Hagvöxtur eykst milli ára 14. mars 2005 00:01
Hagvöxtur var 5,2 prósent í fyrra samkvæmt áætlun Hagstofunnar. Þetta er einu prósentustigi meiri hagvöxtur en árið 2003. Einkaneysla jókst hins vegar um 7,5 prósent og fjárfestingar um tæp 13 prósent sem leiddi til 70 milljarða króna viðskiptahalla. Hagstofan birti í dag Hagtíðindi með áætlun um landsframleiðsluna í fyrra. Samkvæmt þeim var landsframleiðslan 859 milljarðar króna, sem er 5,2 prósentum meira en árið 2003. Þetta er einu prósentustigi meiri hagvöxtur en árið áður, en þá var hann 4,2 prósent. Samanborið við mörg Evrópulönd er þessi hagvöxtur gríðarlegur en þó skyldi ekki ofmeta hann. Arnór Sighvatsson, aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands, segir að hagvöxtur hér á landi hafi jafnan sveiflast talsvert mikið. Samkvæmt nýjustu tölum hafi orðið verulegur samdráttur á árinu 2002, rúm tvö prósent, en á aðeins tveimur árum hafi hann snúist í hagvöxt og það skýrist af hluta til af mikilli fjárfestingu í stóriðju sem muni halda áfram í ár og það næsta. Einkaneysla jókst um 7,5 prósent og fjárfestingar um tæp 13 prósent. Þetta þýðir að þjóðarútgjöld jukust langt um fram landsframleiðsluna sem leiddi til viðskiptahalla upp á tæpa sjötíu milljarða króna, eða 8,1 prósent af landsframleiðslu. Er ástæða til þess að hafa áhyggjur af þessari þróun? Arnór segir að viðskiptahallinn feli það í sér að eitthvað verði að gefa eftir að lokum og hagvöxtur að hægja sér. Það sé sjálfgefið að draga muni úr honum þegar fjárfestingartímabilinu ljúki en hversu mikið það verði sé erfitt að sjá á þessari stundu. Flestum hallatímabilinum hafi lokið einvherjum samdrætti í landsframleiðslu.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Viðskipti erlent Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Viðskipti erlent Ekki allir geta sagt: „Ég græddi fúlgur fyrir fyrirtækið í dag“ Atvinnulíf Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Viðskipti innlent Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Skatturinn birtir álagningu í dag Viðskipti innlent Nýtt á Íslandi: Auglýsingalausn sem sameinar sjónvarp og samfélagsmiðla Samstarf „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ Viðskipti innlent Enn ríður Indó á vaðið Viðskipti innlent Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst María nýr stjórnarformaður SVEIT Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Ráðinn forstjóri Nathan Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Sjá meira