Fótbolti

Thelma með stoð­sendingu og er Svíþjóðar­meistari

Aron Guðmundsson skrifar
Thelma Karen Pálmadóttir átti stoðsendingu í dag. Hún er Svíþjóðarmeistari á sínu fyrsta tímabili í atvinnumennsku.
Thelma Karen Pálmadóttir átti stoðsendingu í dag. Hún er Svíþjóðarmeistari á sínu fyrsta tímabili í atvinnumennsku. EPA/ADAM IHSE

Íslenska landsliðskonan í fótbolta, Thelma Karen Pálmadóttir átti stoðsendingu í fyrst marki Hacken í 4-1 sigri liðsins gegn Kristianstad í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld sem tryggði liðinu sænska meistaratitilinn.

Thelma sem fyrr í byrjunarliði sænska stórliðsins sem mætti Kristianstad í Íslendingaslag en Guðný Árnadóttir og Alexandra Jóhansdóttir voru í byrjunarliði Kristianstad, þá kom Elísa Lana Sigurjónsdóttir inn sem varamaður í upphafi seinni hálfleiks. 

Sigur Hacken virkaði aldrei í hættu, mikið bras verið á Kristianstad upp á síðkastið og var Nik Chamberlain, sem stýrði meðal annars liði Breiðabliks við góðan orðstír hér á landi, sagt upp störfum sem þjálfara liðsins á dögunum. 

Eftir tæpan stundarfjórðungs leik var staðan orðin 3-0 Hacken í vil. Thelma með stoðsendinguna í fyrsta marki liðsins sem Maja Bodin skoraði strax á 3. mínútu.

Svo fór að Hacken vann 4-1 sigur og tryggði sér með því sigur í sænsku úrvalsdeildinni þegar að enn eru tvær umferðir eftir af deildinni. Thelma Karen því Svíþjóðarmeistari á sínu fyrsta tímabili í atvinnumennsku.

Landsliðsmarkvörðurinn Fanney Inga Birkisdóttir er einnig á mála hjá Hacken en hún er á láni hjá Valerenga í Noregi og gerði vel í leik liðsins gegn Lyn í norsku úrvalsdeildinni í kvöld. 

Fanney hélt marki sínu hreinu með Örnu Eiríksdóttur fyrir framan sig í vörninni. Lokatölur 3-0 sigur Valerenga og er liðið í fjórða sæti norsku deildarinnar eftir 21 umferð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×