Innlent

Enn pattstaða við Akureyrarhöfn

Pattstaða ríkir enn við Akureyrarhöfn þar sem félagar úr Sjómannasambandinu hindra löndun úr Sólbaki EA. Sjómannasambandið segist verða kyrrt þar til forstjóri Brims tekur til baka sérsamning sem gerður var við áhöfnina. Forstjórinn stendur hins vegar fast á sínu og segist vera með lögin sín megin. Lögreglan segir þetta vinnudeilu og mun ekki blanda sér í málið að svo komnu. Lið manna úr forystu Sjómannasambandsins tók á móti Sólbaki EA þegar togarinn kom til hafnar á Akureyri í dag. Skipið er alfarið í eigu Brims en forstjóri fyrirtækisins stofnaði um rekstur hans sérstakt félag og samdi sérstaklega við áhöfnina án hlutdeildar Sjómannasambandsins. Þessu hefur verkalýðsforystan mótmælt harðlega og sagt brot á vinnulöggjöf og kjarasamningum. Menn séu þvingaði til að standa utan verkalýðsfélaga og fái verri kjör en samningar segi til um. Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannasambandsins, telur málið klárt lögbrot og enga ástæðu til að fara með það fyrir dómstóla. Hann segir lögin þeirra megin og kjarasamningarnir klárlega og hefur sambandið fengið álit margra lögfræðinga á málinu. Sævar segir sjómenn ætla að vera á bryggjunni þar til GuðmundurKristjánsson, forstjóri Brims, „hættir þessum leik“ eins og Sævar orðar það. Guðmundur segist alltaf til í að tala við Sjómannasambandið en forsvarsmenn þess hafi ekki óskað eftir neinum fundi. Þess vegna átti hann sig ekki á því hvað Sævar og félagar eru að tala um. Allt hjá Brimi er löglegt að sögn Guðmundar. Guðmundur segir bæði áhöfn Sólbaks og útgerðina ánægða með samninginn og lögfræðingar hafi gefið samþykki sitt - hann sér því ekki vandamálið. Hann segist hafa haldið að þetta væri frjálst samfélag sem við búum í, en kannski sé það ekki svo. 



Fleiri fréttir

Sjá meira


×