Trúnaðarmál segir Bjarni 3. júní 2005 00:01
Það er trúnaðarmál hvernig stjórnendur Íslandsbanka fjármagna viðskipti sín með bréf í bankanum, segir forstjóri bankans. Bjarni Ármannsson segir að stjórnendum beri engin skylda til að upplýsa um fjármögnun viðskiptanna, hvorki nú né síðar, þar sem bankinn reiði ekki fram neina tryggingarvernd. Í sumum tilfellum þegar stjórnendur kaupa hlutabréf í fjármálafyrirtækjum verja þau stjórnendur tapi með því að skuldbinda sig til að kaupa bréfin aftur eftir ákveðinn tíma, vilji stjórnendur þá selja, á sama verði og þeir keyptu bréfin á að viðbættum vöxtum. Þá er hagnaðurinn líka tekjuskattskyldur enda litið svo á að viðskiptin séu hlunnindi og í raun hluti af launakjörum. Bjarni segir að viðskiptin væru tilkynningaskyld ef þau nytu slíkrar verndar. Eins og málum sé hins vegar háttað séu þau trúnaðarmál og ekkert undarlegt við það að ekki sé skýrt frá því hvernig þau séu fjármögnuð. Bankinn er almenningshlutafélag með um 100 þúsund viðskiptavini.. Þrátt fyrir það segir Bjarni að upplýsingarnar verði ekki gerðar opinberar, hvorki í ársreikningi né annars staðar. Hann geti ekki rætt þessi viðskipti né önnur hvað þessi mál áhræri, þ.e. hvaða kjör séu í boði. Spurður hvort lánaviðskiptin hafi verið borin undir stjórn bankans segist Bjarni ekki geta rætt það.
Innlent Viðskipti Mest lesið Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Viðskipti innlent „Þetta er bara algjörlega galið“ Neytendur Fá dagsektir fyrir villandi verðskrá Neytendur Skipta dekkin máli? Samstarf Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ Viðskipti innlent Algeng meiðsli fótboltamanna kveikjan að appinu sem hún þróaði Atvinnulíf Martraðarverktaki Kópavogsbæjar greiddi ekki krónu með gati Viðskipti innlent Auglýstu vörur á verði sem ekki stóð neytendum til boða Neytendur Auglýstu tilboð of títt og fá milljón í sekt Neytendur Edda Rós til Hagstofunnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ 15 ára afmæli kynjakvóta: „Langt frá því að vera fyrirmyndarríkið sem við teljum okkur vera“ Tinna nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Innnes „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Tekur við þjálfun kokkalandsliðsins Brú Talent kaupir Geko Consulting Halli hins opinbera minnkaði um 39 milljarða Spá aukinni verðbólgu um jólin Skatturinn endurgreiði áfram ofgreiddan skatt Bein útsending: Skattspor ferðaþjónustunnar Ýmsar forsendur Hæstaréttar um skilmálann jákvæðar „Ég tel að þessi dómur hafi takmarkað fordæmisgildi“ Skilmálarnir skýrir og Arion banki sýknaður í vaxtamálinu Martraðarverktaki Kópavogsbæjar greiddi ekki krónu með gati Ætlar að endurreisa Niceair Steinþór aftur sviðsstjóri Orku hjá Eflu DiBiasio og Beaudry til Genis Greiða tryggðar pakkaferðir úr Ferðatryggingasjóði eftir áramót Vaxtamálið: Niðurstaða um verðtryggðu lánin á morgun Kristín og Birta ráðnar til Origo Gengi Skaga tekur dýfu eftir tilkynningu Íslandsbanka Enn að rannsaka samráð í sorphirðu Hluthafar Íslandsbanka krefjast stjórnarkjörs Ferðamálastofa fellir úr gildi starfsleyfi Eagle golfferða Fjöldi erlendra farþega stendur í stað en Íslendingum fækkar Hulda nýr formaður Tækni- og hugverkaráðs SI Eldi verður eitt stærsta félag sinnar tegundar í heiminum Sjá meira