. „Ég söng fyrst á kaffi Hljómalind þegar ég sá að maður gæti troðið þar upp og lét bara mína nánustu vita. Tónlist 27.11.2008 01:45
Fræbbblarnir þrjátíu ára Í dag er stór dagur fyrir íslenska pönkáhugamenn því þrjátíu ár eru liðin síðan Fræbbblarnir komu fram í fyrsta skipti. „Þetta var í Kópavogsbíói á Myrkramessu MK,“ segir Valgarður Guðjónsson, Valli í Fræbbblunum. „Það var menningarleg samkoma, ræður, ljóðalestur og kórinn söng. Við vorum auðvitað alveg út úr kú. Þurftum að hafa mikið fyrir því að fá að spila því skemmtinefndin reyndi með öllum tiltækum ráðum að útiloka okkur. Sem betur fer áttum við hauk í horni sem kom okkur inn.“ Tónlist 25.11.2008 06:00
Fyrsta alvöru sólóplatan Gítarleikarinn snjalli Guðmundur Pétursson hefur gefið út sólóplötuna Ologies. Hann segir að hún sé fyrsta alvöru sólóplata sín en fyrir mörgum árum gaf hann út tilraunakennda plötu sem fór frekar hljótt um. Tónlist 25.11.2008 05:15
Rúnar Júl staldrar við Rúnar Júlíusson gerir upp feril sinn á þrefaldri plötu. Rúnar er enn að þrátt fyrir 45 ár í bransanum. Hann segist markvisst vinna að því að fresta hrörnuninni, eins og hann orðar það. Tónlist 25.11.2008 04:15
Montin Atómstöð í útrás Lag Atómstöðvarinnar, Think No, er að finna á safnplötunni Riot on Sunset vol. 14 sem bandaríska útgáfufyrirtækið 272 Records gefur út. Tónlist 25.11.2008 03:45
Hvíla sig á upptökum Breska hljómsveitin Arctic Monkeys ætlar að spila á tónlistarhátíðinni Big Day Out í Ástralíu í janúar þrátt fyrir að vera enn á kafi í gerð sinnar þriðju plötu. Tónlist 25.11.2008 01:30
Settu met á Myspace Nýjasta plata Guns N"Roses, Chinese Democracy, er orðin vinsælasta platan í sögu Myspace-síðunnar. Sveitin leyfði aðdáendum sínum að hlusta ókeypis á plötuna á síðunni á fimmtudag og voru viðbrögðin framúrskarandi. Þegar mest lét var platan spiluð 25 sinnum á sekúndu sem er vitaskuld mjög góður árangur. Tónlist 24.11.2008 04:00
Red Hot besta sveitin Bandaríski rapparinn Kanye West segir að The Red Hot Chili Peppers sé uppáhaldshljómsveitin sín. Hann segir að góðar melódíur sveitarinnar hafi fyrst og fremst heillað sig. Tónlist 24.11.2008 04:00
Dylan og Megas eru áhrifavaldar Tónlistarmaðurinn Sverrir Norland játar að meistararnir Bob Dylan og Megas séu báðir á meðal áhrifavalda á hans fyrstu plötu sem er nýkomin út. Tónlist 23.11.2008 06:00
Upptökur á næstu plötu Gusgus hafnar Hljómsveitin Gusgus hefur hafið upptökur á sinni sjöttu plötu í Tankinum við Önundarfjörð. Sveitin dvelur í hljóðverinu í níu daga og er áætlaður útgáfudagur í byrjun næsta árs. Tónlist 22.11.2008 04:30
Hjaltalín hita upp fyrir Cold War Kids Hjaltalín er leiðinni í tónleikaferð um Evrópu með bandarísku sveitinni Cold War Kids. Um vikulangan túr er að ræða sem hefst í Tórínó á Ítalíu á laugardagskvöld. Tónlist 21.11.2008 07:00
Fólk sýni baráttuanda Mammút, Agent Fresco og fleiri hljómsveitir koma fram á tónleikum í Vetrargarðinum í Smáralind á laugardaginn. Tildrög tónleikanna eru þau að tónlistarmaðurinn Ká Eff Bé, Kristinn F. Birgisson, samdi lag til kærustu sinnar sem hefur glímt við heilakrabbamein síðastliðin fimm ár. Tónlist 21.11.2008 06:00
Coldplay að hætta? Chris Martin, söngvari hljómsveitarinnar Coldplay, vill ekki verða gömul rokkstjarna. Söngvaranum, sem er 31 árs í dag, finnst ekki að hljómsveitir eigi að halda áfram eftir að meðlimir þeirra verða 33 ára. Tónlist 20.11.2008 07:00
Heildin skiptir höfuðmáli Þriðja sólóplata Beatmakin Troopa, Search For Peace, er komin út. Hljómsveitin er hugarfóstur Pans Thorarensen sem gaf á síðasta ári út plötuna Parallel Island með föður sínum Óskari. Tónlist 20.11.2008 06:00
Ókeypis rafmúsik „Við höfum haldið mánaðarleg tónleikakvöld undir nafninu Weirdcore þar sem við höfum safnað saman þeim sem eru að gera eitthvað að viti í rafmúsík," segir Sveinbjörn Þorgrímsson, Biogen. Tónlist 20.11.2008 06:00
Óútgefið verk eftir The Beatles Fjórtán mínútna spunaverk sem Bítlarnir tóku upp við hljóðritun á Penny Lane í janúar 1967 undir stjórn Pauls McCartney veldur nokkrum deilum um þessar mundir í Bretlandi. Paul vill endilega að tilraunaverkið, sem ber heitið Carnival of light, verði gefið út, en það er frjáls spuni unninn áfram með aðferðum raftónskálda. Tónlist 20.11.2008 04:45
Dikta fær aðstoð frá Svíþjóð Rokkararnir í Diktu eru að ljúka upptökum á nýju lagi, Let Go, sem fer líklega í spilun í byrjun desember. Fylgir það eftir vinsældum, Just Getting Started, sem kom út í sumar og fór á toppinn bæði hjá Rás 2 og X-inu. Svínn Jens Bogren mun hljóðblanda og leggja lokahönd á laginu en hann var upptökustjóri nýjustu plötu sænsku þungarokkssveitarinnar Opeth sem hefur getið sér gott orð að undanförnu. Tónlist 20.11.2008 04:30
Afmælisbörn hætta við túr Rokkararnir í Brain Police, sem halda upp á tíu ára afmælið sitt á næstunni, hafa hætt við þriggja vikna tónleikaferð um Evrópu sem átti að standa yfir í nóvember og desember. Ástæðan er hrap íslensku krónunnar. Tónlist 20.11.2008 04:00
Tveggja milljarða plata Axl Rose kemur loks út Á mánudaginn kemur nýja platan með Guns N‘ Roses, eða öllu heldur Axl Rose, loksins út. Platan Chinese Democracy er margboðuð, en nú virðist ekkert geta stöðvað útgáfu hennar nema ef til vill heimsendir. Tónlist 20.11.2008 03:45