Tónlist
201 202 203 204 205 206 207 208 209 … 226 ›
LCD Soundsystem: Sound of Silver -fjórar stjörnur James Murphy, aðalhausinn á bak við LCD og stofnandi DFA plötufyrirtækisins, er án efa einn mest þenkjandi tónlistarmaður samtímans. Snilldin á bak við aðra plötu LCD Soundsystem er einfaldlega slík. Murphy hefur tekist að skapa danstónlistarkokteil sem á skilið allsherjar lýsingarorðakynsvall, góðra að sjálfsögðu en einnig ögrandi og dónalegra. Tónlist 10.4.2007 10:30
Tónleikar samfélags svefnherbergjanna Útgáfan sem kennir sig við Bedroom Community stendur fyrir tónleikum í Fríkirkjunni í Reykjavík í kvöld. Tónlist 10.4.2007 09:30
Stórkostlegur heiður Tónlistarmaðurinn Kristján Kristjánsson, KK, var kjörinn Blúsmaður ársins við setningu Blúshátíðar í Reykjavík á Hótel Nordica í fyrrakvöld. Það var Blúsfélag Reykjavíkur sem sæmdi KK nafnbótinni. Þeir sem áður hafa hlotið þennan heiður eru Magnús Eiríksson (2004), Björgvin Gíslason (2005) og Andrea Gylfadóttir (2006). Tónlist 5.4.2007 15:15
Antony Hegarty syngur með Björk í Höllinni Antony Hegarty, betur þekktur sem Antony & the Johnsons, er væntanlegur til landsins í tengslum við Volta-tónleika Bjarkar Guðmundsdóttur á annan í páskum. Hann kemur fram með Björk í 1-2 lögum á tónleikunum. Tónlist 5.4.2007 15:01
Svalasta blásaraveit landsins „Ég hélt fyrst að það væri einhver að stríða mér þegar það var hringt í mig og spurt hvort ég vildi spila með Björk og fara í tónleikaferð með henni þannig að ég afþakkaði pent. Svo hugsaði ég smá um þetta og fattaði hvað ég hefði gert, hringdi til baka og endaði hér.” segir Valdís Þorkelsdóttir trompetleikari. Tónlist 5.4.2007 15:00
Passíusálmar í sjötta sinn Megas flytur Passíusálma Hallgríms Péturssonar á hljómleikum í kirkju sálmaskáldsins í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd í tvígang laugardag fyrir páska: verða fyrri tónleikarnir kl. 16 en hinir síðari um kvöldið kl. 20.30. Tónleikarnir eru haldnir í tilefni af því að fimmtíu ár eru liðin frá vígslu kirkjunnar sem menn hafa síðan kallað nýju kirkjuna á þessu andlega höfuðbóli Hvalfjarðar. Tónlist 5.4.2007 13:30
Zero Hour með tvenna tónleika Bandaríska rokksveitin Zero Hour spilar á tvennum tónleikum hér á landi um páskana. Þeir fyrri verða á Grand Rokk laugardaginn 7. apríl og þeir síðari annan í páskum í Hellinum í Tónlistarþróunarmiðstöðinni. Tónlist 5.4.2007 13:15
Mika bætist við listann Nýstirnið Mika er nýjasta stóra nafnið sem tilkynnt er á Hróarskelduhátíðina sem verður haldin í júlí. Fyrsta plata Mika, Life in Cartoon Motion, hefur fengið góða dóma og hefur tónlistinni verið líkt við blöndu af Queen, Elton John, Abba, Robbie Williams og Scissor Sisters. Hefur lagið Grace Kelly notið mikilla vinsælda. Tónlist 5.4.2007 13:00
Aldrei fór ég suður í beinni Tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður verður send út í beinni útsendingu á netinu. Stendur útsendingin frá 19 til 00.30 á föstudaginn og frá 15 til 2.00 á laugardaginn. Tónlist 5.4.2007 12:00
Feiminn við Björk Stuðsveitin Hot Chip hitar upp fyrir Björk á tónleikum á mánudaginn. Steinþór Helgi Arnsteinsson sló á þráðinn til sveitarinnar. Joe Goddard, einn söngvari Hot Chip, lagahöfundur og hljómborðsleikari sveitarinnar, var að vonum spenntur fyrir heimsókninni. Tónlist 5.4.2007 10:00
Píanóið til Memphis Píanóið sem John Lennon notaði til að semja hið sígilda lag Imagine er á leiðinni til Memphis í Tennessee í tilefni þess að 39 ár eru liðin frá því að mannréttindaleiðtoginn Martin Luther King var myrtur. Tónlist 5.4.2007 09:30
Silvía Nótt og Trabant með tónleika á NASA í kvöld Stórtónleikar verða á NASA í kvöld þar sem ofurstjarnan Silvía Nótt og electro-rokksveitin Trabant leiða saman hesta sína. Þá mun betri helmingur tvíeykisins Gullfoss og Geysir sjá um að magna upp stemningu áður en stjörnur kvöldsins stíga á stokk. Tónlist 4.4.2007 10:01
Kings of Leon gefur út nýja plötu Nashvillerokksveitin góðkunna Kings Of Leon sendir í dag frá sér sína þriðju stúdeóplötu. Platan sú heitir "Because Of The Times" og inniheldur meðal annars smáskífulagið On Call sem mikið er spilað hér á landi. Tónlist 2.4.2007 15:10
Þúsund Volta VAKNAÐU!!! frá Björk Mikill mannfjöldi mætti á styrktartónleikana VAKNAÐU !!! gegn átröskun sem FORMA hélt á Nasa í gærkvöldi. Björk Guðmundsdóttir frumflutti efni af nýju plötunni, Volta, sem kemur út 7. maí næstkomandi. Mugison, Lay Low, Pétur Ben, KK, Magga Stína, Wulfgang og Esja tróðu líka upp. Einnig koma fram: Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri, Matthías Halldórsson landlæknir, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar og Kolbrún Halldórsdóttir þingmaður Vinstri grænna. Tónlist 2.4.2007 13:23
Eins og örlögin knýi dyra Sinfóníuhljómsveit Norðurlands heldur tónleika í Glerárkirkju á skírdag og flytur þá Örlagasinfóníuna eftir Beethoven og fiðlukon-sert eftir Max Bruch. Einleikari á fiðlu er Ari Þór Vilhjálmsson og stjórnandi er Guðmundur Óli Gunnarsson. Tónlist 2.4.2007 10:00
Elín Ósk í stórræðum Það styttist í frumsýningu á samstarfsverkefni Íslensku óperunnar og Óperukórs Hafnarfjarðar, hinni vinsælu óperu, Cavalleria Rusticana, í Gamla bíó en æfingar eru nú á fullu og verður frumsýningin að kvöldi annars páskadags. Tónlist 2.4.2007 09:45
Ghostigital flottir í Kaupmannahöfn Hljómsveitin Ghostigital lék á tónleikum í Loppen í Kaupmannahöfn á föstudagskvöld. Vel var mætt á tónleikana, bæði af Dönum og Íslendingum sem búsettir eru í Danmörku. Tónlist 2.4.2007 09:30
Hara og Jógvan í úrslit X-Factor Það verða Hara-systur úr Hveragerði og Jógvan frá Færeyjum sem mætast í úrslitaþætti X-Factor á Stöð 2 um næstu helgi. Þetta varð ljóst eftir undanúrslitaþáttinn á föstudagskvöld þar sem Guðbjörg var kosin út úr þættinum. Tónlist 2.4.2007 09:15
Háður Eurovision-keppninni Peter Fenner semur textann við framlag Íslands til Eurovison-söngvakeppninnar. Peter er Eurovision-bolti, hefur mætt til hverrar keppni allt frá árinu 1997 og er mikill Íslandsvinur. „Já, ég vissi af þessum ágreiningi Kristjáns Hreinssonar og Sveins Rúnars og hef mikla samúð með Kristjáni,“ segir Peter Fenner, útvarpsmaður og söngtextaskáld. Tónlist 2.4.2007 09:00
Í ljósum kertanna Árlegir kertaljósatónleikar söngvaskáldsins Harðar Torfasonar fara fram í Borgarleikhúsinu í kvöld. Tónleikar þessir njóta jafnan gífurlegra vinsælda enda hefur tónlistarmaðurinn fjölhæfi fest sig í sessi sem einn dáðustu listamanna þjóðarinnar. Sem fyrr mun Hörður leika nýtt efni í bland við gamlar perlur auk þess að segja sögur úr veröldinni eins og honum er einum lagið. Tónlist 2.4.2007 08:30
Landslið poppara útskrifast Benedikt Hermann Hermannsson, Kjartan Sveinsson úr Sigur Rós og eiginkona hans, María Huld úr Amiinu, eru á meðal þeirra sem útskrifast sem tónsmiðir úr Listaháskóla Íslands á næstunni. Tónlist 2.4.2007 08:00
Shogun verðugir sigurvegarar Úrslit Músíktilrauna fóru fram síðastliðið laugardagskvöld í porti Listasafns Reykjavíkur. Að lokum stóð harðkjarnasveitin Shogun uppi sem verðugur sigurvegari. Heilt yfir var keppnin flott í alla staði og úrslitakvöldið sérlega glæsilegt. Tónlist 2.4.2007 07:00
Skúli á basssann með Blonde Redhead Skúli Sverrisson hyggst rífa fram bassann og stíga á stokk með hljómsveitinni Blonde Redhead. Skúli hefur starfað með sveitinni um árabil og hefur meðal annars leikið inná þrjár plötur en samkvæmt fréttatilkynningu frá tónleikahaldaranum Grími Atlasyni er ákaflega sjaldgæft að hann sé með Blonde Redhead á sviðinu. „Hann gerði það reyndar í Austurbæjarbíó 2004 á mjög eftirminnilegum tónleikum,“ segir Grímur. Tónlist 1.4.2007 14:00
Músin á toppinn Nýjasta plata bandarísku hljómsveitarinnar Modest Mouse, We Were Dead Before the Ship Even Sank, fór beint á topp sölulistans í Bandaríkjnum. Hún kom út þar á bæ þann 20. mars en í Evrópu kemur hún út 2. apríl. Tónlist 1.4.2007 13:00
Bandaríkjamenn sýna Heru áhuga Tónlistarkonan Hera Hjartardóttir er nýkomin heim til Nýja Sjálands eftir hafa verið í viðræðum við þrjú bandarísk plötufyrirtæki. Hera hélt þrenna tónleika á hátíðinni South By Soutwest í Texas á dögunum og hafði upp úr krafsinu mikinn áhuga útgefenda. Tónlist 1.4.2007 09:00
Úrslit í kvöld Lokahnykkur hinna árlegu og veigamiklu Músíktilrauna fer fram í kvöld í Hafnarhúsinu. Eftir fimm undanúrslitakvöld í síðustu viku standa ellefu hljómsveitir eftir og munu þær berjast í kvöld. Þetta eru hljómsveitirnar Tónlist 31.3.2007 15:00
Norrænt samstarf Fyrstu skref að sameiningu Íslands og Færeyja hafa verið stigin að sögn félaga í tríóinu TRISFO. Tónlist 31.3.2007 14:30
U2 byrjuð á næstu plötu Írska hljómsveitin U2 hefur hafið upptökur á sinni næstu plötu, sem mun fylgja eftir How to Dismantle an Atomic Bomb sem kom út 2004. Upptökustjóri verður Rick Rubin, sem hefur unnið með Red Hot Chili Pepper, Johnny Cash, System of a Down, Weezer og nú síðast, Metallica. Tónlist 31.3.2007 14:00
Volta Bjarkar komin á netið „Ég var að frétta af þessu bara í þessum töluðu orðum,“ segir Ásmundur Jónsson, framkvæmdastjóri Smekkleysu en frá því var greint á Pitchforkmedia-tónlistarvefsíðunni að upptökum af nýjustu plötu Bjarkar Guðmundsdóttur, Volta, hefði verið lekið á netið. Tónlist 31.3.2007 13:15
Tónlistarkransakaka á Barnum Uffie er 18 ára bandarísk/frönsk söngkona sem hefur verið að ná töluverðum vinsældum hér á landi og víðar á síðustu misserum. Hún verður með tónleika á Barnum á Laugavegi 22 í kvöld. Uffie er þekkt fyrir opinskáa textagerð og afar líflega sviðsframkomu. Tónlistin sem hún spilar er einhverskonar rafmagnaður hiphop bræðingur sem er mjög hressandi. Tónlist 31.3.2007 13:00