Semja við SR-mjöl og Fóðurblönduna 14. júní 2005 00:01
Eimskip hefur samið við SR-mjöl og Fóðurblönduna um að annast heildarflutninga á mjöli til og frá landinu og mun félagið festa kaup á nýju skipi í þessu skyni. Annars vegar mun Eimskip taka að sér að flytja 80 þúsund tonn af fiskimjöli árlega fyrir SR-mjöl til áfangastaða í Norður-Evrópu en hins vegar um 60 þúsund tonn árlega af fóðurmjöli til landsins fyrir Fóðurblönduna. Í tilkynningu segir að með þessu móti nái Eimskip að tengja saman flutningahagsmuni tveggja mjög öflugra fyrirtækja og bjóða þeim þannig mjög hagkvæmt flutningakerfi. Til viðbótar við stórflutningaskipið Trinket, sem Eimskip á, mun verða keypt sérstaklega annað skip til að annast þessa auknu flutninga og mun það geta flutt allt að 2.300 tonn í hverri ferð. SR-mjöl, sem er dótturfyrirtæki Síldarvinnslunnar, er stærsti útflytjandi á fiskimjöli frá Íslandi. Samningurinn við SR-mjöl felur í sér að Eimskip muni annast 70% af öllum flutningum á fiskimjöli á vegum fyrirtækisins til markaða í Evrópu. Eimskip hefur annast flutninga fyrir SR-mjöl og Fóðurblönduna í fjölda ára en samningarnir sem gerðir voru í dag fela í sér mun meira magn en fyrri samningar. Höskuldur H. Ólafsson, aðstoðarforstjóri Eimskips, undirritaði samningana fyrir hönd Eimskips, Finnbogi Jónsson, framkvæmdastjóri SR-mjöls, fyrir hönd SR-mjöls og Eyjólf Sigurðsson, framkvæmdastjóri Fóðurblöndunnar, fyrir hönd Fóðurblöndunnar. Samningarnir voru undirritaðir um borð í stóflutningaskipi Eimskips, Trinket.
Innlent Viðskipti Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira