Sýslumaður samþykkti beiðni Kers 17. október 2005 23:41
Sýslumaðurinn í Reykjavík samþykkti í dag beiðni Kers og fleiri hluthafa í Festingu ehf. um að setja lögbann við því að Angus hagnýti sér þann rétt sem fylgir hlutafjáreign félagsins í Festingu. Jafnframt var lagt lögbann við því að Angus gæti framselt hluti sína til þriðja aðila. Lögbannið tekur gildi síðar í dag þegar lögð hefur verið fram 75 milljóna króna trygging af hálfu Kers.Kristján Loftsson, formaður stjórnar Kers, segist fagna þessari niðurstöðu. „Þetta er áfangasigur. Næsta skref okkar verður að höfða mál til ógildingar á hlutafjárhækkuninni í Festingu frá 18. mars sl. og jafnframt til staðfestingar á lögbanninu,“ segir Kristján. „Við munum nú strax fara fram á það við stjórn Festingar að hún boði til hluthafafundar til að kjósa nýja stjórn í félaginu. Við vonum að stjórnin bregðist hratt og vel við þeirri beiðni,“ segir Kristján. Upphaf málsins var í síðasta mánuði þegar stjórn Festingar ákvað að auka hlutafé félagsins um hundrað prósent og seldi Angusi hlutina án þess að halda hlutahafafund eins og óskað hafði verið eftir. Lögbannið nú mun því frysta hlut Angusar á meðan leitt verður til lykta fyrir dómstólum hvort hlutafjáraukningin hafi verið lögleg. Ekki var fallist á beiðni Kers um að leggja lögbann við því að Landsbanki Íslands hagnýti sér þann rétt sem fylgir handveðsyfirlýsingu er Angus hefur gefið út til bankans vegna lánafyrirgreiðslu við kaup umræddra bréfa. Að áliti sýslumanns hafði ekki verið sýnt fram á að slík athöfn væri yfirvofandi af hálfu bankans.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Sviptingar í stjórn Amaroq Viðskipti innlent Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Viðskipti innlent Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Atvinnuleysi fimm prósent í júní Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Sjá meira