Þekktasta fórnarlambið á batavegi 19. desember 2004 00:01
Þekktasta fórnarlamb stríðsins í Írak er á batavegi. Ali Abbas, drengurinn sem missti hendurnar þegar sprengja lenti á heimili hans í Bagdad, vill snúa aftur heim til að starfa með öðrum sem misst hafa útlimi. Ali Abbas er einn þeirra sem sjónvarpsáhorfendum um víða veröld muna eftir frá því í stríðinu í Írak. Í sprengjuregninu í Bagdad fórst öll fjölskylda hans og sjálfur stórslasaðist hann: brenndist illa og missti handleggina. Ali er vissulega ekki eina barnið sem stríðið lék grátt en hann er heppnari en flestir því hann hefur notið meðferðar færustu lækna heims undanfarið ár. Hátækni gervihendur gera honum kleift að grípa og sleppa, og ef vel gengur segja sérfræðingar hugsanlegt að hann geti lifað því sem næst eðlilegu lífi. Ali er nú í Bretlandi þar sem hann hefur verið um hríð, gengur í skóla og lærir ensku. Hann segist hins vegar vilja snúa til Íraks sem fyrst þegar meðferð og menntun er lokið á Bretlandi því hann vill starfa með og í þágu annarra Íraka sem missta hafa útlimi. Góðgerðarsamtök á Bretlandi hafa safnað fé í styrktarsjóð sem kenndur er við Ali en í hann hafa safnast ríflega þrjátíu milljónir króna. Ein fjáröflunarleiðin er að selja kort með myndum sem Ali málaði með fótunum.
Erlent Fréttir Írak Mest lesið Grimmdarlegu ofbeldi lýst í ákærunni Innlent Bíll hafnaði í Kópavogstjörn Innlent Sonur Khamenei nýr leiðtogi Írans Erlent Faldi sig inni í fataskáp þegar lögregluna bar að garði Innlent Vilja launað leyfi fyrir þolendur ofbeldis og vernd gegn uppsögn Innlent Loks komnar af átakasvæðinu: „Átján tímar af þroti“ Innlent Gildandi kjarasamningar ávísun á áframhaldandi verðbólgu Innlent Fyrirhugaðar aðgerðir gegn offitu harðlega gagnrýndar Innlent Segir af sér vegna samnings Pentagon við gervigreindarfyrirtæki Erlent Ræddust við í síma í kjölfar ummæla Trump um Breta Erlent Fleiri fréttir Sonur Khamenei nýr leiðtogi Írans Ræddust við í síma í kjölfar ummæla Trump um Breta Segir af sér vegna samnings Pentagon við gervigreindarfyrirtæki Til skoðunar hvort um hryðjuverk sé að ræða Sprenging við bandaríska sendiráðið í Osló Hóta öllum mögulegum arftökum Khamenei „Þess í stað eru þeir ræflar svæðisins“ Leiðtogar kalla eftir breytingum á erfðaröðinni Soham-morðinginn látinn Segir kröfu Bandaríkjanna um skilyrðislausa uppgjöf Íran draum Segir Kúbu brátt munu falla Rússar hjálpa Írönum að finna skotmörk Segir ekkert annað en uppgjöf Írana koma til greina Birtu viðtölin um Trump sem vantaði í Epstein-skjölin Hættir við framboð sitt í kjölfar játningar um framhjáhald Telja líklegt að þeir hafi drepið írönsku skólastúlkurnar Skurðlæknir í Lundúnum fjarlægði blöðruhálskirtil á Gíbraltar Grænmetis„borgarar“ í lagi en ekki grænmetis„beikon“ Bandaríkjamenn heimila Indverjum að kaupa olíu frá Rússlandi Bandaríkin og Ísrael boða harðari árásir á næstu dögum Handleggsbrotinn eftir átök við þingmann Noem rekin Leita til Úkraínumanna vegna íranskra sjálfsprengidróna Telja sjávarhæð verulega vanmetna sem gæti ógnað milljónum manna Játar að hafa haldið við aðstoðarkonu sem kveikti í sér Bæta við einu geimskoti og stefna á tunglið 2028 Íhugar að reka Noem eftir deilur við þingmenn Reyna að vernda líf áhafnar annars íransks skips Ráðast á bandarískt olíuflutningaskip en sverja af sér árás á Tyrkland Bondi neydd til að svara spurningum um Epstein-málið Sjá meira