Sport

Íslendingaliðið Weibern féll

Íslendingaliðið Weibern féll úr þýsku úrvaldeildinni í kvennahandbolta í gær. Þrjár íslenskar landsliðskonur leika með og Aðalsteinn Eyjólfsson er þjálfari. Weibern tapaði fyrir Kirchhof, 24-29, í síðari leik liðanna um sæti í deildinni. Jóna Margrét Ragnarsdóttir skoraði tólf mörk fyrir Weibern í gær, þar af níu úr vítum. Sólveig Lára Kjærensted skoraði sex mörk en Dagný Skúladóttir ekkert.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×