Síminn: Taka höndum saman 17. maí 2005 00:01
Almenningur hefur tekið höndum saman við Burðarás, Tryggingamiðstöðina og Talsímafélagið um að skila inn tilboði í Landssímann. Óskar Magnússon, forstjóri Tryggingamiðstöðvarinnar, og fulltrúar Almennings sátu á fundi í Landsbankanum fram eftir nóttu. Orri Vigfússon, talsmaður Almennings, vildi ekki játa þessu né neita. Hann segist vera bundinn trúnaði og verið sé að leggja síðustu hönd á tilboðið. Í sama streng tók forstjóri Tryggingamiðstöðvarinnar. Tilboðsfrestur í Landsímann rennur út klukkan þrjú í dag. Fimmtíu fengu útboðsgögn hjá einkavæðinganefnd. Tilboðum verður að skila til Morgan Stanley í Lundúnum. Jörundur Valtýsson, starfsmaður einkavæðinganefndar, segir að ekki verði gefinn út fjöldi tilboða fyrr en á morgun. Það verður síðan ekki gefið upp fyrr en eftir viku hverjir buðu. Þeir sem eftir standa og uppfylla skilyrði einkavæðinganefndar fá síðan að kynna sér fyrirtækið nánar og þau trúnaðargögn sem þar eru. Að því loknu geta þeir skilað inn bindandi tilboðum. Miðað er við að ferlinu ljúki í júlí.
Innlent Viðskipti Mest lesið Er sjálf besti leikmaðurinn: „Ég þurfti að gúggla mörkin hans“ Atvinnulíf Galli í hugbúnaði leiddi til rangra greiðsluseðla Neytendur Ólíklegt að eignir dugi fyrir launakröfum Viðskipti innlent Ekkert til í því að enginn rjómi sé í Rjómaísnum Neytendur „Ásta mín, ef þú segir nei við þessu tilboði þá rek ég þig“ Atvinnulíf Óvænt að ekki sé mjólk og rjómi í ísnum Neytendur Bankarnir byrjaðir að hækka vexti Neytendur Það getur allt gerst ef forstjórinn vakir fram yfir klukkan tíu Atvinnulíf „Af og frá“ að bankarnir græði á verðbólgu Viðskipti innlent Orkan fyrst eldsneytisfyrirtækja á Íslandi með umhverfisvottun fyrir allar stöðvar Samstarf Fleiri fréttir Ólíklegt að eignir dugi fyrir launakröfum Lyfjaver opnar nýtt apótek í Klíníkinni Fjórar Kappahl-verslanir til viðbótar opnaðar á morgun „Af og frá“ að bankarnir græði á verðbólgu Stofnandi Bláa lónsins nú formaður stjórnar Lykilfólk úr Vélfagi stofnar nýtt sjávarútvegstæknifyrirtæki Ná sátt og geta haldið kjaraviðræðum áfram Ný sátt gerð og Míla sektuð um 200 milljónir Lítið fékkst upp í 217 milljóna kröfur í bú Kvikmyndaskólans Landsbankinn greiðir 34,9 milljarða í arð til hluthafa Íbúðum til sölu fjölgar verulega frá áramótum Tónabíó opnar á ný Þórarinn dæmdur fyrir markaðsmisnotkun Vextir hafi sannarlega lækkað en framboðið sé breytt Launahækkanir muni valda meiri stýrivaxtahækkunum Tekur ekki undir fullyrðingar um plat Klofningur nefndarinnar helstu tíðindin og verkalýðnum hótað „Kristrún, það er ljótt að plata“ Stjórnendur svartsýnni en þeir hafa verið frá 2020 Bein útsending: Sitja fyrir svörum vegna vaxtahækkunar Ráðinn sviðsstjóri fyrirtækjasviðs Olís Hækka stýrivexti Genis á Siglufirði í söluferli: Ekki forsendur fyrir vexti á Íslandi Telja útboð á heilsurækt í Eyjum sniðið að World Class Spáir hækkun stýrivaxta í fyrramálið Skiptastjóri Play kærir úrskurð um vanhæfi Spá óbreyttum stýrivöxtum Apótek opnað í fyrsta sinn á Flúðum Stórhækkun á verði áls jákvæð fyrir samfélagið Íris ráðin til SI Sjá meira